Morgunblaðið - 28.04.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2020
SAMNINGAR VIÐ
ÖLL TRYGGINGAFÉLÖG
• Fagleg þjónusta
• Vönduð vinnubrögð
• Frítt tjónamat
Hvaleyrabraut 2, 220 Hafnarfirði | Sími: 547 0330 | hsretting@hsretting.is | hsretting.is
HSRETTING.IS
547 0330
LÁTTU OKKUR
UM MÁLIÐ
• BÍLARÉTTINGAR
• PLASTVIÐGERÐIR
• SPRAUTUN
Hægt er að bóka tjónaskoðun hjá okkur á netinu
40 ára Ísgerður er
Reykvíkingur, ólst upp í
Vesturbænum en líka í
Los Angeles. Hún býr í
101. Ísgerður er leikari
að mennt frá Arts
Educational í London,
hún sér um Krakka-
fréttir á Rúv og er sjálfstætt starfandi
leikkona.
Systir: Gunnhildur Helga, f. 1978.
Foreldrar: Gunnar Hrafn Birgisson, f.
1957, sálfræðingur og forstöðumaður
Sálfræðiráðgjafar háskólanema við HÍ,
og Hildur Halldóra Karlsdóttir, f. 1959,
bókasafnsfræðingur. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Ísgerður Elfa
Gunnarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú veist eiginlega ekki í hvorn fót-
inn þú átt að stíga þegar vinir þínir lýsa
skoðunum sínum á ákveðnu máli. Fáðu ein-
hvern sem þú treystir til að koma þér í sam-
band við raunveruleikann.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er ekkert athugavert við leitina
að kyrrð og ró – þú þarft ekki að vera með
samviskubit. Taktu þér fimmtán mínútur til
að reyna að fá yfirsýn yfir líf þitt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það eru einhver atriði sem þú
þarft að fara betur í gegnum áður en þú
tekst á við ný verkefni. Láttu það ekki valda
þér vonbrigðum heldur vera þér lærdómur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ef aðstæður valda þér óþægindum
skaltu endilega endurskoða þær og nú með
hjartanu en ekki skynseminni. Annars fer
allt úr böndunum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú er ekki rétti tíminn til þess að
hrinda úr vör verkefni sem þú hefur lengi
borið fyrir brjósti. Skeyttu ekki skapi þínu á
saklausum samstarfsmönnum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þegar þú gerir þitt besta þá er það
ekki bara nóg heldur miklu betra en það
sem allir aðrir gera. Nýttu þér þetta eins og
þú getur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér gefst tækifæri til þess að lagfæra
náið samband eða breyta samskiptum til
hins betra. Ekki forðast erfið mál sem valda
þér áhyggjum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Leiktu þér og losaðu þig við
sjálfsgagnrýni, nú er rétti tíminn til þess að
skuldbinda sig til þess að gera fáein mistök.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er ekki þess virði að vera
að pirra sig út í vini sína í dag. Ef þú ert með
á hreinu hvað þú vilt laga aðrir sig laglega
að þínum ráðagerðum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gefðu þér tíma til að hreinsa í
geymslunni og losa þig við hluti sem nýtast
þér ekki lengur. Njóttu ávaxta erfiðis þíns.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það eru margir lausir endar sem
þú þarft að hnýta áður en þú getur haldið
áfram. Settu skoðanir þínar fram með
glöggum hætti.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Taktu enga áhættu. Ef þú ert
óánægður með eitthvað skaltu leita þér
hjálpar, hvar sem hana er að finna.
G
ylfi Jónsson fæddist 28.
apríl 1945 í Helga-
magrastræti 13 á Akur-
eyri. Hann ólst upp á
Ytri-Brekkunni og bjó
þar á meðan hann dvaldi á Akureyri.
„Ytri-Brekkan á Akureyri var ein-
staklega þægilegur staður til upp-
vaxtar,“ segir Gylfi. „Skíðabrekk-
urnar voru góðar við klappirnar utan
við býlið Staðarhól. Hamarstígurinn
var tilvalinn fyrir sleðaferðir, sem
stundum enduðu í garðinum hjá
Ottested við Oddeyrargötuna. Einn
af stóru þáttunum í uppvexti mínum
var sunnudagaskólinn í Akureyrar-
kirkju. Sr. Pétur Sigurgeirsson var
frumkvöðull í að hafa sunnudaga-
skóla. Hugmyndafræði hans var al-
veg mögnuð.“ Eftir fermingu tók
Gylfi virkan þátt í starfi Æskulýðs-
félags Akureyrarkirkju. „Þar liðu
góð fjögur ár við leiðsögn sr. Péturs
og sr. Birgis Snæbjörnssonar. Af
þessum árum mun ég hafa verið for-
maður tvö síðustu árin.“
Skólaganga Gylfa hófst í Barna-
skóla Akureyrar. „Minn fyrsti kenn-
ari þar var öðlingurinn Helgi Ólafs-
son. Hvern morgun kom hann í
sínum teinóttu jakkafötum, í ljósri
skyrtu með bindi. Aldrei man ég eftir
því að hann brygði út af sínu hæga
fasi eða byrsti sig. Helgi var ein-
staklega góður skriftarkennari og á
ég honum að þakka að geta skrifað
nokkuð læsilega skrift. Helgi var far-
inn að reskjast og fyrir kom að hann
var veikur. Þá birtist á ganginum
konan með brosið sem ekkert virtist
geta þurrkað út. Það var Jenna Jens-
dóttir. Hún var líka, eins og Helgi,
einstaklega ljúfur kennari.
Árin þrjú í Gagnfræðaskólanum
liðu átakalítil. Þar var Jóhann Frí-
mann skólastjóri og stjórnaði morg-
unstundum og í lok þeirra var al-
mennur söngur undir stjórn Áskels
Jónssonar. Mikið eigum við nem-
endur þessara ára Áskeli mikið að
þakka þessa tónlistarmótun.“
Menntaskólaárin voru einnig ljúf-
ur tími hjá Gylfa. „Árin þar mótuðust
fyrst og fremst af einstakri skóla-
stjórn Þórarins Björnssonar. Fyrsta
árið vorum við sem komum úr Gagg-
anum við nám í kjallarastofu undir
kennarastofunni. Á þessum árum
háttaði svo til að áður en við færum í
6. bekk skyldi farið í ferðalag vorið
áður. Vegna heimsóknar frá mennta-
skóla vinabæjar Akureyrar árið áður
og sem auðvitað nefndu heimboð er
þau kvöddu, þá fannst okkur bekkj-
arfélögunum tilvalið að þiggja boð
menntaskólans í Vesterås.
Eftir stúdentspróf vorið 1965
skráði ég mig í guðfræðideild HÍ. En
að tillögu væntanlegs tengdaföður,
sr. Sigurðar Guðmundssonar, ákvað
ég að fara í stúdentadeild Kenn-
araskóla Íslands sem þá var eins
vetrar nám. Reyndist sú ráðgjöf vel
því bæði kenndi ég með námi nær öll
mín ár í guðfræðinni og eftir að út í
prestsskap var komið. Í guð-
fræðideildinni tóku félagsmál drjúg-
an tíma þar sem ég var formaður fé-
lags guðfræðinema einn vetur og
síðan formaður Stúdentaráðs.“
Gylfi vígðist á þjóðhátíðardaginn
árið 1973 og fór þá fyrst norður í
Þingeyjarsýslu, því næst út til Sví-
þjóðar þar sem hann starfaði sem
prestur innflytjenda og svo austur á
Höfn í Hornafirði þar sem hann var í
átta ár. „Þar kom ég að stofnun
Lionsklúbbs og var fyrsti formaður
hans og árið 1979-80 var ég umdæm-
isstjóri Lionshreyfingarinnar í um-
dæmi B.“ Árið 1982 tók Gylfi við
rektorsstöðu í Skálholti og var þar í
þrjú ár. „Þar stofnaði ég líka Lions-
klúbb og var fyrsti formaður hans.
Þá lá leiðin til höfuðborgarinnar þar
sem ég var m.a. prestur í Seljakirkju,
á Elliheimilinu Grund og í Grensás-
kirkju.
Við fluttum síðan norður í land
aldamótaárið þar sem Solveig Lára
varð sóknarprestur á Möðruvöllum í
Hörgárdal og ég héraðsprestur og
heimilisprestur á Hlíð. Þar áttum við
dásamleg 12 ár, en árið 2012 flutt-
umst við til Hóla í Hjaltadal þar sem
Solveig Lára varð vígslubiskup á
Hólum. Hér höfum við síðan búið í
bráðum átta ár og hef ég verið við af-
leysingar á Hofsósi og Sauðárkróki
af og til.“
Gylfi hefur alla tíð haft mikinn
áhuga á tónlist og á yngri árum ann-
aðist hann tónlist í öllu barnastarfi
sem hann tók þátt í og sumarbúðum,
en Gylfi spilar á píanó, orgel og gítar.
„Ég fór síðan að lesa mér til um áhrif
tónlistar og tónlistarmeðferð og hef
undanfarin ár verið mikið að syngja
með öldruðum. Þegar við vorum á
Möðruvöllum sá ég um tónlist á öldr-
unarheimili Akureyrarbæjar en
núna tvö síðustu árin hef ég verið
Sr. Gylfi Jónsson – 75 ára
Hjónin Prestarnir Gylfi og Solveig Lára fyrir utan Hallgrímskirkju við
biskupsvígslu Agnesar M. Sigurðardóttur árið 2012.
Tónlistin hluti af ævistarfinu
Feðgarnir Á ferðalagi um Bandaríkin, en Jón Gunnar býr í New Orleans.
30 ára Hólmar ólst
upp á Djúpavogi og
Höfn í Hornafirði og
býr á Höfn. Hann er
stúdent frá Fram-
haldsskólanum í Aust-
ur-Skaftafellssýslu og
er trillusjómaður á
Huldu SF-197.
Maki: Hafrún Eiríksdóttir, f. 1988, rafvirki
hjá Rafhorni.
Börn: Bryndís Björk, f. 2011, Sigurbjörn
Ívar, f. 2014, og Nökkvi Þór, f. 2019.
Foreldrar: Unnsteinn Þráinsson, f. 1969,
og Bryndís Björk Hólmarsdóttir, f. 1968,
útgerðarmenn. Þau eru búsett á Höfn.
Hólmar Hallur
Unnsteinsson
Til hamingju með daginn
Höfn í Hornafirði Nökkvi Þór
Hólmarsson fæddist 3. maí
2019 kl. 00.52 á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað.
Hann vó 3.540 g og var 52 cm
langur. Foreldrar hans eru
Hólmar Hallur Unnsteinsson
og Hafrún Eiríksdóttir.
Nýr borgari