Fréttablaðið - 27.08.2020, Page 28

Fréttablaðið - 27.08.2020, Page 28
BÍLAR Hyundai hefur sent frá sér myndir af andlitslyftingu Hyundai Kona fyrir næsta ár, en breytingin er í stíl við endurhönnun á línu fyrir- tækisins. Talsverðar breytingar eru á bílnum að framanverðu og er búið að skipta út sexhyrningslaga grillinu fyrir breiðara og mjórra grill. Einnig er ný hönnun á dag- ljósum ásamt stuðara og bíllinn er sagður breiðari en áður, hvort sem það þýðir aðeins breiðleitari eða með meiri breidd milli hjóla. Ásamt andlitslyftingunni mun koma ný N-lína sem er sportlegri með stærri loftinntökum og þess háttar. Er sá bíll hugsaður sem kynning á væntanlegri Kona N sem kynntur verður síðar á árinu og verður með yfir 200 hestafla, 1,6 lítra bensínvél með forþjöppu. Kona fær andlitslyftingu Stutt er í að fyrstu eintök nýrrar kynslóðar Kia Sorento verði kynnt hérlendis og er dísilbíll- inn væntanlegur í október. Kia hefur nú einnig kynnt til sögunnar tengiltvinnútgáfu af hinum sjö sæta Sorento. Verður hann búinn 1,6 lítra, 178 hestafla bensínvél ásamt 90 hestafla raf- mótor. Samtals munu mótorarnir skila 261 hestafli og 350 Newton- metra togi. Rafhlaðan í bílnum er 13,8 kWst og þó að engar WLTP tölur um drægi hennar hafi verið gefnar út enn þá ætti hún að duga til um 50 km aksturs. Þrátt fyrir að þurft hafi að koma fyrir rafhlöðu, kemur það ekki niður á notagildi bílsins að ráði. Hann verður áfram boðinn sjö sæta og verður með 175 lítra farangursrými með öll sætin í notkun. Með öftustu sætaröðina niðri er farangursrýmið 809 lítrar sem er aðeins 12 lítrum minna en í dísilbílnum. Bíllinn kemur í tengiltvinn- útgáfu á markað snemma á næsta ári. Að sögn Þorgeirs S. Pálssonar, sölustjóra Kia á Íslandi, verður Kia Sorento í tengiltvinnútgáfu kynntur snemma á næsta ári hérlendis einnig. „Nýr Sorento er væntanlegur í október en þá kemur hann í dísilútgáfu og svo kemur tvinnútgáfa í desember,“ sagði Þorgeir. Sorento einnig í tengiltvinnútgáfu Jeep ætlar að endurvekja Wago- neer nafnið með nýjum bíl, þann þriðja september næstkomandi. Útliti bílsins hefur verið haldið vandlega leyndu en þó var birt stutt auglýsing í vikunni sem sýnir útlínur hans. Nýr Wagoneer er væntanlegur á markað snemma á næsta ári en hann mun nota sama undirvagn og Ram 1500, og þá einnig sömu vélar. Er Grand Wago- neer ætlað að keppa við lúxus- jeppa eins og Cadillac Escalade og Lincoln Navigator. Ásamt þessum bíl verður tengiltvinnútgáfa Jeep Wrangler kynnt í mánuðinum svo það er nóg að gerast í septem- ber hjá þessum ameríska fram- leiðanda. Wagoneer kynntur í byrjun september Grand Wagoneer verður byggður á sama undirvagni og Ram 1500 pallbíllinn. Kia Sorento PHEV verður búinn 1,6 lítra bensínvél og raf- mótor sem samtals skila 261 hestafli og 350 Newtonmetra togi. Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is Tengiltvinnútgáfa nýs Sorento er væntanleg hingað til lands snemma á næsta ári. Kona fær meiri breidd og hákarlslegt útlit segir í fréttatilkynningu Hyundai. Aðeins má sjá útlínur framenda nýs Wagoneer í auglýsingunni. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is mánudaga - sunnudaga 12-18 20-50% Sparadu- af borðstofu- húsgögnum 20. ágúst - 7. september 20-25% Sparadu- af öllum borðbúnaði ZAMORA SKENKUR Svartur málmur og gler. L 167 x D37 x H80 cm. 129.900 kr. Nú 89.900 kr. FAME BEKKUR Mustard gult velúr. Svartir fætur. Einnig til grár. 79.900 kr. Nú 63.900 kr. SPAraðu 16.000 Nú63.900 SPAraðu 40.000 Nú89.900 ARIANA BORÐSTOFUSTÓLL Grár eða grænn, svartir fætur. 14.900 kr. Nú 11.900 kr. PRATO BORÐSTOFUSTÓLL Svart textílleður, krómfætur. Áður 29.900 kr. NÚ 14.950 kr. SPAraðu 14.950 Nú14.950 2 7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.