Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Blaðsíða 24
24 FÓKUS 2. OKTÓBER 2020 DV
HUNDRUÐ SPRAUTUFÍKLA
NÝTA SÉR SKAÐAMINNKUN
Áætlað er að um 700 einstaklingar noti vímuefni í æð á hverjum
tíma. Söfnunarátak Frú Ragnheiðar fyrir nýjum bíl stendur nú yfir.
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
Sjálfboðaliðarnir Ólöf Jóna, Ísabella, Kolbrún og Þröstur bílstjóri, hluti af þeim stóra hópi sem starfar með Frú Ragnheiði. MYNDIR/ RAUÐI KROSSINN
YFIRLIT 2019
Árið 2019 þjónustaði Frú Ragn-
heiður 519 einstaklinga í um 4.200
heimsóknum.
Bíllinn keyrði 312 daga ársins,
mannaður sjálfboðaliðum sem
gáfu alls 4.680 klukkutíma og
læknar sem manna bakvaktir
skiluðu 1.259 klukkutímum.
TAKA ÞÁTT
Hægt er að senda SMS-ið TAKK
í 1900 og styðja þannig við kaup
á nýjum bíl um 2.900 kr.
Þá er einnig hægt að leggja inn á
reikning 0342-26-12,
kt. 530269-2649.
Frú Ragnheiður kynnti í vikunni söfnunarátak sitt fyrir nýjum sérút
búnum bíl. Frú Ragnheiður
er skaðaminnkunarverkefni
Rauða krossins og byggir
verkefnið á þeirri hugmynda
fræði að hægt sé að minnka
skaða sprautufíknar í sam
félaginu með því að nálgast
fíkla í nærumhverfi þeirra.
Markmið Frú Ragnheiðar
er að aðstoða einstaklinga við
að halda lífi, lágmarka óaftur
kræfan skaða, draga úr sýk
ingum og útbreiðslu á lifrar
bólgu C og HIV.
Á heimasíðu söfnunar
átaksins segir að núverandi
bíll hafi verið keyrður 340.000
kílómetra og þörf sé á nýjum
bíl í verkefnið. Bílnum er
ekið um borgina sex daga
vikunnar og sinna sjálfboða
liðar Rauða krossins starfinu.
Um 100 sjálfboðaliðar skipta
með sér vöktunum og hefur
þeim tekist að starfrækja
þjónustuna í gegnum kórónu
veirufaraldurinn.
Fjórföldun á fimm árum
Heimsóknir í bílinn hafa fjór
faldast frá árinu 2015 og er
ekkert lát á þeirri aukningu.
Elísabet Brynjarsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og verk
efnastýra Frú Ragnheiðar,
segir ástæðu aukningarinnar
vera margþætta.
„Við erum búin að vinna
markvisst í því að byggja upp
traust til hópsins okkar í gegn
um árin og það er að skila sér
í því að fleiri eru að leita til
okkar. Við erum að þjónusta
rúmlega 515 einstaklinga á
höfuðborgarsvæðinu í dag
en áætlað er að um 700 ein
staklingar séu í virkri notkun
vímuefna um æð á hverjum
tíma. Við erum því að ná til
rúmlega 75% af þeim.“
Hluti af verkefninu er nála
skiptaþjónusta þar sem ein
staklingar sem nota vímuefni
um æð geta komið og sótt sér
hreinar nálar, sprautur, nála
box, smokka og annað sem
þarf til að draga úr líkum á
smiti og sýkingum.
60 prósent skjólstæðinga
heimilislaus
Að sögn Elísabetar eru flest
ir þeir sem koma nýir inn í
þjónustuna með langa sögu
að baki og tilfinningin sé
því ekki sú að notkun sé að
aukast heldur að þjónusta
Frú Ragnheiðar nái einfald
lega til fleiri sem hafa verið
í neyslu. „Einstaklingur sem
notar vímuefni í æð getur
verið jaðarsettur í sam
félaginu. Jaðarsetning getur
valdið því að það er erfitt að
opna á stöðuna sína við aðra,
erfitt að segja frá og erfitt að
treysta. Þess vegna erum við
á hverjum degi svo þakklát
fyrir traustið sem notendur
þjónustunnar okkar sýna
okkur,“ segir hún.
Árið 2019 fengu 82% af
þeim sem leituðu til Frú
Ragnheiðar mat og drykk.
Skjólstæðingahópur verk
efnisins býr jafnan við fátækt
og glíma flest við vímuefna
vanda og eru þar af leiðandi
oft svöng og þyrst þegar þau
leita í bílinn. 15% af þjón
ustunni fólust í að gefa skjól
stæðingum hlýjan fatnað, en
um 60% skjólstæðinga verk
efnisins eru heimilislaus.
„Margir skjólstæðingar
Frú Ragnheiðar eru í dag án
efna og skila reglulega hlýjum
kveðjum til sjálfboðaliða okk
ar og þakka fyrir aðstoðina.
Það er svo mikilvægt, sama
hvar einstaklingur er staddur,
að hann geti alltaf leitað eitt
hvert í hlýju. Hvort sem það
er hlýtt viðmót sjálfboðaliða
okkar, hlý föt eða annað. Við
viljum veita skjólstæðingum
okkar smá frið inni í bílnum
okkar, smá ró svo að þau geti
labbað út úr bílnum með höf
uðið aðeins hærra og tekið
hlýjuna með sér út í heiminn,“
segir Elísabet.
Breytt verklag á
tímum COVID
Með tilkomu COVID þurfti
að aðlaga allt starf Frú Ragn
heiðar breyttum aðstæðum.
„Við erum með grímuskyldu
í bílnum núna, allir spritta á
sér hendurnar við komu og
við sprittum alla sameiginlega
snertifleti eftir hverja einustu
komu í bílinn. Við skimum
eftir einkennum símleiðis
áður en við förum að hitta við
komandi, ef það vaknar upp
grunur um COVID aðstoðum
við einstaklinginn við að
komast í viðeigandi úrvinnslu
fyrir einkennunum.
Við þróuðum sérstaka
fræðslu sem við afhendum
öllum sem koma í bílinn þar
sem farið er yfir smitvarnir
ásamt skaðaminnkandi leið
beiningum á tímum COVID.
Við höfum einnig vakið at
hygli á því að tilmæli yfir
valda ná ekki til okkar hóps,
því þegar öll eiga að halda
sig heima hafa þau oft ekkert
heimili til að tryggja sitt ör
yggi á,“ segir Elísabet.
Æða skönnun þar sem æðar eru
lýstar upp og skjólstæðingar
þannig aðstoðaðir við að finna
æðar til að nota. Það er skaða-
minnkandi að skipta á milli æða
til að lágmarka sýkingarhættu.
Þurfa að safna 10 milljónum
Nýr fullbúinn bíll kostar um
10 milljónir króna. „Bíllinn
þarf að hafa þrjú sæti frammi
í svo að allir sjálfboðaliðar
rúmist þar á meðan við keyr
um bílinn, ásamt því að hafa
rúmgott rými aftur í þar sem
öll þjónustan fer fram. Bíllinn
þarf að vera með skyggðar
rúður svo ekki sjáist inn í
hann meðan á heimsóknum
stendur til að tryggja rólegt
og yfirvegað umhverfi fyrir
skjólstæðingana. Hann þarf
að hafa heilbrigðisaðstöðu
á borð við vask, skápa fyrir
plástra og umbúðir, skápa
fyrir nálaskiptaþjónustuna
okkar og þægilega bekki
fyrir skjólstæðinga okkar til
að tylla sér á. Við viljum hafa
góða lýsingu í bílnum en samt
ekki þannig að hún sé of mikil,
og hafa miðstöð til að tryggja
hlýju,“ segir Elísabet. n