Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.08.2020, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 27.08.2020, Qupperneq 15
Íslendingar eru ein þróað- asta fiskveiðiþjóð í heimi. Á síðustu þremur árum hafa stjórnvöld lækkað veiði- gjöld þannig að þau eru nú lægri en í þróunarríkinu Namibíu. Sjávarútvegsráðherra hefur, eftir beiðni þingmanna Við-reisnar, birt Alþingi skýrslu Hagfræðistofnunar um samanburð á greiðslum Samherja fyrir veiði- rétt í Namibíu og á Íslandi. Hún er hvort tveggja athyglisverð og umræðuverð. 1 Fram kemur að í tíð núverandi ríkisstjórnar hafa gjöld fyrir veiðirétt lækkað hér. Á sama tíma hafa þau hækkað í Namibíu og eru nú hærri en á Íslandi. 2 Stór hluti kostnaðarins við að tryggja veiðiréttinn í Namibíu er ekki með í samanburðinum. 3 Í reynd er mismunurinn meiri en fram kemur þar sem endurgjald fyrir ótímabundinn veiðirétt er borið saman við rétt í takmark- aðan tíma. Aðeins hluti kostnaðarins talinn með Hagfræðistofnun tekur ekki allar greiðslur Samherja í Namibíu með í útreikningum sínum. Ástæðan er sú að hluti þeirra er til rannsóknar hjá ákæruvaldinu. Skiljanlega vill stofnunin ekki fella dóm um hugsanlegt, saknæmt athæfi. Það er ekki tilefni gagnrýni. En hér er þó á tvennt að líta: Annað er að stjórnendur Sam- herja hafa sagt að hér sé um að ræða lögmætar greiðslur fyrir veiðirétt. Ástæðulaust er að véfengja það. Hitt er að jafnvel þótt þær yrðu síðar taldar saknæmar eru þær eftir sem áður kostnaður við rétt til veiða. Til þess að finna út hvað fyrir- tækið sjálft taldi eðlilegt að greiða fyrir veiðirétt í Namibíu þarf því að taka mið af öllum greiðslunum. Munurinn á þróuðu landi og þróunarríki Namibía er þróunarríki. Á síðustu þremur árum hafa stjórnvöld þar hækkað veiðigjöld umtalsvert. Þau eru nú hærri en á Íslandi. Sérhagsmunir eða slæm hagstjórn? Þorsteinn Pálsson AF KÖGUNARHÓLI Á að hafa það notalegt og horfa á eitthvað gott í kvöld? Þú færð allt naslið og drykkina á næstu Kvikk-stöð Orkunnar. Gerðu viðeigandi ráðstafanir Íslendingar eru ein þróaðasta fiskveiðiþjóð í heimi. Á síðustu þremur árum hafa stjórnvöld hér lækkað veiðigjöld þannig að þau eru nú lægri en í þróunarríkinu. Í fljótu bragði hefði mátt ætla að í háþróuðu fiskveiðistjórnkerfi gæti atvinnugreinin greitt hlutfallslega meira í sameiginlegan sjóð eigenda auðlindarinnar en í þróunarríki. En svo er ekki í þessu tilviki. Tveir skýringarkostir blasa við: Annar er sá að hér sé um að ræða sérhagsmunagæslu. Hinn er sá að hagstjórnin hafi leitt til þess að samkeppnisstaða Íslands hafi versnað svo mjög í tíð núverandi stjórnar að hún nái ekki saman- burði við Namibíu. Úr vöndu er að ráða fyrir ríkisstjórnina. Spurning er hvorn skýringarkostinn hún telur betri til að bera á borð fyrir kjósendur. Einföldu hagfræðilögmáli snúið á hvolf Í skýrslu Hagfræðistofnunar kemur fram að greiðslur fyrir veiði- rétt í Namibíu eru fyrir tiltekinn, afmarkaðan tíma. Á Íslandi eru engin tímamörk. Formaður atvinnuveganefndar Alþingis sagði í vor sem leið að veiðirétturinn hér erfðist um alla eilífð. Eftir venjulegum lögmálum ætti veiðiréttur til langs tíma að vera mun verðmeiri en skammtíma réttur. Í Namibíusamanburðinum kemur í ljós að íslensk stjórnvöld snúa þessu á hvolf. Margt mælir með því að veiði- réttur sé lengri en í Namibíu. Útgerðir jafnt sem eigendur auð- lindarinnar eiga að hagnast á því. En ríkisstjórnin þarf að skýra út fyrir kjósendum hvers vegna hún viðurkennir ekki þetta einfalda lögmál hagfræðinnar. Eins og hjartað slái ekki með fólkinu í landinu Tuttugu ár eru frá því að allir flokkar samþykktu tillögu auð- lindanefndar, undir forystu Jóhannesar Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóra, um að skrifa í stjórnarskrá þjóðareignarákvæði um að endurgjald skyldi koma fyrir tímabundinn veiðirétt. Svipuð tillaga kom síðar frá stjórnlagaráði. Fyrir þremur árum hafði Sjálf- stæðisflokkurinn einn horfið frá sáttinni í auðlindanefnd. Nú hafa allir þrír stjórnarflokkarnir gert það. Enginn þeirra hefur þó reynt að hrekja röksemdir Jóhannesar Nordal og meðnefndarmanna hans. Forsætisráðherra hefur nú tví- vegis á þessu kjörtímabili skyldað stjórnarþingmenn til að fella tillögur um að tímabinda veiðirétt- inn í fiskveiðistjórnarlögum. Og nú hótar hún að ljúka kjörtímabilinu með því að afgreiða í ágreiningi þjóðareignarákvæði í stjórnarskrá án skilyrða um tímabindingu. Engu er líkara en hjartað slái ekki með fólkinu í landinu. Á dögunum horfði ég á áhuga-verða mynd í RÚV um einn vinsælasta bloggara Sví- þjóðar, hana Dagnýju Carlsson. Það telst svo sem ekki til tíðinda að fólk sé duglegt að tjá skoðanir sínar á vefnum, það gerum við f lest með einum eða öðrum hætti. Hins vegar þykir saga til næsta bæjar að Dagný sé 108 ára gömul og bæði virk á samfélagsmiðlum og öðrum vígstöðvum í lífinu. Hún er lifandi sönnun þess að lífaldur fólks fer hækkandi nánast hvar sem er á byggðu bóli. Nú er svo komið að meðalaldur íslenskra kvenna er 84 ár og karla 80 ár. Karlar hafa bætt 8 árum við meðalaldur sinn á síðustu 30 árum sem er einstök þróun. Með öðrum Dagný hin sænska, lífaldur og lífeyrisskuldbindingar Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Landssamtaka lífeyrissjóða orðum, ævi okkar lengist og lengist. Við hljótum að gleðjast yfir því að við lifum lengur og búum við meiri lífsgæði á efri árum en áður þekktist. Hækkandi lífaldur kallar hins vegar á meiri útgjöld fyrir líf- eyrissjóðina okkar sem þýðir ein- faldlega að við á vinnumarkaði stöndum frammi fyrir því að verða að vinna lengur, greiða meira til líf- eyriskerfisins eða reyna að ávaxta enn betur eignir lífeyrissjóða. Ef ég leiði hugann að Dagnýju hinni sænsku liggur í hlutarins eðli að hún er búin að sprengja alla skala hvað varðar útreikninga á lífeyri fyrir hennar kynslóð. Dagný Carls- son hefur væntanlega farið á lífeyri 67 ára að aldri eða þar um bil. Alveg er ljóst að hún hefur fengið greiddan lífeyri mun lengur en miðað er við í sænska lífeyriskerfinu og í því íslenska líka ef út í það er farið. Þetta tilvik er auðvitað sérstakt en við vitum að það verða margar sprækar Dagnýjar á hennar aldri í framtíðinni í Svíþjóð og á Íslandi. Það segir okkur að fólk verði lengur á lífeyri en núverandi forsendur og spár gera ráð fyrir. Því er spáð að rúmlega helmingur þeirra sem fæðast nú verði 105 ára. Þetta er ótrúlegt ef haft er í huga að fyrir rúmum hundrað árum var meðalaldur Íslendinga um 55 ár. Þegar hlutirnir eru settir í slíkt sam- hengi er merkilegt að við skulum ekki endurskoða lífeyristökualdur- inn því fólk hlýtur að verða lengur á vinnumarkaði þegar það verður eldra í árum talið og jafnframt heil- brigðara og hressara á efri árum en áður var. Við viljum að fólk sé virkt á vinnumarkaði eins lengi og heilsan leyfir. Fyrir tveimur árum var framlag í lífeyrissjóði á almennum vinnumarkaði hækkað í 15,5% (þar af er val um tilgreinda séreign 3,5%), annars vegar til að samræma iðgjöld við opinbera vinnumarkaðinn en hins vegar til að mæta hækkandi lífaldri þjóðarinnar. Betur má samt ef duga skal. Við stöndum frammi fyrir því að aðlaga lífeyrissjóðakerfið enn frekar vegna hækkandi lífaldurs. Í það verkefni þarf að ráðast strax svo lífeyriskerfið sé rétt stillt gagnvart skuldbindingum sínum. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15F I M M T U D A G U R 2 7 . Á G Ú S T 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.