Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Page 5
homma og vil ekki vita af því hér
handan við vegginn. Það er svo
skrýtið að mér finnst frekar æsandi
að sjá tvær konur í atlotum á bíó-
myndum en tveir karlmenn, það er
óþægilegt. Mér finnst þið strákarnir
eigið að halda ástarlífinu innan
vissra marka og ekki vera að flagga
þessu um of. Þið verðið lika frekar
fyrir aðkasti.
En hinir fara nú ekki beinlínis
i felur með einkalíf sitt.
— Það er rétt, aðrir leyfa sér
meira.
Kom systir hans t.d. heim með
stráka eftir böii í gamla daga?
— Nei, það gerði hún nú ekki.
Hefurðu haft nokkur kynni af
Samtökunum ’78?
— Jú, þegar ég fékk að vita að
MMSKIFIIVIÐ
F0RELDR4
Árni væri hommi og kæmi þar þá
hringdi ég í símatímann og talaði
við mann sem var skynsamur og
velviljaður. Ég vildi vita hvort starf-
ið þar væri eitthvað annað en sukk
og drabb. Mig hefur annars langað
til að vita hvort þið hefðuð nokkra
styrktarfélaga eða þvíumlíkt. Fólk
sem vildi auðvelda ykkur að lifa í
samfélagi sem sjálfsagt verður
ykkur alltaf andsnúið á margan
hátt.
Nei, þá höfum við ekki, en þeir
væru vel þegnir. Við höfum í
blaðinu hvatt foreldra til að
kynnast með aðstoð Samtakanna ef
þeir kæra sig um en ekki fengið
undirtektir.
— Eitthvað svona held ég að
gerði fólki gott. Stundum hefur mig
5