Morgunblaðið - 28.04.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.04.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2020 Á erfiðum tímum í sögu þjóðarinnar hefur lögreglan ætíð stigið fram til þjónustu og öryggisgæslu fyrir þjóð- ina. Skemmst er að minnast frammistöðu lögreglunnar á þeim dimmu mánuðum sem við upplifðum fyrstu mánuði og misseri eftir hrun þegar lögreglumenn og -konur lögðu líf sitt í hættu við að verja Alþingi og aðrar stofn- anir ríkisins. Man ekki eftir að þeim hafi verið þakkað að verðleikum af stjórnvöldum. Lögreglufólkið okkar gengur til starfa alla daga árið um kring hvernig sem á stendur. Þau leitast við að þjóna okkur sem best og tryggja öryggi okkar og nærumhverfis okk- ar á hverjum stað af kostgæfni og þekkingu. Málefni lögreglunnar hafa verið í nokkr- um ólestri undanfarin ár. Skipulagsbreyting- ar hafa verið tíðar og virðast oftast fram- kvæmdar án mikillar framsýnar, með lítilli yfirsýn og að mestu án heildarhugsunar. Ríkislögreglustjóraembættið var sett á fót og stækkaði og efldist óáreitt meðan önnur lögregluembætti áttu mörg hver og eiga enn í miklum erfiðleikum vegna vanfjármögnunar og mann- eklu. Lögregluskólinn var lagður af nánast á einni nóttu án þess að viðeigandi ný úrræði væru tilbúin. Varð þetta til þess að tvo heila ár- ganga vantar í lögregluliðið og mun taka nokkur ár að rétta þann halla af. Undanfarin tuttugu ár hefur fækkað mjög í lögregluliðinu og blasir það við til dæmis á höfuð- borgarsvæðinu þar sem 80 manns vantar í liðið til þess að sama þjón- usta sé veitt nú og var við síðustu aldamót. Síðan þá hefur íbúum fjölgað mjög, ferðamönnum hefur fjölgað þar til nú nýlega en vænta má að þeir snúi aftur að einhverju marki þegar farsóttinni linnir. Lögregluliðið er nú betur menntað en áður og betur þjálf- að. Nú er lögreglufólkið okkar í framlínunni við afar erfiðar aðstæður sem kalla á ár- vekni og mikið álag. Covid-fárið virðist vera í rénun í bili allavega en efnahagserfiðleik- arnir munu fylgja okkur næstu misseri. Þá eykst álag á lögregluliðið eins og áður hefur sýnt sig. Við þessar aðstæður hefur ríkisvaldið leyft sér að koma fram af fádæma hörku og ósanngirni í kjaraviðræðum sem nú standa yfir. Lögreglufólkið okkar hefur verið án samnings í heilt ár. Ríkið hefur ekki haft neitt nýtt fram að færa í samningaviðræð- unum og neitar að ræða álitamál sem lengi hafa beðið úrlausnar. Hugsanlega fer ríkis- stjórn Katrínar Jakobsdóttur svona fram gegn lögregluliðinu vegna þess að það hefur ekki verkfallsrétt. Samt hafa Vinstri græn lýst stuðningi við að lögreglufólk fái þann rétt. Eins og stundum áður fara ekki saman orð og efndir úr þeim herbúðum. Þessi framkoma ríkisstjórnar Katrínar Jakobs- dóttur í garð lögreglunnar er skammarleg. Dómsmálaráðherra virðist forðast að blanda sér í deiluna eða að hafa uppi minnstu til- burði til að stíga þar inn af nauðsynlegri festu og sýna áhuga og frumkvæði til að leysa málið. Miðflokkurinn hefur við hver fjárlög frá árinu 2017 lagt fram skýrar fjármagnaðar tillögur til að styrkja löggæslu einkum á landamærum svo og almenna löggæslu ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Þær góðu til- lögur hafa ekki fengið brautargengi hjá rík- isstjórnarmeirihlutanum fremur en tillögur flokksins í öðrum málaflokkum sem hafa verið jafn skynsamlegar og fjármagnaðar. Pistilritari er stoltur og glaður að hafa átt þess kost að vinna með lögreglunni í rúman áratug og vera þannig góðkunningi lögregl- unnar í besta skilningi þeirra orða. Á þeim tíma varð pistilritari vitni að fagmennsku lögregluliðsins, hugarró við erfiðar að- stæður, áræði, hugrekki og nauðsynlegri lip- urð í mannlegum samskiptum þegar fólk á um sárt að binda. Þess verður að krefjast að nú þegar verði farið að mæta lögreglu- mönnum á samningafundum af sanngirni og ábyrgð. Sá „góðkunningi“ sem hér ritar mun berjast fyrir bættum og réttlátum kjörum lögreglumanna af öllu afli þar til ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fer að sýna þá sann- girni sem þau sem gæta öryggis okkar eiga skilið. Eftir Þorstein Sæmundsson » Þessi framkoma ríkis- stjórnar Katrínar Jakobs- dóttur í garð lögreglunnar er skammarleg. Þorsteinn Sæmundsson „Góðkunningi lögreglunnar“ Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. thorsteinns@althingi.is „Ég er hér til að bjarga ykkur,“ sagði forseti Banda- ríkjanna á blaðamannafundi sem haldinn var í Hvíta húsinu vegna veirufaraldursins. Vin- sældir forsetans hafa aldrei verið meiri þrátt fyrir að stefni í að Bandaríkin komi verst út úr faraldrinum. Staða forsetans gæti þó breyst hratt til hins verra ef dauðsföllum vegna veirunnar fjölgar að mun og hagkerfið nær sér ekki á strik fram að forsetakosningum. Til þessa hefur forsetinn eignað sér þá efnahagslegu velgengni sem ríkti í landinu fyrir veirufaraldurinn. Kreppan mikla árið 1929 olli miklum breytingum á hinu póli- tíska landslagi í Bandaríkjunum. Þáverandi forseti, Hoover, sem var almennt tal- inn hafa verið aðgerðalítill í barátt- unni við kreppuna, tapaði kosning- unum með eftirminnilegum hætti árið 1932 fyrir Roosevelt, sem kom fram með skýra áætlun til að endur- reisa efnahaginn. Hugsanlega gæti sagan endurtekið sig á haustmánuð- um og nýr húsbóndi tekið við í Hvíta húsinu. Aðgerðaleysi ESB í veirufaraldrinum dýrkeypt Ég er ekki hér til að bjarga ykkur. Þessi orð gætu hæglega hafa fallið af munni Ursulu von der Leyen, forseta fram- kvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í miðjum faraldrinum. Á heimsráðstefnunni um efnahagsmál í Davos í Sviss sem haldin var í janúar, einum mánuði áður en fyrsta veirusmit- ið kom upp á Ítalíu, minntist von der Leyen ekki einu orði á veirufaraldurinn heldur ræddi iloftslagsmál. Þetta gerðist þrátt fyrir að á sömu ráðstefnu hefðu bandarískur farsóttar- sérfræðingur varað sterklega við því sem væri í vændum og hinn sama dag settu Kínverjar Wuhan-borg í sóttkví. Um kvöldið hélt svo Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO neyðar- fund um málið í Genf. Mál málanna hjá von der Leyen voru hins vegar loftslagsmálin. Hún hef- ur nú beðið Ítali afsökunar á að Evrópusam- bandið hafi ekki rétt fram hjálparhönd á neyðarstundu. Þrátt fyrir að hafa lifað af fjármálakreppuna 2008, flóttamannastrauminn til Evrópu og Brexit er ekki sjálfgefið að ESB lifi veirufarald- urinn af í núverandi mynd. Sambandið liggur undir ámæli fyrir aðgerðaleysi á mörgum svið- um í baráttunni við faraldurinn. Ljóst er að framkvæmdastjórnin svaf á verðinum. Það gæti reynst sambandinu dýrkeypt. Ítalir eru reiðir í garð sambandsins. Þar líta menn svo á að Rússar og Kínverjar hafi verið þeir einu sem komu þjóðinni til aðstoðar á hættutímum. Af- sökunarbeiðni ESB til Ítalíu dugir skammt. Óánægjan nær til fleiri ríkja. Alþjóðastjórn- málin standa á krossgötum vegna veirufarald- ursins. Evrópusambandið gæti þurft að berjast fyrir lífi sínu á komandi misserum. Á hliðarlín- unni fylgjast Rússar vel með framgangi mála. Eftir Birgi Þórarinsson » Þrátt fyrir að hafa lifað af fjármálakreppuna 2008, flóttamannastrauminn til Evr- ópu og Brexit er ekki sjálfgefið að ESB lifi veirufaraldurinn af í núverandi mynd. Birgir Þórarinsson Alþjóðastjórnmál á krossgötum Höfundur er þingmaður Miðflokksins. Mér til nokkurrar gleði horfi ég á hverju föstudagskvöldi á Gísla Martein Baldursson í þættinum „Í vikulokin“. Hann fær til sín góða gesti, en oftast voru þeir einsleitir eins og úr einkavinahópi hans. Þættirnir hafa breikkað og þróast í betri átt á nýju ári og gestirnir kom- ið meir úr afrekum líðandi stundar. Gísli Marteinn er glaðastur allra manna með smitandi hlátur og hlaðinn visku á öllum sviðum nútímans. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lék þar á gítar sinn og söng gleðisöngva, í þar síðasta þætti. Mik- ill undramaður Þórólfur. Nú gerðist það að Kári Stefánsson var mættur og sat þungbúinn eins og Óðinn með eitt auga og hafði heitið því að segja ekkert í þættinum. Ég er viss um að Kári var hvorki glaður né reiður þetta kvöld, hann var stað- ráðinn í að beita öllum sínum töfrum og nota vitið meira en hláturinn. Hann átti mögnuð innskot og sum þeirra komu eins og skratt- inn úr sauðarleggnum. Eitruðum örvum skaut hann miskunnarlaust til viðstaddra, sem gerði þáttinn að góðri veislu í stofunni heima. Með í þættinum voru stjörnur tvær, þær Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og kvikmyndastjarnan Hera Hilmarsdóttir. Þær stóðu sig auðvitað vel báðar tvær. Landbúnaðinn og starf bændanna hefur sjaldan borið þarna á góma en slíkur var málflutningur Kára að hann á lof fyrir inn- komu sína í hlátraskallaþáttinn. En hvað var ólíkindatólið, vísindamaðurinn og heimsborg- arinn Kári að segja þetta kvöld í skemmti- þætti? Í fyrsta lagi lagði hann ferða- málaráðherra til mögnuð úrræði til að endurvekja ferðaþjónustuna fyrr hér en í nokkru öðru landi. Um gróðurhús og ódýra orku Kári hóf innreið sína óvænt með eftirfarandi boðskap: „Við verðum að breyta hugmyndum okkar sem þjóð. Við erum ekki bara hluti af „glóbalíserurðum“ heimi. Við erum þjóð sem býr á eyju og verðum að geta fætt okk- ur þótt komi kreppa eða far- aldur. Við verðum að beina sjón- um okkar að landbúnaði á annan hátt en við höfum gert hingað til. Hvers vegna erum við að flytja inn allt það grænmeti sem ræktað er í gróðurhúsum er- lendis? Af hverju ræktum við það ekki sjálf hér? Það eina sem þarf til að rækta græn- meti í gróðurhúsum er ódýr orka. Flest bendir til að álfyrirtækin muni ekki nota alla þá orku sem þau hafa notað hingað til. Af hverju ekki að gefa orkuna til grænmetis- ræktunar í gróðurhúsin tímabundið til að skapa forskot.“ Þegar Þórdís Kolbrún fór að tala um að Ís- land væri lottóvinningur sagði hann eitthvað á þessa leið: „Ég mótmæli harðlega þessari samlíkingu. Ísland er eyja í Norður- Atlantshafi sem menn fluttu til fyrir ellefu hundruð árum og þúsund ár af þessum ellefu hundruð árum sultum við hér. Það var eng- inn landbúnaður sem skipti máli í landinu.“ Svo bætti hann við: „Við verðum að fara að yrkja okkar land öðruvísi en við höfum gert hingað til. Nýta landið öðruvísi en við höfum gert.“ Þetta er rétt hjá Kára. Kári leiði nefnd um landbúnað og matvælalandið Ísland Nú er það tillaga mín að nýr formaður Bændasamtakanna, Gunnar Þorgeirsson, leggi til við forystumenn ríkisstjórnarinnar að Kári verði settur fyrir nefnd um hvernig ber að efla Matvælalandið Ísland. Landbún- aðurinn er eitt af stærstu tækifærum þessa lands, sem á þúsund möguleika, ekki síst eft- ir covid-19-faraldurinn. Kári Stefánsson, sem best þekkir heiminn og vísindin, er heims- borgari, mikils metinn fræðimaður og sér gæði og heilbrigði matvælanna sem bændur bera á borð neytenda úr hreinni jörð. Íslensk landbúnaðarframleiðsla er af heilbrigðum bú- fénaði, þar sem öll lyfjanotkun er í lágmarki. Við eigum gullnámu matvælanna. Kári hefur talað. Hverjar eru nú ykkar til- lögur, Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benedikts- son og Sigurður Ingi Jóhannsson? Þið skuluð byrja einn fræðslufund með Kára. Af þeim fundi mynduð þið koma margfróðari um tækifæri landbúnaðarins og sjá matvæla- landið Ísland í nýju ljósi. Orð Sigurðar jarls, sem hann mælti fyrir þúsund árum, hafa gengið í endurnýjun líf- daga: „Engum manni er Kári líkur í hvatleik sínum og áræði.“ Kári Stefánsson boðar nýja landbúnaðarstefnu Eftir Guðna Ágústsson »Er það tillaga mín að nýr formaður Bændasamtak- anna, Gunnar Þorgeirsson, leggi til við forystumenn ríkisstjórn- arinnar að Kári verði settur fyr- ir nefnd um hvernig ber að efla Matvælalandið Ísland. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Morgunblaðið/Eggert Kári Stefánsson spurði: „Hvers vegna erum við að flytja inn allt það grænmeti sem ræktað er í gróðurhúsum erlendis? Af hverju ræktum við það ekki sjálf hér?“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.