Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.08.2020, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 27.08.2020, Qupperneq 8
Sparaðu fullt fullt fullt! Vertu með AlltSaman hjá Nova. Slepptu öllum óþarfa og sparaðu allt að 204.000 kr. á ári! Nova.is/AlltSaman Samanburður á heimapökkum með 5 farsímum með 100 GB netnotkun og AlltSaman hjá Nova – ótakmarkað net í allt! Farsíminn fylgir og þú sparar HEILBRIGÐISMÁL „Ekkert okkar er óhult fyrr en við erum öll óhult,“ segir Frederik Kristensen, aðstoðar- forstjóri CEPI, í viðtali við Frétta- blaðið. Þetta er megináhersla COVAX, samstarfsverkefnis Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar (WHO), CEPI og Gavi, sem í grunninn snýst um að tryggja bóluefni fyrir alla. Ísland er meðal 80 þjóða sem styðja við verkefnið en íslensk stjórnvöld hafa lofað að leggja fram hálfan milljarð króna í fjárframlagi til COVAX-verkefnisins. Þá fara 250 milljónir beint til CEPI, sem sam- svarar 1,9 milljónum dala. „COVAX er brautryðjandi verk- efnisins og mun hafa áhrif á hvernig við tökumst á við næsta heimsfar- aldur,“ segir Frederik. Vegna smithættunnar í kóróna- veirufaraldrinum sé það í hag allra þjóða að vinna saman, í stað þess að einblína einungis á eigið land. Pólitísk átök við Bandaríkin Miserfitt hefur verið að fá alla til að taka þátt, en WHO hefur dregist inn í pólitísk átök eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði að stöðva varanlega allar fjárveitingar til stofnunarinnar. Útganga Banda- ríkjanna á að taka gildi þann 6. júlí árið 2021 og gæti því ný ríkisstjórn snúið ákvörðun Donalds Trump við. Fjármagn frá Bandaríkjunum gæti gert gæfumuninn á lokasprett- inum. „Ég myndi segja að það væri í hag Bandaríkjanna að taka þátt í COVAX-verkefninu. Bæði eykur það líkur á að þau fái aðgang að bóluefni og gefur þeim færi á að ná stjórn á faraldrinum alls staðar. Þannig geta þau snúið efnahagskerfi sínu aftur á rétta braut. Sama hver er við stjórn- völinn þá myndi ég fagna aðkomu Bandaríkjanna,“ segir Frederik. „Það er ákveðin tilhneiging meðal þjóðarleiðtoga í svona aðstæðum að leggja áherslu á frumskyldu sína, sem er að hugsa um sitt fólk og sína kjósendur,“ segir hann og áréttar að málið sé ekki svo einfalt. Alltaf sé hætta á að veiran komi aftur inn í landið, sé ekki búið að uppræta hana í öllum löndum. Einnig sé þetta í hag efnahagslífs- ins; tannhjól hagkerfisins geta ekki farið að snúast af alvöru fyrr en búið er að stöðva faraldurinn. Rannsóknir Oxford lofi góðu Fyrsti hluti verkefnisins er að þróa bóluefni. CEPI styður við og fjár- magnar rannsóknir við níu stofn- anir og háskóla í þróun bóluefna og eru sjö af þeim nú þegar í klínískum prófunum. Aðspurður segir Frederik of snemmt að segja til um hvaða bólu- efni muni standa uppi sem sigur- vegari, en að rannsóknaniðurstöður hjá háskólanum í Oxford lofi góðu. „Þróun bóluefna er ákveðin áhættufjárfesting. Þó að efni sé á þriðja stigi klínískrar prófunar er enn mikil hætta á að það beri engan árangur,“ segir hann. Því sé nauð- synlegt að fá inn meira fjármagn til að gefa vísindasamfélaginu rými til að mistakast og prófa aftur. CEPI þarf að tryggja 2,1 milljarð dala í rannsóknir og þróun á bólu- efni og hefur hingað til safnað 1,4 milljörðum. Heilbrigðisstarfsfólk í forgangi Þegar bóluefni fyrir COVID-19 er tilbúið verða næstu skref fjölda- framleiðsla og dreifing. Þau lönd sem taka þátt í verkefninu munu fá bóluefni fyrir fimmtung þjóðar- innar til að byrja með. En hverjir verða í forgangi? „Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unin hefur ráðlagt þjóðum að setja heilbrigðisstarfsfólk í forgang, ásamt þeim sem eru í áhættuhópi. En þegar allt kemur til alls þarf hvert og eitt land að taka þessa ákvörðun. Enginn er að fara að ákveða fyrir hönd Íslands hvernig bóluefninu verður útdeilt. Íslenska ríkisstjórnin þarf að taka þessa- ákvörðun, en almennt fara f lestar þjóðir eftir ráðleggingum Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar,“ segir Frederik. Hluti af COVAX-verkefninu er að tryggja að þróunarlönd fái bóluefni og að koma í veg fyrir snarhækkun verðs á bóluefni á uppboðsmarkaði milli þjóða. Bólusetningabanda- lagið Gavi, samstarfsaðili CEPI og WHO í COVAX-verkefninu, hefur samþykkt að veita 92 lágtekjulönd- um aðstoð og tryggja þeim aðgang að bóluefni. En hvað með þær þjóðir sem neita að taka þátt í verkefninu? Fá þær líka ykkar bóluefni? „Einfalda svarið er nei. Þannig getur það ekki virkað. Þjóðirnar verða að taka þátt og fjármagna verkefnið til þess að eiga rétt á bóluefni. Það er bara ekki hægt að f ljóta með, neita að taka þátt og njóta svo ágóðans. Það væri ósann- gjarnt gagnvart öðrum þjóðum. Við þurfum öll að standa saman.“ ingunnlara@frettabladid.is Enginn óhultur nema allir séu það Aðstoðarforstjóri CEPI segist þakklátur fyrir fjárveitingu Íslands sem styðji beint við rannsóknir og þróun bóluefnis gegn CO- VID-19. Árangur COVAX-verkefnisins veltur á þátttöku þjóða og enn er þörf á frekara fjármagni. Niðurstöður Oxford lofa góðu. Þróun bóluefna er ákveðin áhættufjár- festing. Þó að efni sé á þriðja stigi klínískrar prófunar er enn mikil hætta á að það beri engan árangur. Frederik Kristensen, aðstoðarforstjóri CEPI Háskólinn í Queensland í Ástralíu er ein þeirra stofnana sem vinna að nýju bóluefni. MYND/QUEENSLAND-HÁSKÓLI CEPI og COVAX CEPI (Coalition for Epidemic Preparedness Innovations), var stofnað í Davos í Sviss árið 2017 af ríkisstjórnum Noregs og Indlands, góðgerðafélagi Bill og Melindu Gates, góðgerða- sjóðnum The Wellcome Trust og Alþjóðaefnahagsráðinu (e. World Economic Forum). COVAX er samstarfsverkefni milli CEPI, Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar (WHO) og bólu setn ing abanda lags ins Gavi, sem hefur það að markmiði að hraða þróun bóluefna gegn COVID-19 og að tryggja aðgang allra að bóluefni. Meira á frettabladid.is BÓLUEFNI 2 7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.