Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Qupperneq 4
MEST LESIÐ Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST... Hertar aðgerðir Mikil fjölgun hefur átt sér stað í vikunni á nýjum tilvikum kórónaveirunnar og því var gripið til hertra aðgerða hér inn- anlands í vikunni. Sóttvarnalæknir biðlar til fólks að vera lítið á ferðinni og halda sig heima eins og kostur er. Flest eru til- fellin á höfuðborgarsvæðinu og hafa aðgerðastjórnir almanna- varna í landshlutum þar sem minna er um smit hvatt íbúa til að gera sér ekki ferð í höfuðborgina að óþörfu. Eins hefur veitingastöðum verið gert að loka klukkan 21.00 á kvöldin, líkamsræktarstöðvar eru lokaðar og sóttvarnalæknir hefur biðlað til íþróttafélaga að fresta æfingum og leikjum. Allir sem finna fyrir minnstu einkennum eru beðnir um að halda sig heima og fara í sýnatöku. Eins hefur allt helgihald þjóð- kirkjunnar verið fellt niður. Snúa vörn í sókn Smálánafyrirtækið eCommerce2020 hefur staðið í ströngu undanfarið en Neytendasamtökin hafa verið í herför gegn smálánum á okurvöxtum um nokkurt skeið. Nú hefur smálána- fyrirtækið stefnt Neytendasamtökunum og formanni þeirra, Breka Karlssyni, vegna ummæla sem látin voru falla í tölvu- póstssamskiptum milli eCommerce2020 og Neytendasam- takanna. Krefst smálánafyrirtækið þess að ummælin verði dæmd dauð og ómerk og að samtökunum verði gert að greiða skaðabætur. Málið þykir nokkuð sérstakt þar sem umrædd ummæli voru ekki látin falla á opinberum vettvangi. Mál átta kvenna tilkynnt Landlækni Sævar Þór Jónsson lögmaður sem hefur farið með mál kvenna sem telja mistök hafa átt sér stað við greiningu sýna þeirra hjá Krabbameinsfélaginu, hefur tilkynnt mál átta kvenna til Landlæknis. Konurnar fóru í sýnatöku og fengu niðurstöður um að allt væri með felldu, en telja að ef rétt hefði verið staðið að greiningu hefðu þær verið greindar með frumubreytingar. Svandís stígur til hliðar Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, steig tímabundið til hliðar frá störfum sínum í vikunni vegna veikinda innan fjölskyldu hennar. Dóttir hennar var greind með krabbamein í sumar og nú virðist sem að frekari veikindi hafi komið upp innan fjölskyldunnar sem krefjist þess að ráðherra stígi til hliðar til að hlúa að fjölskyldu sinni. Guðmundur Ingi Guð- brandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fer með verkefni Svandísar í fjarveru hennar. Hnífstunga og farbann Erlendur leikmaður Einherja í þriðju deild karla í knattspyrnu á Vopnafirði er grunaður um að hafa stungið annan mann með hníf í gleðskap á Akureyri um síðustu helgi. Þetta staðfesti lögregla í samtali við DV og greindi frá því að farið yrði fram á farbann yfir leikmanninum. Átökin í umræddm gleðskap munu hafa átt rætur að rekja til þess að vísa hafi átt leik- manninum á dyr og hafi hann tekið það óstinnt upp. Úlfúð vegna ummæla Kristján Þór Júlíusson vakti athygli í vikunni þegar hann sagði að það væri einungis lífsstíll að vera bóndi, en ekki spurning um afkomu. Lands- samband sauðfjárbænda, þing- maður Framsóknarflokksins, Silja Dögg Gunnarsdóttir, og stjórn Nemendafélags Land- búnaðarháskólans voru meðal þeirra sem gagnrýndu Krist- ján. Sjálfur segir Kristján Þór að ummælin hafi verið slitin úr samhengi og hann líti alls ekki á sauðfjárrækt sem tómstundagaman. 1 C-strengurinn er að gera allt vitlaust Svonefndur C-strengur nýtur nú nokkurra vinsælda. C- strengurinn er í laginu eins og bók- stafurinn C og er vinsæll meðal þeirra sem elska sólböð og vilja ekki för eftir nærbuxurnar. 2 „Dóttur minni var nauðgað og hún myrt“ segir Gerður. „Ég er ófær um að sætta mig við þetta“ Gerður Berndsen berst fyrir réttlæti fyrir dóttur sína Áslaugu Perlu Krist- jónsdóttur sem var myrt í Engihjalla árið 2000 en dómstólar hafa aldrei viðurkennt að Áslaugu hafi verið nauðgað. 3 Íslenskur hjartalæknir dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi – Játaði brotin Íslenskur læknir hefur verið margdæmdur sekur um um- ferðarlagabrot, meðal annars að aka án réttinda. Nýlega var hann dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar eftir enn eitt brotið. 4 Telur að sér hafi verið byrluð ólyfjan skömmu fyrir kynlíf á klósettinu Nicklas Bendtner sem lék um tíð með knattspyrnuliðinu Arsenal gaf út ævisögu nýlega þar sem hann greindi frá því að hafa verið byrlað ólyfjan. 5 Guðmundur játar syndir sínar – Biður íslensku þjóðina afsökunar Guðmundur Ólafsson hagfræðingur var í nefnd sem kom á fjármagnstekjuskatti á Íslandi. Hann sér eftir því í dag. 6 Fór í „swing partý“ og þetta lærði hún Ástralskur kynlífs- fræðingur skrifaði grein um reynslu sína af makaskipta-partýi. 7 Einhleypar og eftirsóttar DV tók saman nokkrar eftirsóttar íslenskar konur á lausu. 8 Mánuði eftir hneykslið á Ís-landi eru stjörnur Englands aftur í klípu – Fjöldi braut reglur um helgina Enn eru meðlimir breska landsliðsins í knattspyrnu að koma sér í klípu. Þrír leikmenn fóru í teiti síðustu helgi og brutu sóttvarna- reglur. OnePortal er vefgátt sem gerir fyrirtækjum og sveitar- félögum kleift að veita íbúum þjó ustu allan sólahringinn, allt árið um kring. Rafrænir innri ferlar eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa eða viðskiptavini, þar sem þeir Gæða- stjórnun á stóran þátt í góðum árangri fyrirtækja. OneQuality er lau n sem OneSystems bjóða heildarlausn í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra Hagkvæmar lausnir með áherslu á rekjanleika, auðveldan aðgang og gagnsæi. OneRecords er öug lausn sem auðveldar fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan um mál sem eru í gangi á hverjum tíma. Stjórnendur hafa yrsýn yr gang mála innan fyrirtækisins og notendur geta á einfald n máta sótt lista yr þau mál sem þeir bera ábyrgð á. Vilt þú koma skjalamálunum í l g? VELJUM ÍSLENST - VELJUM ÍS LE NS KT -V EL JUM ÍSLENSKT - Records Mála- og skjalak rf Self-Service www.one.is OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is www.one.is . one@one.is sími: 660 8551 . fax: 588 1057 4 FRÉTTIR 9. OKTÓBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.