Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2020, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 01.10.2020, Qupperneq 4
Veður Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og bjart með köflum en suðaustan 5-13 m/s suðvestanlands og stöku skúrir. Hiti 3 til 8 stig að deginum. SJÁ SÍÐU 22 Sælkerar við sólarlag SAMFÉLAG „Þær björguðu mér,“ segir norski sendiherrann Aud Lise Nor- heim, um tvær konur sem komu henni til aðstoðar eftir alvarlegt slys í Heiðmörk. Hún leitar nú að þeim til að geta þakkað þeim fyrir, því hún var ekki í ástandi til að gera það á vettvangi. Aud var að hlaupa með eigin- manni sínum miðvikudaginn 23. september þegar slysið varð, um klukkan 18. Hann fór aðra leið og ætluðu þau að mætast á ákveðnum stað. En Aud hrasaði um rót eða stein, með þeim af leiðingum að hún féll harkalega og bæði fótleggs- og handleggsbrotnaði hægra megin. Lá hún ein og bjargarlaus í kannski korter, en hún segist hafa misst tímaskynið. „Ég sá tvær konur koma og þær studdu mig að bílnum sínum og keyrðu með mig á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi,“ segir Aud. Á þessum tíma hafi hún ekki áttað sig á hversu alvarlega slösuð hún var, en það hafi þó verið mjög sársauka- fullt að komast að bílnum. „Ég var með meiri verki í handleggnum en fætinum og einbeitti mér að þeim sársauka.“ Aud náði ekki nöfnum kvenn- anna og átti í raun í erfiðleikum með að átta sig á nokkrum sköp- uðum hlut, svo kvalin var hún. Hún man þó að þær voru á fertugs- eða fimmtugsaldri og í rauðum hlaupa- fötum með merki, sem gæti bent til þess að þær hafi verið í einhverjum hlaupahóp eða -liði. Bíllinn sem þær keyrðu hana á var ljósleit eða grá Kia. Daginn eftir slysið fór Aud í aðgerð vegna beinbrotanna og býst hún við því að verða útskrifuð af spítalanum bráðlega. Fer hún þá í endurhæfingu, áður en hún getur snúið aftur heim. „Mig langar til að finna þessar konur og þakka þeim,“ segir Aud. „Ég gat ekki gert það á staðnum því að ég gat ekki hugsað um neitt annað en að komast á spítalann. Ég veit ekki hvað hefði gerst ef þær hefðu ekki fundið mig.“ Vonast Aud til þess að þær hafi samband og segir að auðveldast sé að gera það í gegnum norska sendi- ráðið, sem staðsett er að Fjólugötu 17 í Þingholtunum. Símanúmerið þar er 520-0700. kristinnhaukur@frettabladid.is Sendiherra leitar að bjargvættum sínum Norski sendiherrann á Íslandi leitar að tveimur konum sem komu henni til bjargar eftir alvarlegt slys í Heiðmörk. Hún datt á hlaupum og handleggs- og fótbrotnaði. Vegna kvala náði hún ekki að þakka konunum á staðnum. Ég veit ekki hvað hefði gerst ef þær hefðu ekki fundið mig. Aud Lise Norheim, sendiherra Egilsstaðir er stærsta byggðarlag Múlaþings. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM AUSTURLAND Framsóknarf lokk- urinn og Sjálfstæðisf lokkurinn undirrituðu samkomulag um meiri- hlutasamstarf í nýju sveitarfélagi á Austurlandi, sem mun fá nafnið Múlaþing. Fengu f lokkarnir sam- anlagt 6 af 11 fulltrúum í sveitar- stjórnarkosningum sem fóru fram 19. september. Hvorki Stefán Bogi Sveinsson né Gauti Jóhannesson, oddvitar fram- boðanna, munu verða sveitarstjórar heldur verður samið við Björn Ingi- marsson, núverandi sveitarstjóra Fljótsdalshéraðs, um að verða fyrsti sveitarstjóri Múlaþings. – khg Meirihluti á Austurlandi REYKJAVÍK Nýju salernishúsi var komið fyrir við Esjuna í maí síð- astliðnum, þrátt fyrir að ekki hafi verið sótt um leyfi til að koma hús- inu fyrir fyrr en þann 8. september. Málinu var þá frestað og leyfi ekki veitt frá byggingarfulltrúa fyrr en 22. september síðastliðinn. Í frétt á vef borgarinnar þann 18. maí er sagt frá því að salernin séu komin upp og að næstu daga verði húsið tengt við lagnir og gengið frá umhverfi þess. Mögulegt verði að opna aðstöðuna almenningi í mánuðinum á eftir, það er í júní. Áætlaður kostnaður við verkið í heild er 35-40 milljónir króna. Í svari borgarinnar við fyrir- spurn Fréttablaðsins um málið segir að salernin hafi ekki enn verið tekin í notkun. Salernishúsið sé staðsett á svæði sem skilgreint sé fyrir þjónustu vegna útivistar og sé sett upp í samræmi við það. „Í samráði við skipulagsfulltrúa [var] ákveðið að gera sérstakt deiliskipu- lag fyrir svæðið og þar er lóðin fyrir almenningssalerni sérstaklega afmörkuð. Afmörkuð lóð leiðir til þess að farin er formleg leið með byggingarley f i og tilhey randi úttektum,“ segir í svarinu. – bdj Salerni sett upp við Esju án leyfa Náðhúsinu var komið fyrir þann 18. maí en leyfið veitt 22. september. Syndsamlega góð kaka með engri fyrirhöfn! Aud Lise losnar bráðlega af spítala og hefur endurhæfingu. MYND/AÐSEND Áætlaður kostnaður við verkið er 35 til 40 milljónir króna. Öngþveiti myndaðist við bakka Lækjarins í Hafnarfirði í gærkvöldi þegar endur og álftir kepptust um bestu bitana sem þessi gjafmildu börn buðu upp á. Í blíðviðri sem þessu er kjörin hugmynd að heimsækja þessa fiðruðu félaga og gefa þeim korn og fræ í gogginn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.