Morgunblaðið - 28.04.2020, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2020
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Einn þekktasti rithöfundur Norður-
landa, Per Olov Enquist, er látinn
85 ára að aldri. Eftirlifandi eigin-
kona hans, Gunilla Thorgren, segir
hann hafa sofn-
að svefninum
langa á laugar-
dagskvöld eftir
langvinn veik-
indi. Enquist
fæddist í
Hjoggböle í N-
Svíþjóð 1934 og
ólst upp hjá
einstæðri móð-
ur. Á æskuár-
um þótti hann efnilegur hástökkv-
ari, en hæst stökk hann 1,97 m.
Hann nam bókmenntasögu við
Háskólann í Uppsölum. Að námi
loknu starfaði hann sem blaðamað-
ur og sendi árið 1961 frá sér frum-
raun sína Kristallögat, sem fór ekki
hátt.
Enquist sló ekki í gegn fyrr en
með þriðju skáldsögu sinni, Magn-
etisörens femte vinter, sem út kom
1964 og þýdd hefur verið á 26
tungumál. Sögulega skáldsagan
Legionärerna: En roman om balt-
utlämningen kom honum síðan á
heimskortið en fyrir hana hlaut
hann Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs 1969, aðeins 35 ára að
aldri. Eftir Enquist liggja á fjórða
tug verka; leikrit, kvikmynda-
handrit og skáldsögur sem komið
hafa út í um 40 löndum. Hann skrif-
aði handritið að Óskarsverð-
launamyndinni Palla sigurvegara
(1987) í samvinnu við Bjarne Reuter
og leikstjórann Bille August.
Enquist hlaut mörg virt verðlaun
á ferlinum, þeirra á meðal sænsku
bókmenntaverðlaunin, August-
prisad, tvisvar. Í fyrra skiptið 1999
fyrir Livläkarens besök, sem fjallar
um Johann Friedrich Struensee, og
seinna skiptið 2008 fyrir skáldævi-
söguna Ett annat liv þar sem hann
fjallar um baráttu sína við Bakkus.
Meðal þeirra verka Enquists sem
þýdd hafa verið á íslensku eru
skáldsagan Líflæknirinn og leik-
ritið Síðasta stund gaupunnar. Í
andlátsfréttum norrænu miðlanna
er á það bent að Enquist hafi verið
meistari undirtextans. „Með ein-
stökum gáfum sínum gat hann
greint samfélagið, en ávallt á skáld-
legan hátt,“ skrifar bókmennta-
gagnrýnandinn Thomas Bredsdorff
í Politiken. Bókmenntaverðlaun
sem kennd eru við Enquist hafa
verið veitt frá því hann varð sjötug-
ur. Jón Kalman Stefánsson hlaut
þau 2011 fyrir skáldsöguna Himna-
ríki og helvíti.
Enquist látinn
Meistari undirtextans Hlaut Bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs 35 ára
Það er erfitt að láta tilfinningarnar ekki taka yfir
við að syngja þetta,“ sagði Isobel Leonard eftir að
hafa flutt „Somewhere“ eftir Leonard Bernstein
án undirleiks í beinni að heiman frá sér í fjögurra
klukkustunda langri tónlistarveislu Metropolitan-
óperunnar á laugardaginn var. Í textanum er vís-
að til nýs og fagurs lífs í framtíðinni og vitaskuld
átti Leopnard við líf án kórónuveirufaraldursins
sem varð þess valdandi að blásið var til þessarar
áhrifamiklu tónlistarveislu í beinni útsendingu á
netinu. Milljónir tónlistarunnenda fylgdust um
helgina (hægt var að horfa á streymið til sunnu-
dagskvölds) með Yannick Nézet-Séguin stjórna
hljómsveit og kór óperuhússins í forleikjum og
kórverkum þar sem hver og einn lék og söng
heima hjá sér. Þeir hlutar útsendingarinnar voru
ekki í beinni útsendingu, heldur settir saman áð-
ur, svo afar vel tókst til. Hins vegar sungu helstu
stjörnur hússins, yfir fjörutíu söngvarar, í beinni
víða að, frá heimilum sínum úti um löndin.
Metropolitan-óperunni var lokað vegna farald-
ursins snemma í mars og enn er óljóst hvenær
starfsemi getur hafist að nýju. Stjórnendur húss-
ins segja ljóst að tapið nemi tugum milljóna dala
og gátu áhorfendur styrkt starfsemina með frjáls-
um framlögum meðan horft var en allir sem komu
fram gáfu vinnu sína, þrátt fyrir að laun allra hafi
verið lækkuð eða samningum sagt upp – hins veg-
ar mun húsið halda áfram að greiða fulla sjúkra-
tryggingu starfsmanna.
Stemningin í útsendingunni var afslöppuð.
Ólíkt því sem þekkist á hefðbundnum gala-
tónleikum óperuhússins, þar sem listamenn sem
gestir eru prúðbúnir, sungu sumir á gallabuxum
og bol, einhverjir í eldhúsinu heima hjá sér, og
nokkur hjón sem syngja bæði tóku gamansama
dúetta. Líka var stutt í sorgina og einn af há-
punktum útsendingarinnar var fagur flutningur
víólusveitar óperunnar og söngkonunnar Joyce
DiDonato á „Ombra mai fù“ eftir Händel í minn-
ingu eins víóluleikara hljómsveitarinnar, Vincents
Liontis, sem lést á dögunum af völdum covid-19.
Sumir söngvaranna völdu að flytja vinsælar arí-
ur, aðrir minna þekkt sönglög. Einhverjir höfðu
undirleikara með í stofunni eða æfingasalnum,
aðrir léku sjálfir á píanó með söngnum, eða sungu
eins og Leonard án undirleiks. Sent var út gegn-
um síma eða spjaldtölvur og útkoman yfirleitt
furðu góð og hnökralítil. efi@mbl.is
Hjón Sópransöngkonan Aleksandra Kurzak og tenórinn Roberto Alagna
fluttu hluta Ástardrykkjar Donizettis í stofunni heima hjá sér í Frakklandi.
Baritónsöngvarinn Jonas Kaufmann söng listavel aríuna „Rachel, quand
du Seigneur“ eftir Fromental Halévy úr óperunni La Juive.
Yfir 40 söngvarar, kór
og hljómsveit komu fram
í streymi Met-óperunnar
Gaman Diana Damrau og Nicolas Testé sungu
dúett úr Don Giovanni í eldhúsinu heima hjá sér.
Óperustjörnurnar sungu heima
Tregaljóð Víólusveit óperunnar og Joyce DiDonato fluttu verk eftir Händel í minningu látins félaga.
Stjórnendur dönsku bókaversl-
ananna Arnold Busck sendu í gær
út tilkynningu þar sem þeir sögðu
að öllum 29 verslunum keðjunnar
yrði lokað og færi fyrirtækið í
gjaldþrotameðferð. Í tilkynning-
unni segir að fé verslananna sé
uppurið og lokanir undanfarinna
vikna af völdum covid-19-
faraldursins hafi orðið þess
valdandi að ekki hafi lengur verið
gerlegt að halda fyrirtækinu gang-
andi.
„Við höfum gert allt sem við höf-
um getað til að halda fyrirtækinu á
floti en því miður hefur það ekki
reynst gerlegt,“ segir í tilkynning-
unni.
Verslanir Arnolds Buscks hafa
um langt árabil verið fastur við-
komustaður fjölmargra Íslendinga,
enda úrval bóka afar gott og þjón-
ustan góð. Til að mynda hefur
verslunin við Sívalaturn notið mik-
illa vinsælda en þar hefur til dæmis
verið lögð mikil áhersla á alþjóð-
legar bækur um myndlist, hönnun
og kvikmyndir, auk skáldskapar.
Verslanir Arnolds Buscks í Dan-
mörku hafa verið alveg lokaðar eða
að hluta í rúman mánuð og starfs-
menn hafa á meðan verið heima.
Í tilkynningunni segir að stjórn-
endur bókakeðjunnar hafi sótt um
stuðning frá hinu opinbera til að
aðstoða við að standa skil á launum
og öðrum gjöldum meðan á til-
skyldum lokunum hefur staðið, en
mjög langan tíma hafi tekið að fá
umsóknina afgreidda. Nú hefur
verið leyft að opna verslanir aftur
en stjórnendurnir segja það of
seint, staðan sé það slæm. Það sé
með sorg í hjarta sem þeir neyðist
því til að setja bókaverslanakeðj-
una í gjaldþrotameðferð.
Lokað Hin þekkta verslun Arnold Busck-
keðjunnar við Købmagergade í Kaup-
mannahöfn, við hliðina á Gamla-Garði.
Bókaverslunum
Arnolds Buscks í
Danmörku lokað
Per Olov Enquist.