Fréttablaðið - 27.08.2020, Page 16
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ég held að göngugatan höfði
frekar til yngra fólks og ég skil
vel sjónarmið eldra fólks sem
er vant því að vera á bíl og geta
lagt fyrir utan búðina sem það
ætlar í.
Elskuleg stjúpmóðir okkar,
tengdamóðir, systir, amma
og langamma,
Inger Gréta Stefánsdóttir
Kirkjubraut 36, Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
sunnudaginn 23. ágúst. Í ljósi aðstæðna í
þjóðfélaginu mun útförin fara fram í kyrrþey.
Fjölskylda hinnar látnu.
Elskuleg móðir mín,
tengdamóðir, amma, langamma,
systir, mágkona og frænka,
Ágústína Hlíf Traustadóttir
nuddari og fótaaðgerðafræðingur
Ranavaði 5, Egilsstöðum,
lést 20. ágúst sl. á Landspítalanum
við Hringbraut. Útförin fer fram í Fossvogskirkju kl. 13.00
þann 28. ágúst næstkomandi. Í ljósi aðstæðna er athöfnin
einungis fyrir nánustu fjölskyldu og vini.
F.h. aðstandenda,
Ester K. Vigil Erick L. Vigil
David Már Hafsteinsson Maria Leon
Kristofer Bow
Ethan Vigil
Chloe Vigil
Leo Mar Hafsteinsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Skafti Hannesson McClure
Hraunholti 4, Akureyri,
lést á heimili sínu
mánudaginn 24. ágúst.
Útförin mun fara fram í kyrrþey.
Elín Antonsdóttir
Hanna María Skaftadóttir McClure Baldvin Birgisson
Sigurlaug Skaftadóttir McClure Ármann Þór
Sigurvinsson
Hannes Jarl Skaftason McClure Aldís Einarsdóttir
Lovísa Björk Skaftadóttir McClure Sigþór Samúelsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar og afi,
Sveinn Stefánsson
húsasmiður,
Brekkuhvammi 8, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans 17. ágúst.
Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju,
þriðjudaginn 1. september kl. 13.
Hugheilar þakkir viljum við færa starfsfólki HERU og
Líknardeildar LSH fyrir hlýju og ómetanlegan stuðning.
Hulda Kristinsdóttir
Bylgja Sveinsdóttir
Birkir Sveinsson
Bjartey Sveinsdóttir Kristján Andrésson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæra
eiginmanns, föður og afa,
Guðmundar Jónssonar
skipstjóra,
Skipalóni 26, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Líknardeildarinnar í Kópavogi fyrir umhyggju og hlýju við
umönnun hans.
Ruth Árnadóttir
Jón Örn Guðmundsson Bríet Jónsdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir Guðmundur Árni Guðrúnarson
Daniel Guðmundur Nicholl Svanhildur Lísa Leifsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Laufey Guðrún Lárusdóttir
lést 26. júní sl. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Ingunn Anna Helgadóttir Óli Harðarson
Lárus Helgason Hunter Guðrún Pétursdóttir
Pétur Helgason Rósa Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þó fátt sé um ferðamenn núna er framtíð Laugavegsins björt, í mínum huga. Þegar komið verður bóluefni við kórónaveirunni þá verður mikill þorsti í að ferðast
aftur og Ísland verður alltaf ákjósanleg-
ur staður, vegna þess sem það hefur upp
á að bjóða,“ segir Ingimar Þórhallsson,
kaupmaður og ljósmyndari í Nomad á
horni Laugavegs og Frakkastígs. Hann
verslar með smávarning sem hefur
heillað bæði ferðamenn og heimafólk
og við val á honum kveðst hann sækja
innblástur bæði í náttúruna og list-
námið sem hann stundaði í London.
„Nomad er vísun í manninn sem elskar
að ferðast í náttúrunni og velur hluti
sem hann getur tekið með sér hvert sem
er. Hér finna Íslendingar líka hentugar
gjafir við öll tækifæri eins og afmæli,
útskriftir og fleiri.
„Janúar var frábær, mikil vetrarferða-
mennska í gangi, svo fór COVID-19 að
stinga sér niður í Evrópu og um miðjan
mars stoppaði allt. Það var hávetur,
dimmt og Íslendingar fóru heim að
baka en voru voða lítið á ferðinni,“ segir
Ingimar þegar hann spólar í huganum
yfir árið 2020. Hann kveðst hafa verið
sendur í sóttkví og notað tímann til að
fullgera og opna vefverslun, sem hann
hafði verið með í smíðum. „Svo fór salan
að aukast aftur í miðbænum í lok júní
og júlí var ansi fínn og sömuleiðis ágúst
framan af.“
En hvernig komu fréttir um hertar
reglur við landamærin við Ingimar og
miðbæinn? „Þetta var bara eitthvað
sem þurfti að gera. Heilsa þjóðarinnar
er í fyrirrúmi. Allt annað er aukaatriði.
Maður treystir þríeykinu til að taka rétt-
ar ákvarðanir. Það hefur staðið sig með
mikilli prýði til þessa. Auðvitað verður
þetta erfitt fyrir marga og haustið verð-
ur ábyggilega rólegt.“
Hann kveðst þó vona að það lifni
yfir Laugaveginum fyrir jólin. Hvað
finnst honum um lokun bílaumferðar
um hluta hans? „Ég held að göngugatan
höfði frekar til yngra fólks og ég skil vel
sjónarmið eldra fólks sem er vant því að
vera á bíl og geta lagt fyrir utan búðina
sem það ætlar í. Það getur líka verið
kalt í miðbænum í norðanáttinni, en
kannski er þetta spurning um að læra
betur á bílastæðahúsin.“
Ingimar kveðst stíla vöruúrvalið í
Nomad upp á heimafólk meðan fáir
koma gegnum landamærin. „Ferða-
fólkið kemur aftur þegar það er tilbúið,
kannski verður það færra en var á síð-
ustu árum en mér skilst á ferðaþjónustu-
aðilum að margir gestir hafi fært sínar
bókanir til 2021, þannig að við sjáum
hvað gerist.“ gun@frettabladid.is
Lítur björtum augum
til framtíðar Laugavegs
Margt hefur breyst við Laugaveginn í Reykjavík síðustu misseri. Búðir hafa flutt burtu
í ódýrara húsnæði og hluti götunnar er orðinn að göngugötu. En Ingimar Þórhallsson,
ljósmyndari og kaupmaður í Nomad, á horni Laugavegs og Frakkastígs, ber sig vel.
„Ferðafólkið kemur aftur þegar það er tilbúið,“ segir Ingimar Þórhallsson kaupmaður bjartsýnn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Merkisatburðir
1867 Eldgos hefst í Vatnajökli nálægt Grímsvötnum.
1929 Sjö sauðnautskálfar eru fluttir til landsins í tilrauna-
skyni frá Grænlandi.
1946 Fyrsti bíllinn kemur til Siglufjarðar eftir að unnið
hefur verið að vegagerð um Siglufjarðarskarð í ellefu ár.
1994 Bíódagar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar,
hlýtur Amanda-kvikmyndaverðlaunin.
2 7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT