Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2020, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 01.10.2020, Qupperneq 24
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Fylgið okkur á FB SKOÐIÐ NETV ERSLUN LAXDAL.IS ÞÚ FÆRÐ YFIRHÖFNINA HJÁ LAXDAL TRAUST Í 80 ÁR Tískuhönnuðurinn Christian Louboutin ætlar að beita óhefðbundinni aðferð við að kynna vor- og sumarlínu sína á tískuvikunni í París. Línan verður kynnt í stafrænum heimi í snjall- símaforritinu Zepeto. Þar verður hægt að spígspora um í nýju skónum hans á frægum stöðum í París og eiga samskipti við aðra notendur sem eru að gera það sama. Fjallað var um kynninguna á vefnum Footwearnews. Louboutin ætlar að nota forritið til að kynna vor- og sumarlínu fyrir næsta ár, fyrir bæði karla og konur. Fjölmiðlafólk og útvaldir gestir fá að skoða Loubi World á morgun. Það er stafræn veröld þar sem notendur geta fengið sér ís eða pönnuköku, farið á tónleika með söngkonunni King Princess, átt samskipti við aðra notendur og prófað skóna í nýju línunni. Nær til yngri kynslóðarinnar Þetta er harla óvenjuleg leið til að markaðssetja nýja línu, sérstak- lega fyrir lúxusmerki eins og Louboutin, en á tímum COVID- Kynna línu í stafrænni veröld Franski tískuhönnuðurinn Christian Louboutin valdi óvenjulega leið til að kynna vor- og sumar- línu sína fyrir næsta ár á tískuvikunni í París. Hægt verður að skoða línuna í stafrænni veröld. Skór franska tískuhönnuðar- ins Christan Lou boutin eru vinsæl lúxustísku vara meðal ríka og fræga fólksins. Hann kaus að kynna línuna fyrir næsta vor og sumar í stafrænni veröld, sem er aðgengileg gegnum snjall- forritið Zepeto. MYND/GETTY Stafrænar útgáfur af Christian Louboutin, King Princess og Quincy Brown. MYND/CHRISTIANLOUBOUTINHér er for- smekkur af því sem verður hægt að sjá og upplifa í Loubi World, en þar er meðal annars glansandi Eiffel turn og hringekja. Í Loubi World er meðal annars hægt að sjá verslunarganginn Galerie Véro- Dodat, þar sem Louboutin opnaði sína fyrstu verslun árið 1991. Loubi World verður aðgengilegt í suðurkóreska snjallforritinu Zepeto. 19 og aukinnar snjallvæðingar á öllum stigum lífsins, gæti þetta verið ein besta leiðin til að ná til Z- kynslóðarinnar, sem sækir af þrey- ingu og upplýsingar nær eingöngu á stafrænan vettvang. Zepeto forritið er frá Suður- Kóreu og var sett í loftið árið 2018. Samkvæmt tölum frá Loubout- in sem fylgdu kynningu á Loubi World, eru notendur þess yfir 178 milljónir, 600 milljón stafrænar vörur hafa verið seldar í gegnum það og þar hafa orðið til 780 millj- ón myndir og myndbönd. Meirihluti notenda eru stelpur og konur á aldrinum 13-24 ára og f lestir notendanna eru frá Asíu- löndum, Rússlandi og Banda- ríkjunum. Nike og North Face eru meðal vörumerkjanna sem eru á Zepeto, en Louboutin er fyrsta lúxusvörumerkið. Kynning fyrir öðruvísi kúnna Sjálfur segir Christian Louboutin að lúxusvöruiðnaðurinn sé ekki bara fyrir þá sem hafa efni á að kaupa vörurnar, heldur líka fyrir fólk sem hefur áhuga á tísku og dreymir um hana. Þetta nýja fram- tak er tilraun til að kynna merkið á öðruvísi hátt fyrir öðruvísi við- skiptavini. Louboutin segist ekki mjög tæknivæddur og varla fær um að kveikja á sjónvarpinu, en hann tók eftir því hve margir leituðu í tölvu- leiki í einangruninni á þessu ári. Í Zepeto þurfa notendur fyrst að búa sér til persónu og þær hafa allar unglegt og dúkkulegt útlit, en kyn er ekki atriði og það eru engar takmarkanir á stíl, svo allir notendur geta verið í hverju sem þeir vilja. Notendur geta svo búið til prófíla sem svipar til Insta- gram, sent hver öðrum skilaboð, eða tekið þátt í stafrænum sam- komum þar sem allt að 25 þúsund manns geta komið saman í einu. Í Loubi World er hægt að sjá nokkra af uppáhaldsstöðum hönnuðarins í París. Þar eru Eiffel- turninn, útikaffihús, hringekja og Galerie Véro-Dodat, 200 ára gamli verslunargangurinn þar sem Louboutin opnaði sína fyrstu verslun árið 1991, sem og eftirlík- ing af f laggskipsverslun Louboutin við Rue Saint Honoré. Þeir sem vilja ekki taka þátt eða spila geta líka horft á myndband sem sýnir Loubi World. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.