Morgunblaðið - 28.04.2020, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2020
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
áberandi í hópi stærstu hluthafa og
fjórir stærstu sjóðir landsins skipa
sér á lista yfir sex stærstu hluthafa
fyrirtækisins. Stærsti hluthafinn er
þó raunar Par Capital, bandarískur
fjárfestingasjóður, og sjóðir á vegum
Stefnis, stærsta sjóðastýringarfyrir-
tækis landsins. Lífeyrissjóðir lands-
ins eru þekktir fyrir að fara sér hægt
þegar kemur að erfiðum fjárfesting-
arákvörðunum. Þrátt fyrir þá stað-
reynd hafa forsvarsmenn sjóða sem
eiga aðkomu að Icelandair Group
sagt í samtölum við Morgunblaðið að
þeir séu í startholunum þegar gögn
og tillögur berist frá félaginu. Þá sé
gengið út frá því að boðaðir verði
aukafundir á vettvangi stjórna sjóð-
anna, þar sem endanlegar ákvarðanir
um mögulega þátttöku yrðu teknar.
Flestir viðmælendur blaðsins segj-
ast búast við að hugmyndir þær sem
verða kynntar muni fela í sér hluta-
fjáraukningu sem nemi tugum millj-
arða króna. Þannig hefur einn heim-
ildarmaður innan úr sjóðunum sagt
að vænlegra sé í þeirra huga að
leggja félaginu til myndarlegt fjár-
magn í einni lotu sem geti tryggt við-
gang þess til lengri tíma, fremur en
að hætta á að innan fárra mánaða
þurfi að kalla eftir auknu fé úr sama
ranni.
Titringur vegna dreifibréfs
Nokkurs titrings gætti í liðinni
viku þegar fjármálaeftirlit Seðla-
banka Íslands sendi lífeyrissjóðunum
dreifibréf með ábendingum vegna út-
breiðslu kórónuveirunnar. Var það
einkum setning sem laut að fjárfest-
ingastarfsemi sjóðanna sem menn
hnutu um og töldu að fæli sér áskor-
un til sjóðanna um að hreyfa í engu
eignasöfn sín í óvissuástandinu sem
nú er uppi. Þar sagði m.a.:
„Fjármálaeftirlitið hvetur lífeyris-
sjóði og vörsluaðila séreignarsparn-
aðar til að íhuga vandlega, seinka eða
hætta við ákvarðanir eða viðskipti
sem geta stefnt í tvísýnu langtíma-
hagsmunum sjóðfélaga og lífeyris-
þega.“
Munu fulltrúar einhverra sjóða
hafa kallað eftir nánari útskýringum
á því hvað þessar ábendingar eða til-
mæli fælu í sér þar sem skilja mætti
þau á þann veg að þeir ættu að forð-
ast í lengstu lög að taka ákvarðanir á
borð þær sem leitt gætu til þátttöku í
hlutafjáraukningu félags eins og Ice-
landair Group. Heimildir Morgun-
blaðsins herma að öll tvímæli hafi
verið tekin af um það af hálfu Seðla-
bankans að það hafi ekki verið inntak
tilmælanna þótt skýra hefði mátt bet-
ur það sem þarna var átt við.
Margir lausir endar
Fram hefur komið að fjárhagsleg
endurskipulagning Icelandair sé háð
endurskoðun á kjarasamningum,
m.a. flugmanna og flugfreyja. Enn
hefur ekki fengist niðurstaða í við-
ræður um þau mál. Ljóst er að félag-
ið mun ráðast í viðamiklar uppsagnir
fyrir mánaðamót en það hefur dregið
að útfæra þær aðgerðir í von um að
ríkisstjórnin muni kynna þriðja að-
gerðapakka sinn í dag eða á morgun.
Opnir fyrir stórri innspýtingu
Morgunblaðið/Eggert
Keflavíkurflugvöllur Boeing 757-200-þota Icelandair, Katla, er ein margra sem
nú standa óhreyfðar á vellinum og bíða þess að hefja sig til flugs á nýjan leik.
Hluthafar Icelandair bíða tillagna frá félaginu Lífeyrissjóðir og aðrir fjárfestar í startholunum að
fara yfir nýja rekstraráætlun frá félaginu Búast við beiðni um tugmilljarða hlutafjárinnspýtingu
Icelandair Group
Hluthafar með meira en 1% hlut
Par Investment Partners 13,50%
Sjóðir í stýringu hjá Stefni 12,25%
Lífeyrissj. verslunarmanna 11,81%
Lífeyrissj. starfsm. ríkisins 7,25%
Gildi lífeyrissjóður 7,24%
Birta lífeyrissjóður 7,07%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 2,84%
Sjóður í stýringu Landsbréfa 2,14%
Brú lífeyrissjóður 1,77%
Sólvöllur ehf. 1,70%
Almenni lífeyrissjóðurinn 1,53%
Stapi lífeyrissjóður 1,36%
Vænting ehf. 1,32%
Einstaklingur 1,23%
Heimild: Icelandair Group
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Stórir hluthafar í Icelandair Group
eru opnir fyrir þeirri hugmynd að
leggja fyrirtækinu til aukið hlutafé á
komandi vikum. Bogi Nils Bogason,
forstjóri félagsins, hefur sagt að slík
innspýting sé félaginu nauðsynleg á
komandi vikum enda hefur lausafjár-
staða félagsins versnað til muna frá
því að millilandaflug í Evrópu og til
Bandaríkjanna lagðist nær alfarið af
í síðari hluta marsmánaðar. Ice-
landair Group mun birta þriggja
mánaða uppgjör sitt á mánudaginn
næsta en áður en að því kemur
standa vonir til þess að félagið færist
nær því að tryggja innspýtingu nýs
hlutafjár.
Enn sem komið er hafa núverandi
hluthafar félagsins ekki fengið kynn-
ingu á þeim leiðum sem forsvars-
menn þess telja færar til þess að
koma því í var og í átt að uppbygg-
ingu að nýju. Þrátt fyrir það herma
heimildir Morgunblaðsins að samtöl
milli þessara aðila hafi nú þegar átt
sér stað eftir óformlegum leiðum og
að þau hafi verið á almennum nótum
til að kanna mögulegan jarðveg fyrir
hlutafjáraukningu. Þá herma heim-
ildir blaðsins að hluthafar vænti þess
að fá einhverja mynd af endurreisn-
artillögunum í lok vikunnar eða byrj-
un þeirrar næstu. Lífeyrissjóðir eru
þessara aðgerða. Í bréfinu kemur
fram að aðgerðirnar hafi ekki áhrif
á starfsfólk Valitors á Íslandi. Þá
segir að komi til þessara breytinga
muni félagið hjálpa viðskiptavinum
sínum í löndunum að finna aðrar
lausnir. Á meðal viðskiptavina eru
skemmtigarðurinn Tívolí, tískukeðj-
an Zara og kvikmyndahúsakeðjan
Nordisk Film Biografer.
60 sagt upp í janúar
Þegar Valitor tilkynnti um hag-
ræðingaraðgerðir í janúar sl. var 51
starfsmanni Valitors í Bretlandi og
í Danmörku sagt upp störfum, en
til viðbótar misstu níu starfsmenn á
Íslandi vinnuna.
Mikill taprekstur hefur verið á
erlendri starfsemi félagsins.
Eins og heimildir Morgunblaðs-
ins hermdu í frétt sem birt var í
byrjun þessa árs var reynt án ár-
angurs að selja erlendu starfsemina
áður en gripið var til hagræðingar-
aðgerða.
Forstjórinn hætti
Valitor hefur verið í söluferli síð-
ustu misseri, að heild eða að hluta.
Viðar Þorkelsson forstjóri lét ný-
verið af störfum, en við starfi hans
tók Herdís Fjeldsted, þáverandi
stjórnarformaður félagsins.
tobj@mbl.is
Greiðslumiðlunarfyrirtækið Valitor
hefur tilkynnt að í undirbúningi sé
að leggja niður alrásarþjónustu (e.
Omni Channel) í Danmörku og
Bretlandi og að allt að 52 starfs-
menn eigi á hættu að missa vinnu
sína. Þetta kemur fram í bréfi sem
sent var til starfsmanna fyrirtækis-
ins í gær og Morgunblaðið hefur
undir höndum.
Alrásarjónusta hefur samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins verið
leiðandi vara sem Valitor hefur
boðið á þessum mörkuðum.
40 eiga á hættu að missa vinnuna
í Danmörku og 12 í Bretlandi vegna
Hætta þjónustu í Danmörku og Bretlandi
Allt að 52 gætu misst vinnuna
Greiðslur Valitor reyndi að selja erlenda starfsemi, án árangurs.
28. apríl 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 146.96
Sterlingspund 181.46
Kanadadalur 104.53
Dönsk króna 21.265
Norsk króna 13.818
Sænsk króna 14.412
Svissn. franki 150.77
Japanskt jen 1.3657
SDR 199.91
Evra 158.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.4186
Hrávöruverð
Gull 1727.25 ($/únsa)
Ál 1473.0 ($/tonn) LME
Hráolía 21.93 ($/fatið) Brent
Viðskipti