Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Síða 28

Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Síða 28
verið refsivert í Englandi. Hin svo- nefnda frelsishreyfing homma — ,,Gay liberation movement“ — varð til í Bandaríkjunum með Stonewall uppþotunum 1969, er lögreglan í New York gerði rassíu á hommabar einum, en gestirnir svör- uðu með munduðum hnefum. Þó að lögin, sem banna samkyn- hneigð og önnur ,,kynferðisafbrot“ séu enn í gildi í u.þ.b. helmingi ríkja Bandarikjanna eru hommar engu. að síður bæði sýnilegri og njóta meiri viðurkenningar í amerískum stórborgum en i Englandi. Þar er á- stæðunnar ekki síst að leita í frelsis- baráttu kvenna og þeldökkra, en sú barátta leiddi í ljós að hommar eru einnig fórnarlömb misréttisins. Bandaríkjamenn, sem ekki leyna þvi að þeir eru hommar, hafa tekið sæti í borgarstjórnum og verið valdir til að gegna embættum á veg- um fylkisstjórnanna. Mismunun á grundvelli kynhneigðar hefur þeg- ar veríð bönnuð á mörgum sviðum, m.a. i stjórnarráðinu. Stjórnmála- menn, allt frá Edward Kennedy til Marion Barry, borgarstjóra í Wash- ington, reyna að fiska atkvæði meðal homma. í þessu umburðar- lynda andrúmslofti skjóta hommar upp kollinum á mun fleiri sviðum en hinum hefðbundnu hommasvið- um, þ.e. sem hárgreiðslumenn, gluggaskreytingarmenn eða sjúkra- liðar. A.m.k. sautján verslunarfé- lög hafa verið stofnuð með ,,The National Association of Business Councils” (Landssamband við- skiptaráða) í broddi fylkingar. í Bandaríkjunum eru hópmynd- anir meðal homma áberandi, ekki síst þar sem þeir njóta mestrar við- urkenningar. Þekktastur þessara staða er San Francisco þar sem lítt umburðarlyndir hommar kalla hina gagnkynhneigðu íbúa ,,afætur“. Hommar eru taldir vera 15 — 25 % af íbúum borgarinnar. Allar amer- ískar stórborgir hafa sín homma- hverfi. Á austurströndinni er Wash- ington talin helsta hommaborgin. Barist um hylli homma Nú þegar þessi hópur fjársterkra borgarbúa kemur fram í dagsljósið er komið að auglýsendum að berj- ast um hylli þeirra. Blöð sem í aðal- atriðum eru ætluð hommum inni- halda vaxandi fjölda auglýsinga frá ,,straight“ fyrirtækjum, sem fyrir fáeinum árum síðan hefðu talið þessi blöð bannvöru. Flest þessara tímarita koma út i litlu upplagi en telja sig þó hafa stóran hóp lesenda. Stærsta ritið í Bandaríkjunum er ,,The Advocate“ og er gefið út í ná- grenni San Francisco í 80.000 ein- tökum. í auglýsingu í „New York Times“ heldur ritstjórn blaðsins því fram, að það sé lesið af 350.000 manns i öllu landinu. Blaðið ,,Gay Alaska“ í Anchorage er í hópi hinna minni rita með 1.000 eintök á mánuði. Enska ritið „The Gay News“, sem hóf útgáfu sína 1974 er prentað í 25.000 eintökum þó að flest stærri dreifingarfyrirtæki þvertaki fyrir að þau dreifi því. Athuganir, sem „The Advocate“ og ,,Gay News“ hafa látið gera á lesendahópum sinum, leiða í ljós, að hommar í þessum tveimur lönd- um hafa tiltölulega rúmar ráðstöf- unartekjur. Upplýsingar „The Ad- vocate“ sýna að 36% af lesendum blaðsins þénuðu yfir 200.000 ísl. kr. árið 1980, ennfremur að 40% áttu tvo eða fleiri bíla og 87% voru í fullu starfi. Neysla hommana bein- ist að umtalsverðu leyti að ýmiss konar þjónustu svo og lúxusvarn- ingi og menningarafurðum. Hér má nefna vín, leigubílaþjónustu, snyrti- vörur, kvikmyndir, hljómplötur og bækur. Veruleg fylgni er á milli þess hvaða aðilar auglýsa í „The Advo- cate“ og hins hvert lesendurnir beina eftirspurn sinni. Athuganir „Gay News“ sýna hliðstæðan áhuga á tómstunda- og lúxusvarningi meðal enskra homma. Hinn dæmigerði lesandi blaðsins neytir matar á veitinga- stöðum mun oftar en menn i samanburðarhópum, kaupir fleiri bækur, fer oftar í leikhús og er mun áhugasamari um nýja tækni, svo sem vídeó og heimilistölvur. Enskir hommar kaupa meira áfengi en ,,heteróar“, ferðast oftar erlendis, en kaupa mun færri miða að fót- boltaleikjum. „Stundum er goðsag- an um okkur raunhæf“, segir Rob- ert Palmer, auglýsingastjóri „Gay 28

x

Samtökin '78 - Úr felum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.