Fréttablaðið - 27.08.2020, Page 40
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Thomasar
Möller
BAKÞANKAR
Þegar ég var fyrir utan Krist-jánsbakarí á Akureyri í blíðviðri í ágúst, tók ég eftir
því að af átta bílum fyrir utan
bakaríið voru fjórir skildir eftir
í gangi, þar af einn mannlaus. Þá
rifjuðust upp fyrir mér ummæli
þýsks vinar sem sagðist aldrei
hafa séð eins marga bíla í lausa-
gangi fyrir utan verslanir eins og
hér. Í Þýskalandi er um 300 evru
sekt við slíku og heyrir það til
algjörra undantekninga að bílar
séu skildir eftir í gangi.
Reglur um lausagang bifreiða
á Íslandi er reyndar að finna í
reglugerð nr. 788/1999, en þar
kemur fram að óheimilt er að
skilja ökutæki eftir í gangi þegar
þau eru yfirgefin. Jafnframt
er óheimilt að láta vélar kyrr-
stæðra ökutækja ganga lengur en
í örstutta stund nema sérstak-
lega standi á. Nýlegar rann-
sóknir í Bandaríkjunum sýna
að meðalbíll notar um 40 lítra
af eldsneyti í lausagangi á ári.
Yfirfært á Ísland þýðir það að um
330 þúsund ökutæki nota um 13
milljón lítra á ári í lausagangi sem
samsvarar um 30 milljón kílóum
af kolefnisspori … í lausagangi!
Að auki menga bílar mest í lausa-
gangi og vélarnar slitna mest þá.
Oft er fjallað um það hvað við
getum gert til að minnka kol-
efnisspor okkar sjálfra. Þetta er
líklega það auðveldasta sem við
getum gert … bara drepa á vélinni
þegar bíllinn er kyrrstæður!
Nýlegar mælingar sýndu að
mesta loftmengun í London er
fyrir utan leikskóla þar sem
foreldrar eru með bílana í gangi
meðan börnin fara í og úr skól-
anum.
Kæri lesandi, næst þegar þú
gengur framhjá slíkum bíl skaltu
bara biðja viðkomandi að drepa á
vélinni … bara fyrir börnin!
Bara fyrir
börnin!
GRILL-
MATURINN
ELSKAR
Go með öllu!
þú færð gas
hjá okkur
Fyrir svanga
ferðalanga
HAFÐU FJÖLPÓSTINN
ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
Auglýsingaefnið lendir á
eldhúsborðinu þegar
blaðið er opnað!
Kannaðu dreiileiðir og verð í
síma 550 5050 eða sendu
tölvupóst orn@frettabladid.is.
*Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019.
Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019