Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Page 32

Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Page 32
F R É T T I R HJÓNABANDS- MARKAÐURINN í BRETLANDI „Burke’s Peerage“, skrá yfir fyrir- fólk í Bretlandi, mun ekki innihalda nöfn þess bláblóðsfólks sem fær AIDS. „Það gæti verið að erfða- vísarnir réðu því hverjir fá AIDS. Við tökum enga áhættu,“ segir rit- stjórinn. Ákvörðun þessi gildir einnig fyrir „Burke’s Blood and Gold CIub“, skrá yfir þá sem þykja efnilegir til hjónabands sökum auðs eða ættar. KÚBUMENN SKULU VERAÍ FELUM „Það er ekki ráðlegt fyrir kúbanska homma að koma úr feium. Þá verða þeir sendir úr Iandi.“ Sagt á Kúbu? Nei, í Bandaríkjunum! Les- endur muna að árið 1980 áttu sér stað mjög sérkennilegir fólksflutn- ingar frá Kúbu til Bandarikjanna. Tugir eða hundruð þúsunda Kúbu- manna héldu á bátum yfir til Flór- ída. í augum uppi lá að stjórnvöld á Kúbu stóðu fyrir því að fólkið færi úr landi, þau voru að losa sig við ó- æskilega þegna. Mjög margir flóttamannanna voru hommar, sem olli lagatúlkunarvandkvæðum hjá bandarískum stjórnvöldum. Sam- kvæmt bandarískum lögum mega hommar nefnilega ekki koma til landsins! Og hvernig sem allt breyt- ist í bandarísku þjóðfélagi er þess- um lögum framfylgt af hörku. Margir Kúbumannanna áttuðu sig ekki á þessu og kváðust við komuna vera hommar og hafa flúið Kúbu vegna réttleysis þar. Þeir hafa síðan mátt dúsa í fangabúðum. Nú hafa bandarísk yfirvöld skýrt frá því að mál þessara manna verði tekin upp á ný svo að Kúbumennirnir megi setjast að í Bandaríkjunum. Skil- yrði er að þeir er sögðust við kom- una vera hommar taki þau orð aft- ur. Að öðrum kosti verða þeir send- ir til Kúbu. SHIRLEY BASSEY VAR ÓHAMINGJU- SÖM í HJÓNA- BANDINU Þó að Shirley Bassey hljóti að hafa vitað að hún væri í allnokkru uppá- haldi hjá hommum hefur hún látið hafa eftir sér botnlaust rugl um þá, og það svo að margar plötubúðir homma í Bandaríkjunum hafa sett við dyrnar hjá sér ruslatunnur til þess ætlaðar að henda plötunum hennar í. Það nýjast sem er af henni að frétta er að hún kom í veg fyrir 32 að A1 Chorley („homminn" í Dynasty) syngi eitt laga hennar. Hún vill ekki að neinn með „gay image“ (þekktur í tengslum við homma) syngi lög sín. Fyrrum um- boðsmaður kerlingar segir að ónot hennar stafi af því að maðurinn hennar fyrrverandi hafi reynst vera hommi. Það hafi henni þótt afleitt. ÁSTIR AUDENS Wystan Auden var þekktasta ljóð- skáld breta. Hann ferðaðist um ís- land með vini sínum O’Neill sum- arið 1936 og skrifaði um þá ferð stórfræga ferðabók, „Letters from Iceland”. Honum var boðið hingað til lands iöngu seinna, fyrir rúmum 20 árum, til þess að sjá gamla land- ið. Að Auden væri hommi vissu all- ir, en fóru með það sem manns- morð. Nú er komin út ný ævisaga hans eftir Dorothy J. Farnan, „Auden in love: The intimate story of a life-long love affair." Christopher Isherwood (hann samdi söguna sem söngleikurinn Kabarett byggist á) segir frá því í bókinni „Christopher and his kind“ þegar þeir Auden komu á- samt fleira fólki til hafnar í New York. Hann spáir: „Elskurnar mín- ar, hér munuð þið finna þann sem þið leitið — félagann sem þið getið afhjúpað ykkur fyrir, og hlotið ást hans fyrir að vera það sem þið eruð en ekki það sem þið þykist vera. Og þú, Wystan, þú finnur hann fljótt, innan þriggja mánaða...“ Auden fann hann, og þrjátíu ár- um seinna orti hann til hans ljóðið „Loneliness” þegar hann var í burtu um stundarsakir. Auden var 32 ára þegar hann kom í höfn í New York, Chester Kallman var 18 ára. Að svo miklu leyti sem Kallmans hefur verið getið í fyrri ævisögum Audens hefur hann komið við sögu sem maðurinn sem eldaði oní Auden og maðurinn sem átti sam- starf við Auden um að semja ljóð við hljómlist. Næst þegar Audens verður minnst á íslandi má ekki gleyma ástinni hans. SKRÝTNAR TÖLUR Komið hefur í ljós að tölur um skiptingu AlDS-sjúklinga á áhættu- hópa eru gallaðar. í N-Ameríku tíðkast að setja hvern mann í aðeins einn áhættuhóp þó að hann sé í raun í fleiri hópum, og er þá höfð forgangsröð, þannig að sé maður hommi og hafi notað sprautuvímu- lyf, þá telst maður í hommahópn- um en ekki í vímuhópnum. í San Francisco kom í ljós að 12% þeirra AIDS-sjúklinga, sem höfðu verið taldir til hommahópsins, höfðu not- að sprautur til þess að komast í vímu. Eftir fund vísindamanna um AIDS í Atlanta í Bandaríkjunum í apríl er þeirri skoðun að vaxa fylgi að það spilli fyrir skilningi á sjúk- dómnum að gera ráð fyrir sérstök- um áhættuhópum. KÖNGULÓARMAÐ- URINN í BLÍÐU, EKKISTRÍÐU Fregnir frá Chicago herma að Köngulóarmaðurinn segi frá því í nýlegu hefti að þegar hann var lítill strákur hafi annar strákur, pínulítið eldri, sýnt sér æsandi blöð og sagt svo: „Gáum hvort við getum gert eins og fólkið á myndunum.“ Lengra nær sagan ekki, enda ekki til þess efnt. Hún er runnin undan rifjum nýrrar hreyfingar í Banda- rikjunum sem vill stuðla að því að efla sektarkennd barna vegna löng- unar sinnar til kynlífs. MINNISVARÐI í MAUTHAUSEN Hinn 9. desember 1984 var afhjúp- aður í Mauthausen, einum al- ræmdra fangabúða Þjóðverja á valdatíma nasista, minnisvarði um lesbíur og homma sem týndu lífinu fyrir verknað nasista. Félög lesbía og homma í Austurríki standa að honum. HVAR ERU MÖRK- IN MILLI TRÚAR OG HATURS? Hæstiréttur Noregs hefur kveðið upp dóm í máli Hans Bratteruds, forstöðumanns safnaðar sem kenn- ir sig við full-evangelísku. Hann vakti þjóðarathygli í Noregi í fyrra fyrir kyndugan útvarpsþátt. Söfn- uður hans útvarpar á nóttunni fyrir- bæna- og lækningaþáttum. Piltur nokkur gerði það af skömm sinni að hringja til Bratteruds í beinni út- sendingu, og sagðist vera hommi, og spurði hvað hann gæti gert fyrir sig. Bratterud bað svipstundis fyrir strák að hann mætti hverfa til mátulegrar kynhneigðar og bætti svo við í leiðinni að guð sæi til þess að öllum lesbíum og hommum yrði vikið úr opinberum stöðum. Forbundet av 1948, félag lesbía og homma í Noregi, kærði kauða umhendis fyrir að brjóta lagagrein þá, sem var sett 1981 og leggur refs- ingu fyrir að efna til haturs gegn samkynhneigðu fólki. I undirrétti var trúarsannfæring talin réttlæta hatursáróðurinn, en nú hefur hæsti- réttur komist að gagnstæðri niður- stöðu; trúin var honum engin af- sökun. Þó að það sé ótrúlegt er það satt að fjöldamargir söfnuðir í Noregi hafa fundið það lagagreininni um bann við misrétti gagnvart lesbíum og hommum til foráttu, að hún hamli boðun og iðkun trúarinnar. Ókunnugir hljóta að spyrja sig hvaða kristilegheit það séu sem bíða hnekki við svo sjálfsögð mannrétt- indi sem þau sem lagagreinin á að vernda. UNGMENNA HELGIN í MALMÖ Nokkur íslensk ungmenni sækja ungmennahelgi lesbía og homma í Malmö í júní. Ársfundur Alþjóðasamtaka les- bía og homma (IGA), sem Samtök- in ’78, félag lesbía og homma á Is- landi, hafa átt aðild að frá upphafi, verður haldinn í Toronto í Kanada í byrjun júlí. Vegna kostnaðar sækir enginn íslenskur fulltrúi fundinn í ár. DANSAÐí DISNEYLANDI Disneyland í Kaliforniu hefur verið dæmt til þess að greiða 25.000 dala málskostnað i máli sem spannst af því að í því landi máttu menn ekki dansa saman væru þeir af sama kyni. Dæmt var eftir nýlegum lög- um sem banna atvinnufyrirtækjum að mismuna viðskiptamönnum.

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.