Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.08.2020, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 27.08.2020, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 8 6 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 ALVÖRU MATUR Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM Hópur fjallahjólafólks er nú í leiðangri yfir hálendi Íslands, frá austri til vesturs. Lagt var upp frá Dalatanga og er ætlunin að ljúka leiðangrinum við Látrabjarg. Þegar náðist til hópsins í gær var hann norðan við Langjökul. Eins og sjá má hafa aðstæður verið nokkuð breytilegar. Hér er fjallið Herðubreið í baksýn. MYND/BURKARD/ROSEN COVID-19 Hjartaþræðingum á Land- spítalanum fækkaði um 11,9 pró- sent á tímabilinu frá janúar til júní á þessu ári miðað við sama tímabil í fyrra. Kransæðavíkkunum fækk- aði um 14,3 prósent á sama tímabili. Karl Konráð Andersen, yfirlæknir á Hjartagátt Landspítala, segir skýr- inguna meðal annars felast í því að sjúklingar veigri sér við að leita á bráðamóttöku vegna einkenna sinna. „Á COVID-tímanum í vor varð vart við umtalsverða fækkun í komum á bráðamóttöku vegna hjartaáfalla um allan heim, allt að 40 prósentum. Það er talið að þetta stafi ekki af raunverulegri fækkun tilfella,“ segir hann. „Þegar frá líður hafa þessir sjúkl- ingar verið að greinast og vísbend- ingar eru um að þeir komi seint til læknis,“ segir Karl og bætir við að tilfelli á Íslandi séu hins vegar allt of fá til að hægt sé að fullyrða um að slíkt eigi við hér. „Hins vegar er almenna viðhorfið og tilmæli alþjóðlegra hjartalækna- samtaka að þó að við þurfum að viðhafa „social distancing“ eigi það alls ekki að leiða til „medical dist- ancing“. Með öðrum orðum, sjúkl- ingar með einkenni um hjartaáföll eiga að leita sér aðstoðar á bráða- móttöku þegar grunur er um bráð hjartavandamál,“ segir Karl. Komum á göngudeildir Land- spítalans fækkaði almennt um 15-20 prósent á fyrstu sjö mánuðum ársins sé miðað við sama tímabil í fyrra. Á móti kemur aukning í öðrum samskiptum við sjúklinga, svo sem samskiptum í gegnum meðferðarsímtöl og tölvusam- skipti. Komum á bráðadeild í Foss- vogi fækkaði um 15 prósent á sama tímabili. Jón Magnús Kristjánsson, yfir- læknir bráðalækninga á Bráðamót- töku Landspítala, segir fækkunina sem hefur orðið á heildarfjölda koma á bráðadeild í Fossvogi megi einkum rekja til færri koma á tíma- bilinu mars til maí vegna kóróna- veirufaraldursins. Komufjöldi í júlí hafi verið nánast sá sami í ár og í fyrra. „Mesta fækkunin var í komum vegna minni háttar slysa og veik- inda en nánast sami fjöldi ein- staklinga hefur lagst inn á spítalann eftir komu á bráðadeild fyrstu sjö mánuði 2020 eins og á sama tíma- bili í fyrra,“ segir Jón Magnús. – bdj Færri leitað á sjúkrahús í faraldrinum Hjartaþræðingum hefur fækkað um tæp tólf pró- sent og kransæðavíkkunum um rúm 14 prósent það sem af er þessu ári. Sjúklingar veigra sér við að leita á bráðamóttöku vegna einkenna hjartaáfalla. Þegar frá líður hafa þessir sjúklingar verið að greinast og vísbend- ingar eru um að þeir komi seint til læknis. Karl Konráð  Andersen, yfir- læknir á Hjarta- gátt Landspítala VIÐSKIPTI Ásgeir Jónsson seðla- bankastjóri segir hækkun atvinnu- leysisbóta draga úr eftirspurn eftir störfum og geti leitt til þess að atvinnuleysi verði langvarandi. „Hin almenna regla er sú að hækk- un atvinnuleysisbóta dregur úr eftir- spurn eftir störfum – miðað við hvað bætur eru nú háar bendir ekkert til annars en það gerist nú. Slík aðgerð getur mögulega leitt til að atvinnu- leysi verði langvarandi,“ segir Ásgeir. Stéttarfélög og þingmenn hafa kallað eftir hækkun bóta til að bregðast við auknu atvinnuleysi og í nýju frumvarpi á að lengja rétt til tekjutengdra atvinnuleysisbóta. Þá segist hann hafa verulegar áhyggjur af því að margt ungt fólk nái ekki að komast inn á vinnu- markaðinn og byggja upp starfs- feril vegna þess að fyrstu skrefin á vinnumarkaði skila litlum peninga- legum ávinningi. – hae / sjá síðu 10 Hækkun bóta dragi úr eftirspurn eftir störfum

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.