Morgunblaðið - 28.04.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.04.2020, Blaðsíða 19
✝ Sandra LífLong fæddist í Reykjavík 2. nóv- ember 1993. Hún lést 9. apríl 2020. Móðir hennar er Lára Berþóra Long, f. 2.11. 1969, eiginmaður Láru er Martin Bailey, f. 22.12. 1969. Faðir Söndru Lífar er Þórarinn Finn- bogason, f. 24.4. 1968, eig- inkona hans er Marta Þyri Gunndórsdóttir, f. 26.12. 1967. Hálfsystkini eru Vilma Þór- arinsdóttir, f. 13.4. 2000, og Victor Þórarinsson, f. 24.9. 1997. Foreldrar Láru Bergþóru eru Ása Finnsdóttir, f. 23.11. við Háskólann í Malmö (Pro- duktion Leder). Meðfram skól- anum vann Sandra Líf við þjónustustörf. Í janúar 2017 flutti Sandra Líf til Íslands þar sem hún vann hjá föður sínum við þjón- ustustörf á Café Milano. Haust- ið 2017 hóf Sandra Líf nám í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Meðfram námi vann hún sem þjónn og vaktstjóri á Jamie’s Italian við Austurvöll og seinna meir á veitingastaðnum Krydd í Hafnarfirði. Sandra Líf starf- aði einnig við afgreiðslustörf í versluninni Álfagull í Hafnar- firði. Sandra Líf verður jarð- sungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 28. apríl 2020. Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu þarf að takmarka fjölda kirkju- gesta í athöfninni og verður því eingöngu nánasta fjöl- skylda við útförina. 1944, og Jóhannes Long, f. 9.10. 1945. Foreldrar Þórarins eru Edda Val- garðsdóttir, f. 1.12. 1944, og Finnbogi Ásgeirsson, f. 27.2. 1945, d. 1997. Sandra Líf lauk 9. og 10. bekk frá Lindaskóla í Kópa- vogi vorið 2008. Frá fimm ára aldri til 15 ára stundaði hún nám í ballett í Ballettskóla Eddu Scheving. Hún flutti með móð- ur sinni til Malmö í Svíþjóð eft- ir grunnskólapróf og lauk það- an stúdentsprófi frá Bladins Gymnasium International School í júní 2011. Árin 2013- 2014 stundaði Sandra Líf nám Elsku hjartans. Ég man þig svo vel, ég mun aldrei gleyma þér. Þitt fallega hár, þitt fallega bros, þitt fallega hjarta. Minningarnar streyma, þú á náttfötunum í Rauðási, þú að segja góða nótt með fallega brosinu þínu, ég að horfa á þig krúttmolann með þvertoppinn gægjast fyrir hornið, þú í Galta- lind aðeins eldri að verða tán- ingur, alltaf sama fallega brosið og fallega hárið, þú og ég í Malmö, þú að lána mér herberg- ið þitt því að það var stærra en gestaherbergið til þess að ég gæti komið öllum fötunum mín- um fyrir, við að fara í namm- ibúðina, kaupa bílanammið eða súrt og sætt, elda eitthvað gott, ég að koma aftur og aftur í heimsókn til Malmö, muna að kaupa djúpur-nammið, muna líka að kaupa kúlusúkk, það má ekki gleyma því, þú að lána mér strætókortið þitt, þú með út- skriftarhúfuna dansandi á gras- inu af gleði, ég að hjálpa til í eld- húsinu að gera skinkurúllur fyrir veisluna með ömmu og fleirum, ég að koma í afmælið þitt og mömmu þinnar, það mátti ekki missa af því, við að fagna saman, mikið hlegið og grínast, þú að máta föt fyrir skólaballið, ég að segja hvað mér finnst, þú að mála þig, ég að segja þér til, get endalaust haldið áfram elsku hjartans. Núna ertu komin til himna, þar eru fallegir englar sem munu varðveita þig og gæta þín, elsku hjartans! Ég mun alltaf sakna þín, mun geyma fallegar minningar um þig í hjarta mínu, elsku hjartans! Nú kveð ég þig að sinni elsku hjartans og sé fyrir mér falleg- asta fiðrildi sem ég hef séð, þú veist hvað ég meina. Bið góðan Guð að styrkja for- eldra þína og fjölskyldu í sorg- inni og bið englana að vaka yfir ykkur öllum. Hvíl í friði elsku hjartans. Þín Linda K. Urbancic. Ég kynntist Söndru fyrir mörgum árum í Svíþjóð þegar börnin mín voru lítil kríli. Hún kom inn í líf okkar eins og hlýr og glaður stormsveipur og heill- aði okkur öll upp úr skónum. Hún var einstaklega ljúf og blíð og með eindæmum dugleg. Sandra var einstök með börnin og þau biðu spennt eftir að fá tíma með henni. Hún fylgdi krökkunum eftir alla tíð og mest síðustu árin en þá bjuggum við í návígi og hún átti daglegt sam- band við okkur. Anna Lovísa mín leit upp til hennar og alltaf gaf hún henni tíma sem hálfgerð stóra systir. Tinna hundurinn okkar átti það til að skreppa til hennar og dvelja þar langtímum saman enda voru þær miklar vinkonur og Sandra einstakur dýravinur. Heimir og Baltasar elskuðu hana og vildu alltaf fá sem mestan tíma með henni. Og það vildu allir. Sandra var ótrú- lega skemmtileg og lifandi, átti marga vini og yndislega fjöl- skyldu. Það var alltaf líf í kring- um hana enda útgeislunin ein- stök og hún hugsaði vel um fólkið sitt. Hún naut sín í náminu og stóð sig ótrúlega vel. Sam- hliða því vann hún fulla vinnu og ég dáðist oft að því hvað hún náði að halda utan um þetta allt auk þess að aðstoða mig við börnin. Það er ekki á allra færi og hún stóð sig gífurlega vel sem sýnir hvað hún var öflug og sterk. Það er ótrúlega verðmætt að eiga að fólk sem elskar börnin okkar og sýnir þeim hlýju og skilning. Fáir treysta sér til að sjá um auma og skerta einstak- linga en það sýnir einstakt hjartalag og góðmennsku. Sandra vílaði ekki fyrir sér að sjá um öll börn, skert eða heil- brigð, og reyndist hún honum Baltasar mínum einstök stoð og stytta. Því gleymi ég aldrei. Og Sandra Líf Long HINSTA KVEÐJA Hún Sandra okkar var einstök. Fallega síða rauða hárið, einlæga, hlýja brosið og hjartað úr gulli. Hún snerti djúpt alla sem hún kynntist og elskaði heitt og innilega fólkið sitt. Það var auðvelt að elska Söndru skilyrðislaust og það gerði ég svo sannarlega. Með tár- votum augum og brostnu hjarta kveð ég þig, elsku Sandra mín, en allar ljúfu minningarnar lifa og ylja. Arna. aldrei mun ég gleyma þessum yndislega engli sem er ein falleg- asta sál sem ég hef kynnst. Hvíl í friði, elsku Sandran okkar. Sigríður Heimisdóttir (Sigga, Annaló, Baltasar og Heimir). Ljúfasta fegurð fljóða! fegursta blómið mitt! Ó, að ég mætti una við ódáins-brosið þitt!. Séð hefi’ svanna fríða, sá aldrei líka þinn, angandi æskublómið! ódáinsgeislinn minn! Elsku fjölskylda og vinir, við vottum ykkur samúð okkar. Sandra mun lifa með okkur öll- um. Svafa, Björgvin og Sindri. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2020 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARÍA HELGADÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum laugardaginn 18. apríl. Útför hennar fór fram í kyrrþey föstudaginn 24. apríl. Við þökkum auðsýnda samúð. Stefán Stefánsson Sólveig Hjördís Jónsdóttir Ragnheiður Stefánsdóttir Anna Guðfinna Stefánsdóttir Sigurður Sveinn Jónsson barnabörn, langömmubörn og langalangömmubarn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, GUÐMUNDUR KOLBEINN VIKAR FINNBOGASON Heiðarbrún 7, Hveragerði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 17. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey föstudaginn 8. maí. Streymt verður frá athöfninni. Upplýsingar veita aðstandendur. Guðný Elín Snorradóttir Finnbogi Vikar Guðmundsson Kolbrún Ósk Guðmundsdóttir Bryndís Malín Sigurðardóttir Árni Vikar Sigurðsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN FANNEY JÓNSDÓTTIR, Bölum 4, Patreksfirði, lést mánudaginn 13. apríl á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hún verður jarðsungin frá Patreksfjarðarkirkju 8. maí. Aðstandendur vilja þakka hlýhug og auðsýnda samúð og þakka starfsfólki Ölduhrauns á Hrafnistu í Hafnarfirði sérstaklega fyrir alúð við umönnun. Ásdís Þorsteinsdóttir Friðþjófur Þorsteinsson Jósefína Halla Hafliðadóttir Reynir Þorsteinsson Rósa Guðrún Jóhannsdóttir Þorsteinn Rúnar Ólafsson Guðrún Eggertsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Móðir mín, KRISTÍN BALDVINA ÓLADÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Þórsgötu 16a, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn 19. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Finnur Björnsson Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR, Austurbrún 2, lengst af á Njálsgötu 18, lést á Hrafnistu þriðjudaginn 7. apríl. Bálför hefur farið fram. Minningarathöfn verður síðar. Hafsteinn Garðarsson Snjólaug Bragadóttir barnabörn og barnabarnabörn Mig langar að setja nokkur orð á blað um Jón Gunnar, sem var vinnufélagi minn í Austurbæjar- skóla í þrjú ár. Jón Gunnar var einstaklega hlý og góð sál og auðvelt að vinna með. Maður fékk hvergi betri aðstoð en frá honum þegar mikið gekk á. Ég vann bæði sem skólaliði og stuðn- ingsfulltrúi og þar sem gat gengið mikið á í frímínútum og þegar virkilega var þörf á hjálp var Jón Gunnar til staðar. Þú fannst hvergi áreiðanlegri og staðfastari mann. Auðvelt var líka að leita til hans þó svo að gæti gengið mikið á í hans vinnu sem skólaritari og tala nú ekki um þá áreitni sem gat fylgt starfinu en Jón Gunnar var ávallt Jón Gunnar Sveinsson ✝ Jón GunnarSveinsson fæddist 10. júlí 1959. Hann lést 28. mars 2020. Útför fór fram í kyrrþey. liðtækur til að vera manni til halds og trausts. Hann var einstaklega fróður og hafði mikið að gefa. Hafði einstak- lega góða yfirsýn yfir starfið, það er líka reynslan sem er ákveðin þröskuldur að því að gera starfið að sínu og það hafði Jón Gunnar svo sannarlega. Betri mann var hvergi að finna í starfi sem þessu. Sam- skipti hans við krakkana og tala ég nú ekki um hvað unglingarnir litu mikið upp til hans. Ekki skorti þá mikið þar sem hann hafði umsjón með búðinni sem var alfarið fyrir unglingastigið. Gerði það með ein- stakri prýði. Jón Gunnar, ég veit að þér líður vel og að þú hvílir í friði og að þú ert á góðum stað. Þú varst einstak- lega mikill baráttumaður og það var mikill töggur í þér. Þín verður sárt saknað og sendi ég hans nán- ustu mínar dýpstu samúðarkveðj- ur og munu þau öll vera í mínum bænum. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Guðmundur Árni Sigurðsson. Ég kynntist Jóni Gunnari fyrir allmörgum árum þegar við vorum á léttasta skeiði og lékum blak með sínu liðinu hvor. Hann með Fram og ég með Þrótti í Reykjavík. Þegar hann hætti keppni sneri hann sér að þjálfun. Hann þjálfaði stráka hjá Stjörnunni í Garðabæ og fylgdi þeim upp í meistaraflokk og lagði þar grunninn að liði sem síðar vann marga Íslands- og bikarmeistara- titla. Um tíma þjálfaði hann einnig unglingalandslið drengja. Jón Gunnar var virkur blakdóm- ari í mörg ár. Þegar erfitt var að fá dómara til þess að fara út á land til að dæma var oft hægt að leita til hans, þótt það kostaði hann stund- um vinnutap. Jón Gunnar sinnti einnig öðrum störfum fyrir Blak- sambandið. Hann var í stjórn þess í nokkur ár auk þess að vera í aga- nefnd allt til dauðadags. Kynni okkar Jóns Gunnars end- urnýjuðust þegar hann kom til starfa við Austurbæjarskólann. Þeir sem til þekkja vita að skóla- starfið er mjög fjölbreytt og oft þarf að bregðast fljótt við mismunandi aðstæðum. Það var alltaf gott að geta leitað til Jóns Gunnars þegar það þurfti að leysa hin aðskiljanleg- ustu verkefni. Jón Gunnar hafði gott lag á því að umgangast nemendur og naut þar meðal annars reynslu sinnar úr íþróttastarfinu. Hann var sann- gjarn í samskiptum sínum við krakkana en jafnframt fastur fyrir. Nemendur í grunnskóla sjá heiminn oft út frá eigin þröngu hagsmunum og eru ekki alltaf sann- gjarnir í dómum sínum um sam- ferðafólkið í skólunum. Það segir meira en mörg orð um það hvernig Jón Gunnar vann með nemendun- um að ég man ekki eftir því að þeir hafi verið ósáttir við störf hans öll þau ár sem hann vann í skólanum. Þegar það þurfti að rifja eitthvað upp varðandi skólastarfið eða átta sig á því í hvaða árgangi hinn eða þessi nemandinn hafði verið þá var Jón Gunnar yfirleitt með það á hreinu. Skólinn verður tómlegri nú þeg- ar Jón Gunnar hefur kvatt hann fyrir fullt og allt. Jason Ívarsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.