Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Síða 36
36 FÓKUS 2. OKTÓBER 2020 DV TODD BRIDGES KÆRÐUR FYRIR MORÐ Leikarinn Todd Bridges sigraði hjörtu áhorfenda sem Willis í sjónvarpsþættinum Diff’rent Strokes. Eftir þættina leiddist hann út í fíkniefnaneyslu, því miður kunnugleg örlög barnastjörnu. Árið 1989 var hann kærður fyrir að skjóta og myrða eiturlyfjasala sem hét Kenneth „Tex“ Clay. Todd fékk stjörnulögfræðinginn Johnny Cochr ane til að verja sig, sem varð seinna lög­ fræðingur O.J. Simpson. Hann var sýknaður af öllum ákærum. KYNLÍFSMYNDBAND ROB LOWE Það virðist sem Rob Lowe hafi átt langan, farsælan feril en það munaði litlu að hann færi í vaskinn seint á níunda áratugnum vegna kynlífsskandals. Myndbandi af Rob, sem þá var 24 ára, að stunda kynlíf með tveimur konum sem voru 16 og 22 ára, var lekið í fjölmiðla. Eins og hlutirnir væru ekki nógu slæmir, þá studdi Rob opinberlega Demókratann Mich­ ael Dukakis þegar hneykslið kom upp. Móðir unglingsstúlkunnar kærði Rob. Hann fékk lítil hlutverk fram að The West Wing, sem hóf göngu sína 1999. Síðan þá hefur hann átt farsælan feril og margir hafa ekki hugmynd um hneykslið, sérstaklega yngri kynslóðin sem þekkir hann sem hinn hressa og skemmtilega Chris Traeger úr Parks And Re­ creation. NEKTARMYNDIR VANESSU WILLIAMS Vanessa Williams var fyrsta svarta konan til að verða ungfrú Bandaríkin árið 1983. Það varð uppi fótur og fit þegar tímaritið Penthouse greindi frá því að það hefði komist yfir nektarmyndir af Vanessu og ætlaði að birta myndirnar án hennar leyfis. Frekar en að gagnrýna Penthouse fyrir að beita Vanessu ofbeldi af þessu tagi var það Vanessa sem sætti gagn­ rýni og þurfti að skila kórónunni og titlinum. Það liðu 32 ár þar til Vanessa fékk afsökunar­ beiðni frá skipuleggjendum Miss America. Hún hefur getið sér gott orð sem fyrirsæta, leikkona og söngkona undanfarna áratugi. MILLI VANILLI Dúóinu Milli Vanilli skaut upp á stjörnuhimininn með laginu Girl You Know It‘s True. Lagið kom út 25. júní árið 1989 og var á Billboard­listanum í 26 vikur. Um var að ræða þýskt­franskt R&B dúó frá München og saman­ stóð af Fab Morvan og Rob Pilatus. Upphafið að sorglegum endalokum dúettsins var 21. júlí 1989, aðeins rétt rúmu ári eftir að fyrsta lag þess kom út. Þeir voru að flytja lagið Girl You Know It‘s True fyrir framan 80 þúsund manns í skemmtigarðinum Lake Compounce í Connecticut í Bandaríkjunum. Fab og Rob voru eins og þeir voru venjulega uppi á sviði, orkumiklir og sýndu glæsilega danstakta. En skyndilega heyrðist alltaf sama setningin: „Girl you know it‘s, girl you know it‘s, girl you know it‘s.“ Það var eins og geisladiskur væri rispaður. Það kom í ljós að Fab Morvan og Rob Pilatus sungu ekki lögin og allt í kringum Milli Vanilli væri lygi og dulbúningur. Það tók hins vegar marga mánuði fyrir fólk að komast að sannleikanum, þar sem þetta var fyrir tíma samfélagsmiðla. Þeir neyddust til að skila Grammy­verðlaununum og urðu aðhlátursefni. ÁSTARÞRÍHYRNINGUR LIONEL RICHIE Söngvarinn Lionel Richie er tví­ giftur. Fyrra hjónaband hans varði í átján ár. Hann giftist Brendu Harvey árið 1975 en hjónin skildu árið 1993 eftir að upp komst um framhjáhald Lionel. Brenda kom að Lionel kyssa fata­ hönnuðinn Diane Alexander fyrir framan íbúð þeirrar síðarnefndu. Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs á Brenda að hafa sparkað í klofið á Lionel og hlaupið á eftir Diane. Brenda var kærð fyrir nokkur brot, meðal annars að hafa veitt maka líkamlega áverka. Stuttu seinna skildi Brenda við Lionel. Tveimur árum síðar giftust Lionel og Diane. Þau eignuðust tvö börn og skildu árið 2004. BANVÆNT BÍLSLYS Matthew Broderick og Jennifer Grey byrjuðu saman á bak við tjöldin og voru á ferðalagi um Norður­Írland árið 1987 þegar þau lentu í bílslysi. Matthew var á við stýrið og fór yfir á öfugan vegarhelming og keyrði á annan bíl. Bæði bílstjórinn og móðir hans létust samstundis. Matthew slasaðist nokkuð illa en Jennifer minni háttar. Slysið kom upp um samband þeirra. MYND/GETTY MYND/GETTY MYND/GETTY MYND/GETTY MYND/GETTY Stærstu Hollywood- skandalar níunda áratugarins MYND/GETTY M YN D /G E T T Y Þar sem er frægð og frami, þar eru skandalar og hneyksli. Með tímanum rennur fólki venjulega reiðin og hneykslin falla í gleymskunnar dá. Við rifjum hér upp sex skandala sem gerðu allt vitlaust á níunda áratug síðustu aldar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.