Fréttablaðið - 27.08.2020, Page 22
Tom Ford sótti
næturklúbbinn
Studio 54 grimmt á
diskóárunum og má sjá
áhrif glamúrs sem aldrei
fyrr í hönnun hans.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
TRAUST Í 80 ÁR
Fylgdu
okkur á
Facebo
ok
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Útsöluvörur
60%-70%
KLASSÍSKUR
BASIC FATNAÐUR
ALLTAF SVO FLOTTUR
OG ÞÚ ERT TILBÚIN FYRIR
HAUSTIÐ - VINUNA OG
FÉLAGSKAPINN
20% AFSLÁTTUR
TIL 10. SEPTEMBER
Tom fæddist í borginni Austin í Texas þann 27. ágúst árið 1961. Strax á sjötta árinu var
hann farinn að endurraða húsgögn-
um heima hjá sér og gefa móður
sinni ábendingar um hárgreiðslur
og skó.
Tom flutti ungur til New York
til að læra listasögu við New
York-háskóla þar sem hann hitti
Ian Falconer, sem fór með hann í
næturklúbbinn Studio 54 í fyrsta
sinn. Fljótlega gaf Tom námið upp
á bátinn en einbeitti sér að leik í
sjónvarpsauglýsingum. Seinna
hóf hann nám í innanhússhönnun
við Parsons-listaháskólann í New
York en stundaði áfram næturlífið
grimmt á Studio 54 þar sem hann
uppgötvaði eigin samkynhneigð,
en fyrsti elskhuginn var einmitt
rithöfundurinn Ian Falconer,
sem skrifaði barnabækurnar um
grísastelpuna Ólivíu sem margir
kannast við af skjánum.
Ford er nú giftur Richard
Buckley, blaðamanni og fyrrver-
andi ritstjóra Vogue Hommes
International, og eiga þeir soninn
Alexander John „Jack“, sem þeir
eignuðust með hjálp staðgöngu-
móður árið 2012.
Tom tók hlé frá náminu í Par-
sons til að gerast lærlingur hjá
Chloé í París í hálft annað ár og þar
kolféll hann fyrir hátískunni. Síð-
asta árið við Parsons fór því í tísku-
hönnun þótt Tom hafi útskrifast
með háskólagráðu í arkitektúr.
Tom Ford var lengi vel listrænn
stjórnandi hjá Yves Saint Laurent
og Gucci áður en hann stofnaði
sitt eigið lúxusmerki, Tom Ford.
Að sögn hans sjálfs er merkið
fyrir sanna heimsborgara sem og
sterkar, klárar konur sem þekkja
eigin stíl. Margt frægðarfólkið
hefur skartað fötum frá Tom Ford,
svo sem Michelle Obama, Beyoncé,
Jennifer Lopez, Gwyneth Paltrow,
Tom Hanks, Johnny Depp, Ryan
Gosling og Daniel Craig.
Seinni tíma hönnun Toms Ford
hefur oftar en ekki verið innblásin
af glamúr diskóáranna á Studio 54.
Hann hefur verið gagnrýndur fyrir
að nota naktar konur í auglýsinga-
herferðum og sumir hafa talað um
kvenfyrirlitningu og hlutgervingu
kvenlíkamans. Ein auglýsing sýndi
kviknakta konu með ilmvatns-
flösku á milli fóta sér, í annarri
var nakin kona að strauja karl-
mannsbuxur á meðan karlinn las
dagblað. Ford hefur vísað þessari
gagnrýni á bug og sagt að hann
myndi glaður gera það sama
við karllíkamann en að vestræn
menning leyfi það ekki á sama hátt
og konur.
Gaf mömmu sinni bjútíráð sex ára
Bandaríski tískuhönnuðurinn og leikstjórinn Tom Ford er 59 ára í dag. Hann er í miklum metum
fyrir íðilfagran klæðnað í tískuheiminum en líka umdeildur fyrir að hlutgera kvenlíkamann.
Tískuhönnuðurinn Tom Ford mælir 59 ár af ævinni í dag. MYNDIR/GETTY
Kendall Jenner fyrir Tom Ford 2020. Gigi Hadid í Tom Ford-blúndum.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R