Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Qupperneq 32
Gulrótarkaka
Þessa gulrótarköku fékk ég að
smakka hjá frænku minni í sumar
og fannst hún einstaklega góð.
Ekta haustkaka með góðum kaffi-
bolla. Ferskar gulrætur, blandaðar
hnetur og kanill; þessi blanda getur
ekki klikkað.
Gulrótarkaka
2 dl olía
200 g púðursykur
4 egg
175 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
400 g gulrætur (rifnar)
1 bolli rúsínur
250 g hnetur (ég notaði heslihnetur
og pekanhnetur )
Hreinsið og rífið gulræturnar.
Blandið öllu saman í skál og hrærið
vel saman.
Smyrjið eldfast form, setjið deigið í
og bakið í ofni við 180 gráður í um
35 mínútur.
Rjómaostakrem
200 g rjómi
100 g rjómaostur, við stofuhita
2 msk. flórsykur
Þeytið rjómann. Bætið rjómaost-
inum og flórsykrinum saman við.
Smyrjið kökuna með kreminu þegar
hún hefur aðeins fengið að kólna.
Verði ykkur að góðu.
Una í eldhúsinu
Tvöföld Toblerone gleði
Hver elskar ekki súkkulaðimús
og Toblerone? Hér er kominn ein-
staklega góður desert sem sam-
einar þetta tvennt. Hérna kemur
uppskrift fyrir 4-5 einstaklinga.
6 dl rjómi
3 egg
100 g Toblerone súkkulaði
200 g Toblerone súkkulaði hvítt
Fersk ber að eigin vali hindber,
jarðarber svo eitthvað sé nefnt.
Byrjið á hvítu músinni, en þá er
byrjað að þeyta 4 dl af rjóma.
Bræðið 200 g af hvítu Toblerone
yfir vatnsbaði.
Hrærið 2 egg í skál og hrærið
súkkulaðið saman við.
Blandið svo rjómanum saman við.
Setjið í glös og inn í ísskáp í um 5
mínútur, á meðan útbúið þið hinn
helminginn.
Byrjið á að þeyta 2 dl af rjóma.
Bræðið 100 g Toblerone yfir vatns-
baði.
Hrærið egg í skál, blandið súkku-
laðiblöndunni út í og hrærið. Að
lokum er rjómanum bætt saman
við.
Takið hvítu músina út úr kæli og
hellið dekkri blöndunni yfir þá
hvítu, setjið hindber og smá flór-
sykur til skreytingar og inn í kæli
í um 3-4 klst.
Una Guðmunds matgæðingur
DV leggur til að fólk njóti sam-
komutakmarkana heima við
með heimabakstri og spjalli.
MYNDIR/AÐSENDAR
32 MATUR 9. OKTÓBER 2020 DV