Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2020, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 01.10.2020, Qupperneq 27
Við erum á þessum stutta tíma búin að klára nánast alla undir- búningsvinnuna sem oft tekur margar vikur eða mánuði. Stokkur var eitt af fyrstu fyrir-tækjunum á Íslandi til að búa til öpp, en fyrsta verkefnið var að þróa og forrita Leggja-appið. Raquelita Aguilar, fram- kvæmdastjóri Stokks, segir að fyrirtækið hafi búið til öpp fyrir mörg ólík fyrirtæki og það fari algjörlega eftir þjónustu fyrirtækj- anna hvort gott sé að vera með app og hvaða möguleika appið þurfi að bjóða upp á. „Með appi er hægt að ná til notenda á persónulegri hátt en með vefsíðu. Það er til dæmis ekki hægt að senda tilkynningu beint í síma notenda frá vefsíðu, en það er hægt með gera í gegnum app. Þannig er til dæmis hægt að nota appið í markaðssetningu. Domino’s hefur til dæmis notað appið til að senda tilkynningar á notendur þegar Megavika er í gangi, eða þriðjudagstilboð,“ útskýrir Raquelita. Hún segir að í vissum tilfellum sé jafnvel betra fyrir fyrirtæki að hafa app frekar en vefsíðu, en þau hjá Stokki hjálpa fyrirtækjum að taka slíkar ákvarðanir. „Til dæmis ef hlutirnir eiga að gerast hratt, ef þú ætlar að sækja um starf, panta pitsu eða kaupa lottómiða, þá viltu geta gert það á ferðinni. Þú vilt ekki þurfa að fara í tölvuna eða opna vafra í símanum þínum til að fara inn á vefsíðuna. Í slíkum tilfellum er betra að hafa app.“ Stokkur hefur hannað og þróað mörg af vinsælustu öppum á Íslandi eins og Strætó-appið, Dominos, Lottó, Aur og Einka- klúbbs-appið. Einnig bjó Stokkur til Alfreðs-appið á eigin vegum, sem er nú komið í sjálfstæðan rekstur. „Það er stanslaus þróun þegar kemur að tækni og hugbúnaði. Tæknilega séð erum við að gera aðra hluti í dag en við vorum að gera fyrir tveimur til þremur árum. Maður þarf alltaf að vera á tánum og fylgjast með nýjungum í tækniþróun. Það er í raun okkar hlutverk að upplýsa viðskiptavini þegar einhverju er ábótavant hvað varðar tæknina,“ segir Raquelita. Hún segir að þau hjá Stokki fylg- ist vel með þróuninni hjá Apple og Google en núna notast þau aðallega við nýtt forritunarmál frá Google sem kallast Flutter. „Þetta er forritunarmál sem er einn kóðabasi sem spýtist út á bæði Android og iOS. Áður vorum við með tvo forritara og tvo kóðabasa, einn sem forritaði fyrir Android og annan sem for- ritaði fyrir iOS. Eftir að við fórum að nota Flutter er hægt að hafa bara einn forritara sem forritar fyrir bæði stýrikerfin. Þannig getum við dregið úr kostnaði fyrir viðskiptavini. Það er auð- veldara að gera prófanir, bæta við nýrri virkni og viðhalda appinu, ef forritað er á þennan hátt. Við erum alltaf að leita að slíkum lausnum og höfum prófað ýmislegt í gegnum tíðina, eins og Xamarin og React Native, en Flutter stendur upp úr og höfum við sérhæft okkur þar síðustu 2-3 árin. Í dag erum við til dæmis með minna teymi en við vorum með fyrir tveimur árum en á móti f leiri verkefni.“ Nokkurra mánaða vinna á einni viku sem skilar árangri Raquelita segir að það sé alltaf nóg af verkefnum hjá Stokki. Í kjölfar COVID séu að koma öðruvísi fyrirspurnir en áður, þar sem fólk er farið að átta sig á því að það þarf að geta gert f leiri hluti í fjar- lægð frá öðrum í gegnum app eða vefsíðu. Hún segir það fara eftir umfangi hvað það taki langan tíma frá því fyrirtæki óskar eftir appi og þar til það er tilbúið. „Við leggjum alltaf til að fólk taki Hönnunarsprett með okkur, eða útfærslu af Hönnunarspretti. Þetta er vikusprettur og förum við í rauninni í gegnum þriggja til fimm mánaða vinnu á einni viku. Við þarfagreinum og for- gangsröðum svo það verði færri óvissuþættir og betri skilningur á milli allra. Með Hönnunarspretti höfum við náð að láta hugmynd verða að veruleika eftir aðeins nokkra mánuði.“ Hönnunarsprettur fer þann- ig fram að fyrstu tvo dagana er Stokkur í hugmyndavinnu með viðskiptavininum. Síðan er gerð þarfagreining á því sem þarf að vera í appinu/vefsíðunni og for- gangsraðað. Að því búnu eru drög að hönnun gerð, það er frumgerð, og prófanir gerðar á henni og lagfæringar ef tími gefst til. Allt er þetta gert á einni viku. „Á síðasta degi erum við með kynningu fyrir viðskiptavininn og förum yfir helstu niðurstöður. Eftir þennan sprett er fyrirtækið komið með pakka sem inniheldur þarfagreiningu, forgangsröðun, notendasögur, skýringamyndir, skjámyndir, og jafnvel kostnaðar- og tímaáætlun, svo eitthvað sé nefnt. Viðskiptavinurinn getur nýtt þennan pakka til þess að sækja fjármagn eða sannfæra sína stjórn ef þess þarf. Við erum á þessum stutta tíma búin að klára nánast alla undirbúningsvinnu sem oft tekur margar vikur eða mánuði,“ útskýrir Raquelita. Hún segir mjög verðmætt fyrir viðskiptavininn að vera kominn með frumgerð sem búið er að gera prófanir á og vera kominn með endurgjöf frá hugsanlegum notendum appsins. „Við tökum stjórn á þessu og viðskiptavinurinn þarf ekki að spá í neinu. Hann þarf bara að koma með opinn huga og við sjáum um rest.“ Haltu fast í hugmyndina og Stokkur sér um útfærsluna Stokkur Software sérhæfir sig í hönnun og þróun á öppum og vefsíðum. Frá árinu 2007 hefur fyrirtækið búið til fjölda vinsælla appa eins og Strætó, Alfreð, Dominos, Lottó, Einkaklúbbinn, Aur og fleiri. Starfsfólk Stokks er alltaf á tánum og fylgist vel með öllum nýjungum í bransanum. Raquelita Aguilar, framkvæmdastjóri Stokks, segir þau hjá fyrirtækinu fylgjast vel með nýjustu tækni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓLK KYNNINGARBLAÐ 9 F I M MT U DAG U R 1 . O K TÓ B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.