Fréttablaðið - 01.10.2020, Síða 26

Fréttablaðið - 01.10.2020, Síða 26
Eitt af einkennis- merkjum hennar eru sjöl af ýmsu tagi, mörg hver með kögri, blúndur, hattar, þykkir hælar og efni á borð við flauel. Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Stevie Nicks er fædd 26. maí árið 1948 í Phoenix. Hún hafði mikinn áhuga á ævin- týrum þegar hún var barn og var ekki nema fjögurra ára þegar hún byrjaði að syngja dúetta ásamt afa sínum, sem var tónlistarmaður. Þegar hún var sextán ára fékk hún gítar í afmælisgjöf og samdi í kjöl- farið sitt fyrsta lag sem bar heitið „I’ve loved and I’ve lost, and I’m sad but not blue“. Upphaf ódauðleika Árið 1967 var Nicks stödd í gleð- skap þar sem ungur maður að nafni Lindsey Buckingham sat og spilaði og söng lagið „California Dreamin‘“. Nicks gekk upp að honum, hóf upp raust sína og tóku þau lagið saman. Þau kynntu sig síðan hvort fyrir öðru en Nicks sagði tvö ár hafa liðið frá þessum fundi og þar til þau hittust á nýjan leik. Það var þá sem Buckingham bauð Nicks að ganga til liðs við hljómsveitina sína, Fritz, og áttu þau meðal annars eftir að hita upp fyrir Jimi Hendrix og Janis Joplin. Nicks sagði síðar að það hefðu allt- af verið straumar á milli hennar og Buckingham, en að hinir meðlimir sveitarinnar hefðu verið hikandi í garð hennar og ekki tekið hana alvarlega. Hljómsveitin lagði upp laupana 1971 og Nicks og Buckingham héldu sína leið sem dúó og urðu bráðlega elskendur. Þau gáfu út plötuna Buckingham Nicks árið 1973 en framan á plötuumslaginu var svarthvít mynd af þeim berum að ofan. Tveimur árum síðar gengu þau til liðs við hljómsveitina Fleetwood Mac sem hafði þá notið töluverðra vinsælda í Bretlandi, en með komu Nicks og Buckingham varð hljómsveitin enn vinsælli. Það gekk þó á ýmsu á bak við tjöldin en árið 1976 slitnaði upp úr sambandi Nicks og Buckingham auk þess sem hljómborðsleikari sveitarinnar Christine Perfect og bassaleikarinn John McVie ákváðu að skilja eftir átta ára hjóna- band. Þá skildi Mick Fleetwood, trommuleikari hljómsveitarinnar einnig við sína konu um svipað leyti. Þrátt fyrir sambandsslit, Draumkennd og seiðandi Stevie Nicks er ein áhrifamesta tónlistarkona og tískufyrirmynd allra tíma. Nicks er sveipuð dul- úð, bæði í textagerð og klæðaburði, og hefur henni jafnvel verið lýst sem eins konar galdrakonu. Í hvítum síðkjól og svörtum, aðsniðnum jakka á tónleikum. Þykkt og frjálslegt hár Stevie Nicks er ekki síður eftirtektarvert. Í hvítum kjól við píanó ásamt dá- lítið hrollvekjandi dúkku árið 1981. Svartklædd og seiðmögnuð Nicks á tón- leikum í október árið 1977. MYNDIR/GETTY samskiptaerfiðleika og mikla áfengis- og fíkniefnaneyslu innan sveitarinnar, héldu þau ótrauð áfram og gáfu út plötuna og meistaraverkið Rumours í byrjun árs 1977. Sveitin hefur gefið út alls 18 hljómplötur yfir feril sinn og árið 1981 gaf Nicks út sína fyrstu sólóplötu af átta talsins. Eitt af einkennum Nicks er rám og seiðandi rödd sem á engan sinn líka. Þá er hún einnig þekkt fyrir einkennandi fatastíl en hún klæðist gjarnan síðum kjólum, oft þröngum um bringu og mitti, jafn- vel í anda lífstykkja (e. corset) en flæðandi að neðan. Eitt af hennar einkennismerkjum eru sjöl af ýmsu tagi, mörg hver með kögri, blúndur, hattar, þykkir hælar og efni á borð við flauel. Andrúmsloft áttunda áratugarins endurspeglast í klæðaburði hennar en einnig má greina gotnesk áhrif. Hér eru nokkrar myndir af þessari stór- merkilegu konu. Stevie Nicks er engri lík, hvorki í framkomu, tjáningu né útliti. Á tónleikum árið 1977, sama ár og Rumours kom út. Nicks klæðist gjarnan flaueli eins og sjá má hér. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nánari upplýsingar um blaðið veitir Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654 / jonivar@frettabladid.is FYRIRTÆKJAGJAFIR Veglegt sérblað um jólagjafir til starfsmanna og viðskiptavina fyrirtækja kemur út 9. október nk. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í mes lesna dagbl ði landsins. 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.