Fréttablaðið - 27.08.2020, Page 18
Sólrún hefur nýlega hafið nám á næstsíðustu önn sinni í klæðskeranámi en hún segist
þó ekki alltaf hafa haft áhuga á
saumaskap.
„Ég fékk einhvern áhuga þegar
ég var unglingur og var þá eitthvað
að sauma niðri í kjallara á gömlu
saumavélina hennar mömmu. Svo
bilaði hún og þá gleymdi ég þessu
í rauninni. Það var svo ekki fyrr en
ég fór í Hússtjórnarskóla árið 2018
að ég uppgötvaði saumaskapinn
aftur og ákvað eftir það að fara í
klæðskerann,“ segir Sólrún.
Sólrún segir að sér finnist einna
skemmtilegast að sauma jakka
fatajakka og hún segir að það
gæti verið gaman í framtíðinni að
stofna fyrirtæki og sauma jakkaföt.
„Það er mikið minna af þannig
fyrirtækjum á Íslandi. En ég hef
líka mikinn áhuga á búningum,
eins og til dæmis í leikhúsi. Það
væri gaman að vinna við eitthvað
slíkt.“
Útsaumur heillar Sólrúnu líka en
hún segir að hann sé ekki kenndur
í klæðskeranáminu.
„Ég lærði hann í Hússtjórnar
skólanum og þar kviknaði sá
áhugi. En svo hef ég líka saumað
bindi og málað á þau með hjálp
systur minnar, hún er meira í að
mála og þannig. Það fannst mér
skemmtilegt en bindin voru gjafir
til pabba.“
Í skólanum hafa nemendurnir
fengið tækifæri til að sauma svo
lítið á sjálfa sig og Sólrún segist til
dæmis hafa saumað nokkur pils á
sig þar.
„En fötin sem við saumum
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Sólrún endur
uppgötvaði
áhugann á
saumaskap
þegar hún var
nemi í Hús
stjórnarskól
anum. Þetta pils
saumaði hún á
sjálfa sig.
Sólrún líkir því
að sauma við
að leysa þraut.
Hún hefur
saumað nokkur
pils í klæðskera
náminu. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VALLI
Þennan fall
ega barnakjól
saumaði Sólrún
í skólanum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Þessi kjóll var afrakstur verkefnis sem fólst í að vinna
saman með mismunandi efni og láta snið passa.
Framhald af forsíðu ➛
Úrval af gíturum og bössum
Fiðlur
Heyrnartól
Míkrafónar
í úrvali
Þráðlaus
míkrafónn
GÍTARINN
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • S. 552 2125 • gitarinn@gitarinn.is • www.gitarinn.is
Hljómborð
MEDELI MC37A
Trommusett
Söngkerfi
í úrvali
Fermingargjafir
Magnarar
á okkur verða að vera innan
ákveðinna marka. Þau mega ekki
vera of flókin og þurfa að fylgja
ákveðnum reglum því það er enn
verið að kenna okkur aðferðirnar,“
útskýrir Sólrún.
Sólrún líkir því að sauma við að
leysa þraut eða hugleiðslu.
„Það er svo gaman að fá hug
mynd sem mann langar að fram
kvæma og hefur kannski aldrei
gert áður, að finna út úr því hvernig
maður gerir það svo manni líki.
Pilsið sem ég er í er einmitt svo
leiðis. Ég saumaði það í valáfanga
í skólanum. Ég fékk hugmynd sem
ég þurfti að útskýra fyrir kennar
anum mínum en hún sá þetta ekki
fyrir sér eins og ég svo ég þurfti að
finna út úr því hvernig ég ætlaði að
koma hugmyndinni í framkvæmd.
Ég var svo spennt yfir þessu að mig
dreymdi um hvernig ég ætlaði að
tækla þetta.“
COVID frestaði Skotlandsferð
Ef allt hefði farið samkvæmt
áætlun þá væri Sólrún núna úti
í starfsnámi í Skotlandi en til að
ljúka námi þarf, auk sjö anna í
skólanum, að taka eins árs starfs
nám.
„Ég átti að fara út í maí og vera
í eitt ár en sökum COVID þá
komst ég ekki. En ég stefni á að
fara í janúar ef COVID leyfir. Ég
fer í starfsnám hjá fyrirtæki sem
saumar skoskan veiðifatnað en þau
sauma líka skotapils. Þetta er allt
gert úr tvíd eða köflóttum efnum.“
Sólrún frétti af þessum mögu
leika í gegnum stelpu sem var í
starfsnámi hjá sama fyrirtæki.
„Það gekk ekkert að finna
starfsnám hérna á Íslandi en ég
vissi af tveimur stelpum sem voru
í Skotlandi og ég talaði við þær. Sú
sem var í starfsnámi þarna sagði
svo fallega frá staðnum sem hún
var á og fyrirtækinu svo ég ákvað
að senda þeim umsókn og fékk
leyfi til þess að koma. Ég fæ styrk
frá Erasmus til þess að fara út,“
útskýrir hún.
Sólrún segist spennt fyrir að fara
út og segist vel geta séð sig fyrir sér
sauma veiðibúninga.
„Ég er með fyrirtækið á Insta
gram og þetta lítur rosalega vel út.
Ég sé oft myndir frá þeim og hugsa,
oh, þetta er svo fallegt,“ segir hún
og hlær.
En áður en Sólrún heldur á vit
ævintýranna í Skotlandi er stefnan
að klára þessa síðustu önn í
náminu. Hún segist spenntust fyrir
því á þessari önn að fá að prófa að
sauma korselett.
„Mig langar rosalega mikið að
prófa að sauma korselett frá öllum
áratugum. Þau eru mjög mismun
andi eftir tímabilum. Við fáum að
gera allavega eina tegund á þessari
önn. En svo langar mig líka svolítið
að byrja að endurvinna föt, ég hef
lítið verið að hanna sjálf en ég væri
til í að breyta fötum sem ég er hætt
að nota og gefa þeim nýtt líf.“
Ég var svo spennt
yfir þessu að mig
dreymdi um hvernig ég
ætlaði að tækla þetta.
LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
NÝJAR
HAUSTVÖRUR...
..STREYMA INN
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R