Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Blaðsíða 18
18 EYJAN 2. OKTÓBER 2020 DV
ÞÉR FÁIÐ MIG ALDREI Á KLEPP
„Stóra bomban“ var hápunktur harðvítugra deilna Jónasar Jónssonar frá Hriflu við
Læknafélag Íslands. Dómsmálaráðherra sagður geðveikur en sneri taflinu sér í hag.
É g þyki dálítið skrýtinn, óhefðbundinn,“ segir Ólafur Darri Ólafsson
leikari í hlutverki ráðherrans
Benedikts í samnefndum sjón
varpsþáttum. Benedikt er lát
inn glíma við geðraskanir en
mannkynssagan geymir ótal
dæmi ráðamanna sem hafa
átt við þann vanda að etja,
en þess eru ekki síður mörg
dæmi að stjórnmálamenn hafi
verið ásakaðir um andleg van
heilindi. Skemmst er að minn
ast greinasafnsins The Dang
erous Case of Donald Trump
frá árinu 2017 þar sem 27
geðlæknar, sálfræðingar og
aðrir sérfræðingar í andlegu
heilsufari töldu sig sýna fram
á slælega geðheilsu Trumps
Bandaríkjaforseta, sem væri
að þeirra mati ógn við banda
rískt samfélag.
Ásakanir um geðveiki hafa
þó aldrei vakið jafn harðar
deilur hérlendis og í „Stóru
bombunni“ árið 1930. Sú deila
endurspeglaði þau óvægnu
átök sem einkenndu stjórn
málalíf þess tíma.
Ráðherra vitjað á sjúkrabeði
„Stóra bomban“ var nafn á
grein sem birtist í aukablaði
Tímans, málgagns Framsókn
arflokksins, 28. febrúar 1930.
Höfundur var Jónas Jónsson,
dómsmálaráðherra Fram
sóknarflokksins, en greinin
er frásögn af heimsókn Helga
Tómassonar, yfirlæknis á
Kleppi, til Jónasar nokkrum
dögum fyrr, þar sem Helgi
hefði látið í ljós það álit sitt
að dómsmálaráðherrann væri
geðveikur. Jónas hafði legið
með kvefpest heima hjá sér
í tíu daga þegar yfirlækninn
bar að garði. Grípum niður
í skrif Jónasar: „Ég spurði
spaugandi, hvort þér kæmuð
til að bjóða mér á Klepp.
Þér svöruðuð því ekki, en af
óljósu fálmi yðar þóttist ég
vita um „bombuna“...“
Helgi Tómasson svaraði
„Stóru bombunni“ í Morgun
blaðsgrein. Þar kom fram
að sögur um geðveiki dóms
málaráðherrans hefðu verið
á kreiki um langa hríð. Þar á
meðal hefði Jónas Kristjáns
son læknir haldið því fram
þremur árum fyrr að nafni
hans dómsmálaráðherrann
væri „andlega sjúkur“. Helgi
stakk upp á því að Alþingi
fengi hingað til lands erlenda
sérfræðinga til að „rannsaka
heilbrigði ráðherrans“.
Þá höfðu um nokkurra ára
skeið staðið harðvítugar deil
ur milli Jónasar, sem jafn
framt var heilbrigðismála
ráðherra, og Læknafélags
Íslands. Þær snerust einkum
um veitingu héraðslæknis
embætta.
Bardaginn heldur áfram
Helgi sagði enn fremur í svar
grein sinni að Jónas hafi hálf
risið upp í rúmi sínu og sagt í
spurnartón: „Þér eruð sendur
sem geðveikralæknir?“ Helgi
kvaðst hafa neitað því og
sagði svo í greininni: „En af
því að ég skoðaði mig sem
frekar vinveittan ráðherr
anum, þá hefði ég viljað koma
til hans og segja honum, að ég
og nokkrir aðrir læknar litum
svo á, sem ýmislegt í fasi hans
og framkomu væri – ekki
normalt.“ Jónas mun þá hafa
svarað: „Ég skoða þetta aðeins
sem eina læknaósvífnina enn
– ég hef 37,4 stiga hita og kvef
– dettur ekki í hug að tala um
þetta við yður. Þér fáið mig
aldrei á Klepp.“ Því næst rétti
Jónas fram höndina til kveðju
og sagði svo með augun lygnd
aftur: „Bardaginn heldur
áfram, hvort sem ég verð ráð
herra eða ekki. Sá sterkari
skal sigra. Berjist nú með
ykkar vopnum og vottorðum.
Við lifum máske báðir eftir 5
ár og skulum þá líta yfir víg
völlinn.“
Ráðherra snýr taflinu við
Guðjón Friðriksson, ævisögu
ritari Jónasar, segir Stóru
bombuna meistarastykki í
áróðri. Menn hefðu þá um
langa hríð hvíslast á um geð
veiki ráðherrans en ekkert í
greininni hefði bent til geð
veiki. Grípum niður í ævi
söguna: „Fram til þessa höfðu
völdin verið að gliðna undan
Jónasi, samsæri voru gegn
honum í hverju horni, en nú
sneri hann taflinu við í einu
vetfangi með einu pennastriki
svo að segja.“
Kné fylgir kviði
Stóra bomban dró heldur
betur dilk á eftir sér. Í kjöl
far hennar var Helga Tómas
syni vikið fyrirvaralaust frá
störfum yfirlæknis á Kleppi.
Þá máttu þeir læknar sem
lýstu yfir stuðningi við Helga
þola margvíslegan miska úr
hendi dómsmálaráðherrans á
næstu misserum. Jónas hætti
algjörlega að auglýsa læknis
embætti laus til umsóknar og
hætt var að greiða læknum
fyrir kennslu við Háskólann.
Guðmundur Hannesson lækn
ir sagði í Læknablaðinu 1931
að þetta hefði gengið svo langt
að dómsmálaráðherrann hefði
sjálfur verið farinn að ráða og
reka hjúkrunarkonur og mat
reiðslufólk Landsspítalans. Þá
var þeim læknum sem staðið
höfðu með Helga neitað um
styrki til náms erlendis.
Allt breytt, og þó
Stjórnmálalíf samtímans er
hrein lognmolla miðað við það
sem tíðkaðist um 1930 og þá
hafa viðhorf manna til geð
sjúkdóma gerbreyst. Það sýndi
sig þegar Ólafur F. Magnús
son, fyrrverandi borgarstjóri,
kom fram opinberlega og tjáði
sig af hreinskilni um andleg
veikindi sín. En Ólafur þurfti
engu að síður að glíma við
mikla fordóma þar sem geð
hvarfasýki sú sem hann þjáð
ist af var heimfærð upp á allt
í hans tilveru – þegar fyrir lá
að hann var ekki veikur þann
tíma sem hann gegndi emb
ætti borgarstjóra. Einn fárra
þeirra sem tóku upp hanskann
fyrir borgarstjórann fyrrver
andi orðaði það svo að Ólafur
F. hefði verið „heilbrigðastur
allra sem sátu samtímis hon
um í borgarstjórn. Hann var
sá eini sem gat lagt fram heil
brigðisvottorð.“ n
Jónas Jónsson frá Hriflu var dómsmálaráðherra á árunum 1927-1932. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Stóra bomban er talin ein magnaðasta áróðursgrein sem samin hefur verið. MYND/TIMARIT.IS
Á ÞINGPÖLLUM
Björn Jón
Bragason
eyjan@eyjan.is