Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Blaðsíða 37
Gleðigjafinn og leikkonan Anna Svava Knútsdóttir er í Hrútsmerkinu. Hrútur-inn er afar metnaðarfullt merki, hann
gerir miklar kröfur til sjálfs sín og er jafnvel
stundum of harður við sjálfan sig. Hrúturinn
er sjálfstæður og því góður sem leiðtogi en
er einnig þekktur fyrir að vera örlítið hvatvís
sem bæði getur reynst honum gott og erfitt.
Hrúturinn finnur sig oft í fyndnum aðstæðum
en það fylgir því að vera „já“ manneskja.
Gosi í bikurum
Skapandi tækifæri | Innsæi | Skilaboð |
Forvitni | Möguleikar
Þér leiðist sjaldan og heilinn hvílist sjaldan þessa
dagana. Mætti kalla það lúxusvandamál en þú ert með
skrilljón hugmyndir sem þig langar að framkvæma.
Það koma þó skilaboð um að passa að hlaða batteríin
vel inn á milli og jarðtengja þig. Ég sé nokkur sjálf-
stæð verkefni fæðast á næstunni sem þú munt verða
mjög stolt af.
Elskendur
Ást | Sátt | Sambönd | Gildi | Val
Þú ert í yndislegu „ying yang“-sambandi þar sem
ólíkar persónur koma saman og bæta hvor aðra upp.
Það er mikilvægt að rækta það sem maður hefur,
lífið, vinnan og börnin taka eðlilega mestan tíma en
það skiptir máli að gefa hvort öðru tíma í rómantískar
stundir. Rómantíkin er í litlu hlutunum eins og að gefa
sér tíma í hádegisstefnumót. Það þarf ekki að vera
flókið, stórt eða í hverri viku, bara gott að vera með-
vitaður í þessum hraða heimi, að stoppa og staldra
við, við og við…
Flónið
Upphaf | Sakleysi | Frumkvæði | Frelsi
Það er svo skemmtilega léttur andi yfir þér, þú ert
fyndin og klár og nennir ekki að taka lífinu of al-
varlega. Breyttir tímar með nýjum áherslum eru í
kortunum þínum, þú mátt alveg hlakka til, þú færð
meiri tíma fyrir sjálfa þig og þína og til þess að láta þín
Skilaboð frá spákonunni
Mér sýnist kominn tími á að panta langt helgarfrí,
helst viku, segðu bara vinnunni og makanum að
spákonan þín hafi skikkað þig í frí.
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Anna Svava Knútsdóttir
SVONA EIGA ÞAU SAMAN
Vikan 02.10. – 08.10.
Í yndislegu „ying yang“-sambandi…
Fljúga aftur á vængjum ástarinnar
MYND/VALLI
stjörnurnarSPÁÐ Í
S næfríður Ingvarsdóttir, ein efnilegasta leikkona landsins, og hinn hæfileika-ríki Högni Egilsson, söngvari Hjaltalín,
eru byrjuð aftur saman. Þeirra leiðir skildi í
byrjun sumars eftir sex ára samband.
Þau virðast hafa fundið ástina á ný og lék
DV forvitni á að vita hvernig þau eiga saman
ef litið er til stjörnumerkjanna.
Högni er Vog og Snæfríður er Steingeit.
Vogin og Steingeitin eiga fátt sameiginlegt
og gætu ekki verið ólíkari. Vogin er félagslegt
fiðrildi og elskar að hitta nýtt fólk. Steingeitin
er hins vegar hæglát og hleypir ekki hverjum
sem er að sér. Frami og vinna skipta Steingeit-
ina miklu máli á meðan Voginni finnst mikil-
vægara að finna jafnvægi og fegurð í lífinu.
Ef þau elska og virða hvort annað, þrátt fyrir
að vera algjörar andstæður, getur sambandið
orðið gjöfult.
Vogin er hamingjusömust þegar hún er í
traustu sambandi og getur sýnt maka sínum
allt það besta sem lífið hefur upp á að bjóða.
Ábyrga og röggsama Steingeitin er róleg í
erfiðum aðstæðum sem er mikill kostur fyrir
ákvörðunarfælnu Vogina. n
Högni Egilsson
Vog
3. október 1985
n Málamiðlari
n Ákvarðanafælinn
n Samstarfsfús
n Forðast deilur
n Örlátur
n Félagsvera
Snæfríður Ingvarsdóttir
Steingeit
14. janúar 1992
n Öguð
n Ábyrg
n Góð sjálfsstjórn
n Besservisser
n Býst við því versta
n Rökföst
MYND/ERNIR
Hvað segja stjörnurnar um þig þessa vikuna?
Hrútur
21.03. – 19.04.
Þú þráir breytingu og það helst í
dag! Þú átt það til að vera hvatvís.
Þegar svona orka kemur til þín
getur allt gerst. Það verður gaman
að vita hvaða flippi þú tekur upp á.
Hvort sem það er að selja sófann,
klippa af þér hárið eða kaupa
eitthvað sem þig vantar ekki. Við
bíðum spennt.
Naut
20.04. – 20.05.
Þú færð loks svar við spurningu
sem hefur valdið þér svefnleysi.
Þetta verður sannkallað „aha“-
augnablik sem kemur með fulla
tunglinu 1. október. Stundum þurfa
ákveðin atriði að raðast upp til
þess að svör verði augljós. Þetta
skýrist síðar í vikunni.
Tvíburi
21.05. – 21.06.
Oft á tíðum vakna tilfinningar með
fulla tunglinu. Líkt og hafið, flóð og
fjara, við erum 70% vatn og tunglið
hefur viðeigandi áhrif á skap-
sveiflur okkar. Gefðu þér stund til
þess að greina hvað liggur á bak
við þessar tilfinningar og hvað þú
getur gert í þeim.
Krabbi
22.06. – 22.07.
Orkan er þér hliðholl þessa vikuna.
Margt sem hefur setið á hak-
anum kemst loksins í verk. Ef þú
ert að selja bíl eða húsnæði þá
nýtist þessi orka þar. Sannkölluð
framkvæmdagleði drífur þig áfram
inn í október.
Ljón
23.07. – 22.08.
Þú nýtur þín verulega í haust-
dýrðinni: Tekur myndir af haust-
litunum, kveikir á kertum, ullar-
sokkar á kvöldin með Noruh Jones
í bakgrunni, bakstur og kósíheit. Þú
hefur rétta viðhorfið, tekur breyt-
ingum og áskorunum fagnandi.
Meyja
23.08. – 22.09.
Ástríðufull orka streymir til þín.
Fólk gjörsamlega dregst að þér
eins og segull. Sjarminn í hámarki
og sjálfsástin blómstrar. Það er svo
svakalega sjarmerandi. Ekki kippa
þér upp við óvænt boð á stefnumót.
Þú ert bara svona ómóstæðileg/ur!
Vog
23.09. – 22.10.
Þú nennir svo gjörsamlega ekki að
vera fullorðin/n stundum! Vogin er
ekki þekkt fyrir að taka lífinu of al-
varlega en alvarlegt virðist það þó
vera þessa dagana. Þessa vikuna
hleypur þú púkanum út og ræktar
þitt innra barn. Ráð vikunnar:
Leiktu þér!
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Kannski ekki í fyrsta sinn sem þú
þarft að gæta orða þinna en þú
færð áminningu um það í vikunni.
Þú nennir ekki að sykurhúða hlut-
ina en stundum gætir þú farið milli-
veginn svo allir verði glaðir. Þannig
kemur þú upplýsingum áfram án
þess að koma neinum í uppnám.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Úps, setti einhver kæruleysispill-
una í kaffið þitt? Ef svo er þá er það
einmitt það sem læknirinn hefði
ráðlagt þér. Mögulega gleymir þú
kaffimálinu ofan á bílþakinu þessa
vikuna en þú finnur mikinn létti
yfir því að gefa smá „so what“ í
hlutina. Við þurfum öll smá skvettu
af kæruleysi í kaffið.
Steingeit
22.12. – 19.01.
Þú mátt svo sannarlega vera
spennt/ur fyrir komandi tímum.
Þótt þú sért ekki komin/n á áfanga-
staðinn þá ertu á réttri braut. Vittu
til, það mun birta til. Þú finnur mun
með hverjum deginum og sérð
skýrar hvert þú stefnir.
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Það er nú ekki líkt þér að vera bitur
þannig að þú mátt bara gjöra svo
vel og hætta því núna. Það þjónar
engum tilgangi að halda í svona
tilfinningar. Hristu þetta af þér
og haltu áfram að vera hamingju-
sami hippinn sem fer þér svo miklu
betur.
Fiskur
19.02. – 20.03.
Þú ert í bjargvættarstuði; stendur
á svölunum með ímyndaða skikkju
sem blæs í vindinum og bíður eftir
símtali frá einhverjum nánum í
neyð! Ertu mögulega að hunsa
einhver önnur vandamál heima við?
GOSI
BIKARAR
ELSKENDUR
FLÓNIÐ
eigin draumaverkefni verða að raunveruleika. Ákveðin
sjálfsvinna og ást hjálpa þér að komast fyrr á þessa
braut sem er nú þegar í kortunum.
FÓKUS 37DV 2. OKTÓBER 2020