Fréttablaðið - 20.10.2020, Side 14
Svavar Þórisson, verslunarstjóri Múrbúðarinnar, segir að mjög margir séu að gera
endurbætur á heimili sínu þessa
dagana, þar á meðal að endurnýja
baðherbergi, skipta um gólf
efni og mála. „Það hefur verið
mikið að gera hjá okkur, margir
að breyta til hjá sér. Nú er fólk
meira heima og margir að ráðast
í framkvæmdir sem hafa kannski
beðið,“ segir hann og bendir á að
endurgreiðsla virðisauka af vinnu
iðnaðarmanna hafi líka hvetjandi
áhrif á fólk. „Þótt margir séu lag
hentir og geti gert margt sjálfir þá
er ákveðið öryggi fólgið í því að fá
faglærða iðnaðarmenn í verkið að
einhverju eða öllu leyti.
Það er nauðsynlegt að vanda
til verka þegar baðherbergið er
endurnýjað. Þeir sem vilja gera
baðherbergið vatnsþétt ættu að
kíkja til okkar í Múrbúðinni því
við erum með heildstætt kerfi frá
Murexin. Með því að nota þetta
kerfi er tryggt að baðherbergið
verður pottþétt vatnsþétt,“ segir
Svavar. „Það hefur aukist að fólk
noti þetta efni á alla veggi, undir
f lísar en það minnkar líkur á
myglu og rakaskemmdum.“
Pottþétt – vatnsþétt
með Murexin
„Murexin rakavarnarkerfið
byggir á nokkrum hlutum og
uppfyllir kröfur EN 14891 og
einnig ÖNORM B 3407.
Helstu hlutar kerfisins eru:
LF1 „penetrating“ grunnur,
Murexin 1KS rakaþéttikvoða,
sem oft er kölluð „dúkur í dós“
og loks þéttiborðar fyrir horn.
Þetta eru þeir hlutar kerfisins
sem mynda rakavörnina undir
f lísalögnina. Síðan er mælt með
að nota Murexin KPF 35+ f lex
f lísalím og FM 60 f lex fúgu og
að lokum bakteríudrepandi
Murexin Mastic silíkon til að
þétta til dæmis við samskeyti.
Murexin mælir með því að
nota grunn undir rakaþétti
kvoðuna á öll efni nema raka
þolið gifs. Grunnurinn tryggir að
rakaþéttikvoðan binst betur við
vegginn. Samkvæmt rannsókn
um eykst binding við steypta
f leti um meira en 140% þegar
grunnur er notaður,“ útskýrir
Svavar.
„UNIplatte baðplöturnar eru
mikið notaðar til að breyta á bað
herbergjum. Plöturnar eru ein
angrandi og vatnsheldar bygg
ingarplötur sem eru notaðar til
dæmis til að búa til sturtubotna,
byggja í kringum innbyggð kló
sett og utan um baðkör. Hægt er
að f lísaleggja beint á plöturnar
þar sem ekki er ástæða til að bera
rakaþéttikvoðu á áður.“
Flísar skapa rétta stemmingu
„Múrbúðin býður mikið úrval
af gegnheilum f lísum sem eru
vinsælar á baðherbergi. Í dag
er algengt að nota sömu gerð
af f lísum bæði á gólf og á veggi.
Það gefur baðherberginu heild
stæðan svip, þar sem f lísarnar eru
bakgrunnur fyrir innréttingar og
tæki. Við fáum stundum myndir
frá viðskiptavinum þar sem þeir
sýna hvernig baðherbergið var
fyrir og hvernig það lítur út eftir
að það hefur verið f lísalagt með
f lísum frá Múrbúðinni og það
er skemmtilegt,“ segir Svavar og
bendir á að margir séu líka að
átta sig á hversu góð málningin sé
sem Múrbúðin er með. „Við erum
með sænska gæðamálningu. Það
er hægt að kaupa þessa frábæru
málningu á Múrbúðarverði, sem
þýðir að fólk málar meira fyrir
minna.
Svo erum við með allt sem fólk
þarf til að taka baðherbergið
í gegn, alveg frá AÖ. Vönduð
blöndunartæki og vaska, salerni,
sturtur og frábær keramiksturtu
tæki, gólfefni, jafnt f lísar sem
parket, ásamt öllum efnum til
undirvinnu. Í Múrbúðinni er
mikið úrval af f lísum og einnig
er boðið upp á að sérpanta f lísar.
Það er gríðarlegt úrval sem hægt
er að sérpanta og þar geta jafnvel
þeir vandlátustu fundið f lísar
við hæfi. Gráir tónar hafa verið
vinsælir hjá okkur og f lestir velja
mattar f lísar,“ segir Svavar. „Vin
sælustu stærðirnar á f lísunum eru
30x60, 60x60 og 60x120. Þá hefur
marmari verið að koma inn ásamt
viðarútliti.“
Niðurföll
„Falleg niðurföll setja svip á bað
herbergið. Hjá Múrbúðinni fæst
mikið úrval f lottra niðurfalla frá
Evimetal. Hægt er að velja um mis
munandi lengdir og gerðir niður
falls og síðan velja úr úrvali mis
munandi rista sem passa smekk
hvers og eins. Niðurföllin og
ristarnar eru úr ryðfríu stáli og eru
á mjög hagstæðu verði.“
Meiri gæði á lægra verði
„Íslenskir neytendur eru orðnir
vanir því að borga 50100% hærra
verð fyrir byggingarvörur en þær
kosta erlendis,“ segir Svavar.
„Múrbúðin leggur hins vegar
metnað sinn í að bjóða sambærileg
verð á byggingarvörum og erlendis.
Þannig kosta 14 kíló af Murexin 1KS
rakaþéttikvoðu 10.495 krónur hjá
Múrbúðinni. Sama vara kostar 81,60
evrur í netverslun Amazon, sem er
um 13.300 krónur. Íslenskir neyt
endur fá því sömu vöruna meira en
20% ódýrari hjá Múrbúðinni.
Rannsóknir hafa sýnt að verðlag
á Íslandi er um 6070% hærra en í
Evrópu. Miðað við það væri „rétt“
íslenskt verð á þessari rakakvoðu
um 20.000 krónur dósin en hjá Múr
búðinni kostar hún aðeins 10.495
krónur.
Margir neytendur hafa áttað
sig á því að hjá Múrbúðinni fá þeir
hágæða vöru á miklu lægra verði
heldur en annars staðar hérlendis
og oft á verði sem er sambærilegt
eða lægra en varan kostar erlendis,“
segir Svavar.
Múrbúðin er á þremur stöðum,
Kletthálsi 7, sími 412 2500, Sel-
hellu 6, Hafnarfirði sími 412 2500
og Fuglavík 18, Reykjanesbæ, sími
421 1090.
Múrbúðin er með heimasíðuna
murbudin.is
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Múrbúðin er
að Kletthálsi
7, Selhellu í
Hafnarfirði og í
Reykjanesbæ.
Glæsilegur,
vandaður
sturtuklefi með
niðurfalli frá
Múrbúðinni.
Nýjustu flísarnar eru margar með
marmara- eða viðarmynstri.
Baðherbergi fyrir endurbætur.
Sama baðherbergi eftir breytingar. Öll efni voru keypti í
Múrbúðinni og vel má sjá glæsilega breytinguna.
Murexin rakavarnarkerfið byggir á nokkrum hlutum og
uppfyllir allar kröfur sem gerðar eru á Evrópustuðlum.
Framhald af forsíðu ➛
Skýring á því hvernig rakavarnarkerfið er sett upp.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R