Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Síða 31

Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Síða 31
F R É T T I R DÝR BROTT- VIKNING Á liðnum fimm árum hefur um 2000 hermönnum verið vikið úr bandariska hernum ár hvert fyrir að vera lesbíur eða hommar. Brott- rekstur fyrir þessa ,,sök“ telst vera ,,með skömm“, svo að viðkomandi missir öll réttindi sem fylgja því að hafa þjónað hernum, svo sem eftir- launaréttindi. í rannsókn sem gerð var að tillögu nokkurra bandarískra þingmanna kom í ljós að kostnaður ríkissjóðs vegna þessa brottreksturs er samt tilfinnanlegur, og er áætl- að að um 23 milljónir bandaríkja- dala fari forgörðum ár hvert vegna útlagðs kostnaðar við þjálfun, laun og uppihald hermanna sem síðan er vikið úr hernum á grundvelli kyn- hneigðar. Árið 1981 var kaþólskur prestur á Keflavikurflugvelli handtekinn af herlögreglunni, sem hafði komist á snoðir um að hann væri hommi. Prestur gaf upp nöfn 58 hermanna sem honum var kunnugt um að væru hommar, og var þeim öllum vikið úr hernum ,,með skömm“. En að launum var prestur fluttur til í starfi og er nú sóknarprestur á Hawaii. JACOB SCHORER-GATA í borginni Dordrecht í Hollandi hefur götu einni verið gefið nafn eftir Jacob nokkrum Schorer. Milli heimsstyrjaldanna hafði hann for- göngu um rekstur stofnunar sem rannsakaði málefni lesbía og homma eftir fyrirmynd Magnúsar Hirschfeld í Þýskalandi. Eftjr her- nám þjóðverja 1940 lét hann eyða öllum skjölum stofnunarinnar og bókasafn hennar glataðist. En á götuskiltinu í Dordrecht stendur nú: Jacob Schorer-gata, 1866—1957, brautryðjandi fyrir frelsi lesbía og homma. RAKKAUDEN MONET KASVUT Fyrsta bókin á finnsku um málefni lesbía og homma er komin út. ,,Hin mörgu andlit ástarinnar“ heitir hún. BLEIKÁST UNDIR RAUÐRISTJÖRNU Félag lesbía og homma í Austurríki hefur gefið út bók sem nefnist ,, Bleik ást undir rauðri stjörnu". Hún fjallar um kjör lesbía og homma í kommúnistalöndum. Og ekki vantar að þau séu misjöfn, hvað sem hver kann að halda. Skipulögð félög lesbía og homma starfa nú í Austur-Þýskalandi, Pól- landi og Tékkóslóvakíu, sum í tengslum við kirkjuna. í Sovétríkj- unum er öllu erfiðara um vik að starfa að réttindamálum, þó er til félag lesbía og homma í Leníngrad. í Búlgariu, Rúmeníu og Albaníu er talið útilokað að svo stöddu að efna til samtaka lesbía og homma. Það kann að þykja lúxus að ,,fá“ að hafa félag í Póllandi, en þar setja ráðamenn sömu reglur og í einu ó- nefndu landi, baráttufélag lesbía má ekki heita baráttufélag lesbía. Það heitir „Vinir griskrar eyja- menningar“. DÝRASTA DJÁSNIÐ í Nýju-Delhí á Indlandi er búið að stofna hommafélag. Það hefur sent eftirfarandi lýsingu á aðstæðum les- bía og homma á Indlandi til Al- þjóðasamtakanna, IGA: ,,Samkynhneigð varðar við lög á Indlandi. Meira en þrír af hverjum fjórum indverjum eru hindúar, og flestir þeirra, sem eru hommar, eru umskornir. Eftir því sem AIDS-tilfellum fjölgar í heiminum fjölgar þeim sem laðast að báðum kynjum, eins þó að þeir séu giftir. Það eru engir hommabarir eða hommadiskótek á Indlandi, en í Nýju-Delhí eru tveir garðar þar sem mikið er á seyði eftir sólsetur. Þeir eru í miðborginni, Borgargarðurinn og Nehrúgarðurinn, sem eru afar stórir með gosbrunnum, blómum og bekkjum og miklu mjúku grasi. Hér sest maður og horfir eða fær sér stutta göngu og fitjar smám saman upp á samræðum. En hér þarf að hafa mikla gát því að lög- reglumenn eru innanum og maður getur orðið fyrir mikilli fjárkúgun. Á götunum er auðvelt að kynnast ákaflega fallegum ungum mönnum sem girnast fljótheitakynlíf eða einnar nætur kynni. Vegna þess hve allir eru í felum segja þeir ekki til nafns og taka ekki þátt í varan- legri vináttu. Kynlífsfélagar koma úr röðum sendiráðsstarfsmanna, flugáhafna, tískusýningarmanna, hótelstarfsmanna og hermanna. Langflestir tala góða ensku og eru hlýlegir og vingjarnlegir og gestrisn- ir. Þó að konur á Indlandi séu smám saman að tileinka sér vestræn við- horf njóta þær ekki jafnréttis við karla. Lesbíur eru svotil óþekkt hugtak á Indlandi.“ FÓLKSFJÖLG- UNARVANDAMÁL? Á fundi Sameinuðu þjóðanna í GLÆPUROG REFSING Hommar sem ferðast utan lands vita að í hverri borg og í hverjum bæ kynnast hommar i almennings- görðum og á almenningssalernum. Þetta á sér langa sögu og á að sjálf- sögðu uppruna sinn í kúgun homma sem leiðst ekki að hittast neins staðar í húsum inni, auk þess sem þeir voru í felum fyrir fjölskyldu sinni og vinum. Hver sem er getur átt erindi á þessa staði og þarf ekki frekari skýringar á veru manns þar. En það hefur auðvitað verið kjör- inn vettvangur fyrir yfirvöld að láta homma kenna á kúguninni að láta lögreglu sitja um þá á slíkum stöð- um. Sérstaklega tíðkast þetta í eng- ilsaxnesku löndunum, en á Norður- löndum er hommum yfirleitt óhætt að þessu leyti. Mikið uppistand varð í Bretlandi i fyrra þegar starfs- aðferðir lögreglunnar voru afhjúp- aðar í sambandi við handtöku að- stoðarráðherra nokkurs á skemmti- stað homma. Sérstök deild lögregl- unnar í London fæst við að draga úr mannlegum samskiptum, m.a. með þvi að óeinkennisklæddir starfsmenn hennar leggja leiðir sínar á hommaslóðir, gera sig lík- lega til þess að hafa áhuga á nánum kynnum við aðra karlmenn, og þegar þau hafa tekist draga þeir skírteinið upp úr vasa sínum og handtaka ástmanninn tilvonandi sem var. Lögregluþjónninn sem handtók aðstoðarráðherrann var orðinn alþekktur á skemmtistöðum Mexikó um fólksfjölgun hreyfðu Sovétmenn tillögu um fordæmingu á vændi og samkynhneigð. Hlátra- sköllin sem hún vakti ollu því að hún komst ekki á dagskrá. MOZART - VISS- UÐ ÞIÐ ÞAÐ? Beethoven og Tjækovski, það viss- um við. En Mozart? Eftir því sem segir i nýjum myndaflokki austur- ríska sjónvarpsins strauk strákur að heiman og hélt til Feneyja til að njóta ástar fiðlusnillingsins Thoms Lindlay. Bréf þeirra eru enn varð- veitt. homma fyrir heillandi framkomu og aðdáunarverðan klæðaburð. Hneyksli þetta allt var við hann kennt og nefnt „Pretty police". Lögregluhneyksli af svipuðu tagi kom upp í smábænum St. Catharin- es skammt frá Niagaraborg í Kan- ada nýlega.' Lögreglan hafði falið myndbandstæki á almenningssal- erni einu, og þegar nægilegu mynd- efni hafði verið safnað lét hún til skarar skriða gegn 32 mönnum á aldrinum 19 ára til 69 ára. Þeir voru kallaðir fyrir og tilkynnt að lögregl- an ætti myndir af tittlingnum á þeim beinstífum og að opinber ákæra yrði lögð fram. Jafnframt var blöðum send frétt um málið, með nafni og heimilisfangi „brota- mannanna“. í tilvikum sem þessum er ætlast til þess að menn fallist á dómsátt til þess að losna við frekari eftirtekt. Þetta framferði yfirvalda er ekki ný bóla, en almenningur sá það i nýju ljósi þegar fréttist um sjálfs- morð eins mannanna. Hann var 42 ára, giftur og tveggja barna faðir, og gat ekki afborið að hrekjast úr felum sem hommi á þennan hátt. Hann hellti yfir sig bensíni og kveikti i. Mjög margir hafa lýst skömm sinni á framferði lögreglunnar, og kunnur blaðamaður skrifaði m.a. i „Toronto Sun“: Ég finn til fyrir- litningar gagnvart lögreglumönnum sem liggja á gægjunt. Tvö börn eru orðin föðurlaus og maður látinn á óhugnanlegan hátt, og það fyrir eitt að við höfum ekki haft skilning og pólitiskan vilja til þess að setja lög- reglunni skorður." 31

x

Samtökin '78 - Úr felum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.