Fréttablaðið - 27.08.2020, Page 32

Fréttablaðið - 27.08.2020, Page 32
ÞAÐ SEM ÉG SÉ ER AÐ FRELSI MITT JÓKST, EINS OG HJÁ ÖLLUM SEM VERÐA MEÐ ÁRUNUM VISSARI Í SINNI SÖK, ÞEKKJA SJÁLFAN SIG BETUR OG VERÐA ÓHRÆDDIR VIÐ AÐ FARA EIGIN SLÓÐ OG LÁTA GAGNRÝNI EKKI SLÁ SIG ÚT AF LAGINU.Sý n i ng i n Hja r t sl át t u r stendur yf ir í Nýlista-safninu en þar má sjá verk frá rúmlega fjörutíu ára myndlistarferli Ástu Ólafsdóttur. Sýningar-stjóri er Sunna Ástþórsdóttir. Ásta er fædd í Reykjavík árið 1948. Hún stundaði myndlistar- nám í Nýlistadeild við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Jan Van Eyck Akademíuna í Hollandi. Fyrsta einkasýning Ástu var í Nýlistasafn- inu á Vatnsstíg árið 1986, en hún tók þátt í að stofna safnið og er nú heið- ursfélagi þess. Á löngum ferli hefur hún unnið í afar fjölbreytta miðla, þar á meðal vídeó og hljóð og sent frá sér bækur. Strangur skóli Ásta segist ekki beinlínis koma auga á sérstaka þróun í listsköpun sinni. „Það sem ég sé er að frelsi mitt jókst, eins og hjá öllum sem verða með árunum vissari í sinni sök, þekkja sjálfan sig betur og verða óhræddir við að fara eigin slóð og láta gagn- rýni ekki slá sig út af laginu. Það var strangur skóli að vera myndlistarmaður á Íslandi frá 1980–2000. Listamenn af minni kynslóð voru mjög metnaðargjarnir í list sinni, við héldum vel saman og vissum að við mættum ekki slaka á. Við lögðum mikið á okkur til að geta skilað okkar besta. Kollegarnir voru iðnir við að hvetja mann. Þessi samhugur átti sinn þátt í að reka mann áfram.“ Karlar fengu meðbyr Spurð hvernig hafi verið að vera kona í myndlistarheiminum í upp- hafi ferilsins segir Ásta: „Þegar ég byrjaði í Myndlista- og handíða- skólanum vissi ég ekki hversu lítið væri af konum í myndlist. Ég hafði ekki hugsað út í það, ekki frekar en samfélagið. Karlarnir urðu frægir og fengu meðbyr en ekki konurnar. Frá 1980–2000 voru það karlarnir sem voru studdir til myndlistarnáms og fengu úthlutað úr launasjóði í mun meira mæli en konurnar. Þarna ríkti sú hugsun að þeir hlytu að vera betri listamenn en þær. Það var súrt. Nú er þetta orðið breytt.“ Var útsjónarsöm Ásta hefur alla tíð unnið í marga miðla. „Sumt höfðar til mín, annað ekki. Viður höfðar til dæmis til mín en ekki steinsteypa og heldur ekki stál. En það voru líka praktískar ástæður þarna að baki. Lengi var ég ekki með vinnustofu og vann heima í stofu og varð að miða list- sköpunina við stærðina þar. Gifs er til dæmis ekki hægt að vinna í stofunni heima. Ég hafði ekki efni á miklu þannig að ég var útsjónarsöm og reyndi að finna ódýr og þægileg efni sem ég gat gert skúlptúra úr. Þegar ég var í Jan Van Eyck Aka- demíunni í Hollandi var skólinn afar vel búinn að allri tækni. Þar var myndbandsupptökustúdíó og hljóðstúdíó. Ég notfærði mér það en þetta komst ég ekki í á Íslandi. Svo hef ég alltaf haft ánægju af texta og er áráttuskrifari og hef gefið út bækur. Mig hefur alltaf langað til að vinna í alla mögulega hluti. Ég hef mjög gaman af að vaða í eitthvað sem ég kann ekki og læra það.“ Spurð hvað hún hafi viljað sýna í verkum sínum segir hún: „Ef maður er forvitin manneskja sem spekúlerar og reynir að greina allt, þá vill maður sýna það sem er að gerast. Maður er greinandi og með fullt af tilfinningum sem hafa ekki orð og maður togar þær út og gerir þær sýnilegar. Þær taka á sig form í skissubókinni og af því að maður kann til verka í hinu og þessu notar maður efnivið og form og til verður sköpun.“ Greinandi með fullt af tilfinningum Í Nýlistasafninu er sýning með verkum eftir Ástu Ólafsdóttur. Sýningin spannar rúmlega fjörutíu ára feril listakonunnar. Myndlistarheimurinn var strangur skóli. Mig hefur alltaf langað til að vinna í alla mögulega hluti, segir Ásta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Verkin í Nýlistasafninu sýna hversu fjölhæfur listamaður Ásta er. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Kennarinn sem hvarf sporlaust Bergrún Íris Sævarsdóttir Útgefandi: Bókabeitan Fjöldi síðna: 160 Kennarinn sem hvarf sporlaust er sjálfstætt framhald bókarinnar Kennarinn sem hvarf, sem fékk Barnabókaverð- laun Guðrúnar Helgadóttur árið 2019 og hlaut góðar viðtökur hjá lesendum. Hér eru sömu sögu- hetjur á ferð og gerist sagan vetur- inn eftir að fyrri bók inni lýk ur. Krakkarnir eru komnir í sjötta bekk og bekkurinn er á leið í skíða- ferðalag í skála í tvær nætur og eru fararstjórar tveir, Bára, kennarinn sem hvarf í fyrri bókinni, og Jósep, pabbi Heklu, sem var sögumaður í fyrri bókinni. Allt virðist ætla að ganga að óskum þar til fararstjórarnir hverfa aftur sporlaust og allir símar og sam- skiptatæki með. Þá er það krakk- anna að leysa gátur og vísbendingar frá dularfullum mannræningja og fylgir sagan þekktu formi spennu- sagna, þar sem kapphlaup við tím- ann og snjóstorminn úti fyrir reynir á samstöðu þeirra og úrræðafærni. Bergrún Íris er höfundur sem vinnur jöfnum höndum í orð og myndir og myndskreytingarnar eru jafnan stór hluti af sögum hennar. Þessi bók er þar engin undantekning og sem dæmi má nefna að tímaferli sögunnar er rakið með mismunandi klukkum í upphafi hvers kaf la, aðferð sem gagnast vel við að gefa tilfinningu fyrir spennu og tíma- hraki sem sannarlega er viðeigandi þegar mannshvarf í snjóstormi er til umfjöllunar. Í þessari bók heldur Sara um frá- sagnartaumana en hún kom við sögu í fyrri bókinni. Sara er fædd í Albaníu og höfundi tekst vel að lýsa því hvernig er að eiga rætur í tveim- ur svo ólíkum löndum, með ólíka siði og venjur, án þess þó að draga upp staðalmyndir eða sökkva of djúpt í greiningu. Einnig eru krakk- arnir orðnir ári eldri, sem þýðir að flóknari tilfinningar eru farnar að skjóta upp kollinum. Sögusviðið er einnig kjörið fyrir bók af þessum toga, skíðaskáli í stormi þar sem flestar bjargir eru bannaðar. Að þessum breyttu þáttum frátöldum er hér verið að endur- vinna söguþráð fyrri bókarinnar og tekst ágætlega, enda vel þekkt úr spennusögum fyrir fullorðna að slíkir þræðir séu endurunnir í sífellu. Bergrún Íris hefur hins vegar sýnt það undanfarin ár hversu ríku ímyndunarafli og frjóum hug hún býr yfir, svo það væri gaman að sjá hana vinna með þessar persónur og samskipti þeirra áfram án þess að alltaf þurfi að koma við sögu brottnuminn kennari. Brynhildur Björnsdóttir NIÐURSTAÐA: Ágætis spennusaga fyrir börn. Snjöll börn í stormi Bergrún Íris rithöfundur. FRÉTTA- BLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 2 7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.