Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR 2. OKTÓBER 2020 DV Sn or ra br au t B er gs ta ða st ræ ti Hringbraut Laugavegur Skólavörðustígur Hlemmur Hverfisgata Tjörnin Geirsgata Vesturgata Læ kj ar ga ta Ra uð ar ár st íg ur Skúlagata V ita st íg ur Sæbraut STJÖRNUPORT Laugavegur 94 191 stæði 10 á biðlista VITATORG Skúlagata/Vitastígur 223 stæði 5 á biðlista KOLAPORT Kalkofnsvegur 1 166 stæði 30 á biðlista VESTURGATA Vesturgata/Mjóstræti 106 stæði 87 á biðlista RÁÐHÚSIÐ Tjarnargata 11 130 stæði 64 á biðlista TRAÐARKOT Hverfisgata 20 270 stæði 47 á biðlista BERGSTAÐIR Bergstaðastræti 6 58 stæði 68 á biðlista BIÐLISTAR EFTIR STÆÐUM Í BÍLAHÚSUM BORGARINNAR Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is A lls eru 1.144 stæði í þeim sjö bílahúsum sem Reykjavíkurborg rekur og meirihluti þeirra er í langtímaleigu. 311 eru á biðlista eftir langtímastæði í bílahúsum borgarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá Bílastæðasjóði Reykja- víkur er mismunandi eftir húsum hve langur biðtími eftir stæðum er, það fari eft- ir fjölda stæða í hverju húsi fyrir sig og staðsetningu. Bið- listinn er yfirleitt styttri eftir því sem húsin eru lengra frá Kvosinni. Eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að úthluta nýjum stæðum nema einhverjir segi sínum stæðum upp og það er mismunandi eftir bílahúsum hversu mikil velta er á bíla- stæðum. Í sumum bílahúsum er mjög litlu sagt upp af stæðum og því lengjast bið- listarnir ár frá ári. DV hefur heimildir fyrir því að fólk geti verið afar lengi á biðlista og eru dæmi um fólk sem hef- ur beðið eftir langtímastæði í Kolaportinu í meira en ár. Borgarlínan auki val um ferðamáta Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og sam- gönguráðs Reykjavíkur, segir ánægjulegt að fólk sé að nýta húsin enda hafi þau verið byggð til þess. „Þetta bendir hins vegar til þess að gott sé að hækka verð til að stytta biðlista. Við gerum ekki ráð fyrir stór- felldri aukningu á bílastæða- húsum og því er mikilvægast að bjóða upp á fjölbreytt- ara val um ferðamáta sem Borgarlína mun meðal annars gera. Einnig er mikilvægt að breyta bílastæðahúsunum þannig að þau séu einnig fyrir þá sem kjósa að hjóla og bjóði upp á fyrsta flokks aðstöðu fyrir hjól. Þá er mikilvægt að hjólastæðin séu vönduð, með góðri lýsingu og hleðslu fyrir rafmagnshjól,“ segir hún. Að mati Sigurborgar er lausnin ekki sú að fjölga bíla- stæðum. „Það væri að ausa úr lekum bát. Bílastæði eru gríð- arlega dýr fjárfesting og ef eftirspurnin er meiri en fram- boðið er skilvirkast að hækka verðið. Langtíma lausnin felst síðan í að minnka þörfina fyrir bílastæði og skapa fólki raunhæft val um fararmáta.“ Skammtímastæði hlutfallslega dýrari Þeir sem eru með langtíma- stæði í bílahúsum Reykja- víkurborgar hafa aðgang að þeim allan sólarhringinn. Mánaðargjaldið er lægst á Vitatorgi, 7.500 krónur, mán- uður í Stjörnuporti og á efri hæð Bergstaða kostar 8.700 krónur, mánaðarkort í Kola- porti og Traðarkoti kostar 9.000 og gjaldið er 14.500 krónur í Ráðhúsinu, á Vestur- götu og í kjallara Bergstaða. Bílastæðasjóður rekur einn- samfellt í átta tíma á dag, alla virka daga greiða að jafnaði ríflega 14 þúsund á mánuði. Engin bið hjá einkareknu bílahúsunum Enginn biðlisti er sem stendur vegna langtímastæða hjá þeim tveimur einkareknu bílahúsum sem eru í miðborginni, í Hörpu og á Hafnartorgi. Í Hörpu eru 545 bílastæði en bílahúsið er rekið af 118 Secu- rity. Mánaðargjaldið í Hörpu er 14.500 krónur og hefur fólk þá aðgang að bílastæðahúsinu frá klukkan 08 til 18. Á Hafnartorgi eru 1.160 stæði en bílahúsið er rekið af Regus. Sólarhringspassi á Hafnartorgi kostar 27.000 krónur en einnig er hægt að fá dagpassa sem gilda ýmist frá klukkan 08-16 eða 09-17 og er mánaðargjaldið þá 20.000. n ig fjölda skammtímastæða í miðborginni, bæði utan og innan bílastæðahúsa en hlut- fallslega dýrara er fyrir svo- kallaða stórnotendur að nota skammtímastæði en langtíma- stæði. Sá sem nýtir skammtíma- stæði í Ráðhúsinu í átta klukkustundir alla virka daga þarf að greiða um 22 þúsund á mánuði. Utan bílahúsa er ódýrast til lengri tíma að leggja í stæði á gjaldsvæði P3 og þeir sem nýta slíkt stæði Bílastæði eru gríðarlega dýr fjár- festing. Yfir 300 eru á biðlista eftir langtímastæðum í bílastæðahúsum Reykjavíkurborgar. Dæmi eru um að fólk hafi beðið í meira en ár. Engir biðlistar eru hjá einkareknu bílahúsunum í miðbænum. Bílar eru ekki bara á götum borgarinnar heldur þarf líka að leggja þeim í stæði. MYND/AÐSEND Bílastæðahús Reykjavíkurborgar. GRAFÍK/DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.