Fréttablaðið - 20.10.2020, Side 30

Fréttablaðið - 20.10.2020, Side 30
C&J SILVER stillanlegt rúm Aðeins 141.570 kr. n C&J Silver er með sterkum stálbotni og kraftmiklum en hljóðlátum mótor. n Rúminu fylgir þráðlaus fjarstýring með tveimur minnum og ljósi. n Botn rúmsins dregst að vegg þannig að þú ert í eðlilegri fjarlægð frá náttborði og lampa. n Sérstakur takki á fjarstýringunni kemur rúminu í upphaflega stöðu. 15% AFSLÁTTUR* AFMÆLIS * ef C&J Silver stillanlegur botn er keyptur með Nature’ Rest Luxury heilsudýnu er 15% afsláttur af botni og 20% afsláttur af dýnunni. VERÐDÆMI A: 90 x 200 cm stillanlegt C&J Silver rúm með Nature’s Rest Luxury heilsudýnu: Fullt verð: 168.900 kr. Við eigum afmæli og nú er veisla Láttu drauminn rætast SENDUM FRÍTT Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Við sendum þér vörurnar frítt hvort sem þú kaupir á dorma.is eða í DORMA-verslun AVIGNION hægindastóll með skemli Stillanlegur hægindastóll með innbyggðum skemli. Grátt áklæði Fullt verð : 109.900 kr. Aðeins 87.920 kr. 20% AFSLÁTTUR AFMÆLIS GOLF „Keppnistímabilinu mínu lauk mun fyrr en vanalega vegna áhrifa kórónaveirufaraldursins. Á sama tíma geri ég ráð fyrir að byrja undirbúninginn fyrr fyrir næsta tímabil,“ segir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir atvinnukylfingur, aðspurð hvernig líf atvinnukylf- ingsins sé þessa dagana í miðjum heimsfaraldri. Ólafía, sem hefur verið með þátttökurétt á LPGA- mótaröðinni undanfarin ár, náði að taka þátt í tveimur mótum í Evrópumótaröðinni á þessu ári og náði best 20. sæti í Tékklandi. „Ég komst inn af biðlistanum á þessi mót vegna árangurs míns til þessa á ferlinum en tímabilinu er í raun lokið hjá mér.“ Ólafía er með þátttökurétt á Symetra-mótaröðinni í ár, næst- sterkustu mótaröð Bandaríkjanna, en tók aðeins þátt í einu móti. For- svarsmenn Symetra tilkynntu kylfingum í upphafi árs, þegar ljóst var að mótafyrirkomulagið yrði ekki það sama og óvíst hve- nær mót færu fram, að kylfingar myndu halda þátttökurétti sínum óháð úrslitum á þessu tímabili. „Þau tilkynntu okkur snemma að þetta tímabil myndi í rauninni ekki teljast til árangurs á stiga- listanum. Stigalistinn yrði endur- ræstur í lok tímabils og allir myndu byrja á sama stað. Fyrir vikið tók ég ákvörðun að vera meira á Íslandi í staðinn fyrir að ferðast í óvissuna sem hefur verið í Bandaríkjunum á þessu ári,“ segir Ólafía, aðspurð út í viðbrögð Symetra við áhrifum COVID-19. „Þau hafa tekið mjög vel á þessu. Það eru sömu skipuleggj- endur á Symetra og LPGA og þau hafa verið samstíga í þessu. Nú eru þau að fara í meira sam- starf við Evrópumótaröðina sem eru mjög spennandi tíðindi fyrir framtíðina.“ Fyrir vikið eru engin úrtökumót fyrir LPGA á dagskrá í ár. „Það er alveg leiðinlegt að þurfa að bíða í tvö ár eftir næsta tæki- færi að komast aftur inn á LPGA en svona er staðan þessa dagana.“ Sjálf hefur Ólafía tekist á við nýtt hlutverk sem golf kennari undan- farnar vikur. „Ég var með eina konu í kennslu sem vildi endilega komast í einhvern hóp. Ég auglýsti því að ég væri með laus pláss fyrir konur og það komu þvílík viðbrögð. Meiri en ég átti von á,“ segir Ólafía glað- beitt um nýja hlutverkið. „Það hafa margir spurst fyrir hvort að ég taki að mér kennslu í gegnum árin og ég hef ekki verið að bjóða upp á það fyrr en núna. Ég hef fundið það að ég vil vera hvetjandi manneskja fyrir ungu kynslóðina og reyna að setja gott fordæmi eins og fyrir- myndirnar sem ég var með þegar ég var sjálf að stíga mín fyrstu skref í golfi.“ Vegna kórónaveirunnar hefur þurft að loka æfingasvæðum kylf- inga á Íslandi í tvígang til þessa á árinu. Ólafía þurfti því að fara aftur í ræturnar þegar kom að golf- æfingum. „Þetta hefur verið sérstakt ár. Í fyrstu bylgjunni þegar allt var lokað var ég að slá í net í bílskúr. Það minnti bara á þegar ég var lítil að æfa við þessar aðstæður. Undan- farin ár hef ég verið svo góðu vön að geta f logið til Spánar eða Banda- ríkjanna að æfa við bestu aðstæð- ur.“ kristinnpall@frettabladid.is Ólafía reynir fyrir sér í öðruvísi hlutverki Tímabilinu er lokið hjá atvinnukylfingnum Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur. Hún heldur fullum þátttökurétti á næststerkustu mótaröð Bandaríkjanna fyrir næsta ár og kann vel við sig að leiðbeina kylfingum í þjálfarahlutverki. Ólafía Þórunn varð Íslandsmeistari í holukeppni í þriðja sinn á ferlinum fyrr í sumar. MYND/GSÍMYNDIR.NET/SETH Ég hef fundið það að ég vil vera hvetjandi manneskja fyrir ungu kynslóðina og setja gott fordæmi. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is 2 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.