Fréttablaðið - 20.10.2020, Page 16

Fréttablaðið - 20.10.2020, Page 16
Sólveig Andrea hefur alltaf haft mikinn áhuga á hönnun og öllu því sem tengist hönnun. Hún lærði innanhúss- arkitektúr í Mílanó á Ítalíu og útskrifaðist árið 1998 frá Istituto Superiore di Architettura e Design í Mílanó. Hún hefur verið sjálf- stætt starfandi frá árinu 2014 en hefur unnið gegnum tíðina hjá Pennanum, TARK arkitektastofu og síðast á AKS arkitektastofu. „Ég nýt þess að vera sjálfstætt starf- andi og ráða tíma mínum sjálf, geta unnið þegar mér hentar og á hvaða tíma sem er,“ segir Sólveig Andrea sem hefur mikla ástríðu fyrir því sem hún er að gera, teikna og hanna fyrir ólíka einstaklinga og koma til móts við óskir þeirra og drauma. Sólveig Andrea hannaði meðal annars þessi glæsilegu baðher- bergi í loftíbúð við Hverfisgötuna með glæsilegri útkomu. Hér hefur notagildið og fagurfræðin farið vel saman. Samræmi í lita- og efnisvali Þegar kemur að því að teikna og hanna ákveðin rými innan heim- ilisins er brýnt að huga að heildar- myndinni við önnur rými. „Það sem mér finnst mikilvægt þegar það er verið að hanna heimili og taka það allt í gegn er að mynda heild. Hafa samræmi í lita- og efnisvali við það sem er fyrir svo það skapist f læði á milli rýma. Einnig er mikilvægt að ef um fleiri baðherbergi er að ræða að hafa þau í svipuðum stíl. Nota sams konar innréttingarnar, hafa „minni“ útgáfu af því stóra sem er oftast gestabaðherbergi.“ Notagildið og fagurfræðin fara vel saman „Brýnt er að leggja bæði áherslu á þægindi og notagildi svo rýmið fái notið sín en allt þarf þetta að hald- ast í hendur. Það er ekki til neins að hanna eingöngu fyrir útlitið ef notagildið er ekki til staðar. Þegar við vorum að hanna bað- herbergin á Hverfisgötunni vorum við að hugsa um að hafa þau kósí og reyna að fá svona „spa“ stemm- ingu þar inni sem eykur notagildið til muna. Flísarnar eru valdar með það í huga að þær séu náttúrulegar og innréttingar dökkar eins og annað í íbúðinni. Við settum ekki f lísar á alla veggi heldur leyfðum veggjunum sem fyrir voru að halda sínu útliti og áferð, eins og hægt var en máluðum þá. Einnig skiptir lýsingin miklu máli þegar verið er að hanna baðherbergi. Góð vinnu- og stemmingslýsing er lykilatriði þegar kemur að hönnun baðherbergja og ég lagði mikið upp úr því við hönnun þessara baðherbergisrýma.“ Þegar við vorum að hanna baðher- bergin á Hverfisgötunni vorum við að hugsa um að hafa þau kósí og reyna að fá svona „spa“ stemmingu þar inni sem eykur notagildið til muna. Hlýleiki, dökkir tónar og falleg hönnun Margt ber að hafa í huga þegar baðherbergið er innrétt- að hvort sem verið er að gera upp gamalt eða innrétta í nýju húsnæði. Við fengum að skoða fallega hönnun eftir Sólveigu Andreu Jónsdóttur innanhússarkitekt í loftíbúð. Sólveig Andrea Jónsdóttir innanhússhönnuður. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Handklæðaofninn passar vel inn í umhverfið, keyptur í Byko. Handlaugar og salerni eru frá Ísleifi Jónssyni. Vandað er til verka á baðherbergjunum. Útlitið er ný- tískulegt, stílhreint og rúmgott pláss fyrir alla hluti. Innréttingar frá Fagus í Þorláks- höfn. Blönd- unartækin eru svört, mjög flott ítölsk hönnun með mjúkum línum og fagur- fræðin skín í gegn. Sturtu- hausarnir eru svartir, líta út eins og stórir dropar og koma vel út. Blönd- unartækin eru frá Birgisson. Reyklitaða glerið við sturtuna setur skemmtilegan svip á umhverfið. Litlu hlutirnir gera mikið fyrir rýmið. Flísarnar eru stórar og í fallegum jarðlit, grátóna og eru líka frá Birgisson. Sjöfn Þórðardóttir sjofn@hringbraut.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.