Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Blaðsíða 36
36 FÓKUS 2. OKTÓBER 2020 DV
TODD BRIDGES KÆRÐUR FYRIR MORÐ
Leikarinn Todd Bridges sigraði hjörtu áhorfenda sem
Willis í sjónvarpsþættinum Diff’rent Strokes. Eftir
þættina leiddist hann út í fíkniefnaneyslu, því miður
kunnugleg örlög barnastjörnu. Árið 1989 var hann
kærður fyrir að skjóta og myrða eiturlyfjasala sem hét
Kenneth „Tex“ Clay. Todd fékk stjörnulögfræðinginn
Johnny Cochr ane til að verja sig, sem varð seinna lög
fræðingur O.J. Simpson. Hann var sýknaður af öllum
ákærum.
KYNLÍFSMYNDBAND
ROB LOWE
Það virðist sem Rob Lowe hafi
átt langan, farsælan feril en það
munaði litlu að hann færi í vaskinn
seint á níunda áratugnum vegna
kynlífsskandals. Myndbandi
af Rob, sem þá var 24 ára, að
stunda kynlíf með tveimur konum
sem voru 16 og 22 ára, var lekið
í fjölmiðla. Eins og hlutirnir væru
ekki nógu slæmir, þá studdi Rob
opinberlega Demókratann Mich
ael Dukakis þegar hneykslið kom
upp. Móðir unglingsstúlkunnar
kærði Rob. Hann fékk lítil hlutverk
fram að The West Wing, sem hóf
göngu sína 1999.
Síðan þá hefur hann átt farsælan
feril og margir hafa ekki hugmynd
um hneykslið, sérstaklega yngri
kynslóðin sem þekkir hann sem
hinn hressa og skemmtilega
Chris Traeger úr Parks And Re
creation.
NEKTARMYNDIR VANESSU WILLIAMS
Vanessa Williams var fyrsta svarta konan
til að verða ungfrú Bandaríkin árið 1983.
Það varð uppi fótur og fit þegar tímaritið
Penthouse greindi frá því að það hefði
komist yfir nektarmyndir af Vanessu
og ætlaði að birta myndirnar án
hennar leyfis. Frekar en að gagnrýna
Penthouse fyrir að beita Vanessu ofbeldi af
þessu tagi var það Vanessa sem sætti gagn
rýni og þurfti að skila kórónunni og titlinum.
Það liðu 32 ár þar til Vanessa fékk afsökunar
beiðni frá skipuleggjendum Miss America.
Hún hefur getið sér gott orð sem fyrirsæta,
leikkona og söngkona undanfarna áratugi.
MILLI VANILLI
Dúóinu Milli Vanilli skaut upp á stjörnuhimininn með
laginu Girl You Know It‘s True. Lagið kom út 25. júní árið
1989 og var á Billboardlistanum í 26 vikur. Um var að
ræða þýsktfranskt R&B dúó frá München og saman
stóð af Fab Morvan og Rob Pilatus.
Upphafið að sorglegum endalokum dúettsins var 21.
júlí 1989, aðeins rétt rúmu ári eftir að fyrsta lag þess
kom út. Þeir voru að flytja lagið Girl You Know It‘s True
fyrir framan 80 þúsund manns í skemmtigarðinum Lake
Compounce í Connecticut í Bandaríkjunum. Fab og Rob
voru eins og þeir voru venjulega uppi á sviði, orkumiklir
og sýndu glæsilega danstakta. En skyndilega heyrðist
alltaf sama setningin: „Girl you know it‘s, girl you know
it‘s, girl you know it‘s.“ Það var eins og geisladiskur
væri rispaður. Það kom í ljós að Fab Morvan og Rob
Pilatus sungu ekki lögin og allt í kringum Milli Vanilli
væri lygi og dulbúningur. Það tók hins vegar marga
mánuði fyrir fólk að komast að sannleikanum, þar sem
þetta var fyrir tíma samfélagsmiðla. Þeir neyddust til
að skila Grammyverðlaununum og urðu aðhlátursefni.
ÁSTARÞRÍHYRNINGUR
LIONEL RICHIE
Söngvarinn Lionel Richie er tví
giftur. Fyrra hjónaband hans varði
í átján ár. Hann giftist Brendu
Harvey árið 1975 en hjónin skildu
árið 1993 eftir að upp komst um
framhjáhald Lionel.
Brenda kom að Lionel kyssa fata
hönnuðinn Diane Alexander fyrir
framan íbúð þeirrar síðarnefndu.
Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs
á Brenda að hafa sparkað í klofið
á Lionel og hlaupið á eftir Diane.
Brenda var kærð fyrir nokkur brot,
meðal annars að hafa veitt maka
líkamlega áverka. Stuttu seinna
skildi Brenda við Lionel. Tveimur
árum síðar giftust Lionel og Diane.
Þau eignuðust tvö börn og skildu
árið 2004.
BANVÆNT BÍLSLYS
Matthew Broderick og Jennifer Grey byrjuðu
saman á bak við tjöldin og voru á ferðalagi
um NorðurÍrland árið 1987 þegar þau lentu í
bílslysi. Matthew var á við stýrið og fór yfir
á öfugan vegarhelming og keyrði á annan
bíl. Bæði bílstjórinn og móðir hans létust
samstundis. Matthew slasaðist nokkuð
illa en Jennifer minni háttar. Slysið kom
upp um samband þeirra.
MYND/GETTY MYND/GETTY
MYND/GETTY
MYND/GETTY
MYND/GETTY
Stærstu
Hollywood-
skandalar
níunda áratugarins
MYND/GETTY
M
YN
D
/G
E
T
T
Y
Þar sem er frægð og frami, þar eru
skandalar og hneyksli. Með tímanum
rennur fólki venjulega reiðin og hneykslin
falla í gleymskunnar dá. Við rifjum hér
upp sex skandala sem gerðu allt vitlaust
á níunda áratug síðustu aldar.