Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Page 7
AÐ VERA OG TILHEYRA
7
um málefni trans fólks. Ritstýra ætlar að leyfa sér að
kalla hana tímamótagrein. Þegar við lítum um öxl til
að minnast fortíðarinnar er líka mikilvægt að hafa hinn
pólinn, gleymskuna, í sjónmáli. Sagnfræðingurinn Iris
Ellenberger á grein í ritinu um minni og gleymsku í
samhengi við réttindabaráttu og söguvitund sem er gott
að hafa í bakhöndinni næst þegar slegið er í glas og haldin
ræða um horfna tíma.
Eins og glöggir lesendur sjá eru áherslur ritsins
frekar lagðar á málefni heldur en einstaklinga. Edda
Sigurðardóttir fjallar um bleikþvott, sem er tiltölulega
nýtt hugtak á Islandi, og ritstýra fjallar um málefni
hinsegin flóttafólks. Menning og listir fá einnig sinn
skerf. Ynda Eldborg lýkur upp dyrunum á Galleríi 78 og
býður upp á brot af því besta í veglegum myndaþætti og
Bjarndís Helga Tómasdóttir ræðir við Agnesi Jónasdóttur,
Ástu Kristínu Benediktsdóttur og Lönu Kolbrúnu
Eddudóttur um Regnbogaþráð, hinsegin leiðsögn um
grunnsýningu Þjóðminjasafnsins. Regnbogaþráðurinn, þó
að fínlegur sé, markar í raun ákveðin straumhvörf þar sem
hann fléttar hinsegin sjónarhorn saman við grunnsýningu
Þjóðminjasafnsins, sem ber hinn gildishlaðna titil „Þjóð
verður til“. Má því ekki segja að þar með höfum við
öðlast fíngerðan, en sterkan, þráð í þjóðarsögunni? Síðast
en ekki síst birtist hér viðtal við Bjarna Snæbjörnsson
leikara um einleik sem hann er með í bígerð og byggir á
skápasögu hans sjálfs.
í þessu einlæga viðtali minnist Bjarni á fordóma sem
hann hafði gagnvart sjálfum sér og hvernig honum fannst
hann þurfa að moka yfir eigin vanlíðan af því að allt var
í himnalagi í samfélaginu. Þetta viðtal hreyfði við mér
og ég tengdi við margt sem Bjarni sagði. Eg man eftir
því að hafa sjálf átt erfitt með að horfast í augu við eigin
fordóma og skammast mín fyrir það vegna þess að allt átti
að vera svo frábært í hinsegin paradísinni Islandi. Mér
fannst ég stundum vera allra síðasta sort að bögglast með
fordóma frá síðustu öld í farteskinu. Samfélagið virtist
standa við bakið á mér, eða allavega var dregin upp sú
mynd á yfirborðinu, af hverju gat ég það þá ekki sjálf? I
þessu samhengi rifjast oft upp fyrir mér grein sem ég las í
einum af lífstílsdálkum fréttablaðanna rétt eftir aldamót
þar sem rætt var við þrjár ungar lesbíur. Viðtal sem ég
man nánast orðrétt þrátt fyrir að hafa verið nýskriðin inn
á unglingsaldurinn þegar það birtist.
Viðtalinu var ætlað að vera á hressu nótunum, lauflétt
innsýn í reynsluheim hóps sem var framandi, en þó ekki
svo framandi að fólk sypi hveljur. Þar kom glöggt fram
að grunnt var á fordómum hjá sumum af þessum ungu
konum gagnvart þeim sjálfum. Ein af þeim talaði um
hvað orðið lesbía væri ljótt því það skæri svo í eyrun á
meðan önnur spólaði í sama hjólfarinu með hugleiðingum
um trukkalesbíur og dró upp býsna neikvæða mynd af
þeim sem einhvers lags and-konum sem engin vildi fá
í partíið til sín. ímynd sem engin sómakær lesbía vildi
samsama sig með. Þetta eru tilbrigði við kunnuglegt stef
sem á ættir að rekja aftur í dýpstu kima feðraveldisins.
Fátt grefur jafn dyggilega undan karlmennskuforræði og
akkúrat lesbíur, konur sem elska aðrar konur, enda hefur
ímynd hinnar ógurlegu, ókvenlegu, ófríðu lesbíu lengi
verið notuð sem refsivöndur á konur sem stíga of langt
út fyrir mörk þess sem æskilegt þykir á hinum þrönga
vegi kvenleikans. Lúmskari og lágstemmdari útgáfa af
þessu stefi er hin lífseiga flökkusögn um að orðið lesbía sé
ljótt. Fjölmörg úr okkar röðum þekkja vel baráttuna við
skilgreiningarvaldið, að fá að nota eigin orð yfir sig sjálf.
Það mátti ekki nota orðin hommi og lesbía í útvarpinu
á sínum tíma, þau þóttu of dónaleg eða of útlend, og
trans þótti lengi vel ekki heldur ekki nógu vandað mál.
En löngu eftir að útvarp allra landsmanna fór að taka sér
orðið lesbía í munn var hluti af okkur sem veigraði sér enn
við að nota það, því einhvers staðar þreifst sú hugmynd
að það væri ljótt. Auðvitað er sjálfsagt að finnast orð
misfalleg en ef það er einlæg skoðun einhvers að lipurt
orð, sem fellur vel að íslenskri málvenju og lýsir sjálfri
ástinni, sé ljótt er ef til vill kominn tími á að leita inn á við
og spyrja sig: Af hverju?
Hér er ekki ætlunin að stilla þessum konum upp
við vegg með því að rifja upp gloríur úr fortíðinni.
Vitnisburður þeirra og framsetningin í viðtalinu bendir
einfaldlega til þess að slík viðhorf hafi verið útbreidd í
samfélaginu á þessum tíma. Og eru jafnvel enn. Nýverið
var til dæmis forsíðuviðtal í einu af stóru blöðunum við
homma sem agnúaðist út í dragdrottningar fyrir að taka
sér of mikið pláss. í hans huga var mikilvægt að koma því
á framfæri að hommar gætu líka verið venjulegir og að
honum þætti miður að Samtökin ’78 og önnur hinsegin
félög eyddu of miklu púðri í óvenjulegt fólk. Það er vel
hægt að lesa þetta viðtal á svipaðan hátt og viðtalið við
ungu lesbíurnar 20 árum fyrr. Það segir ef til vill sitt um
djúpstæða gagnkynhneigðarhyggju samfélagsins að hluti
af kynslóðinni sem átti að hafa fæðst inn í forréttindin -
þau sem áttu að njóta uppskeru kynslóðanna á undan og
upplifa ísland 21. aldarinnar þar sem „baráttan var búin“ -
skuli ennþá vera að glíma við fortíðardrauga og fordóma.
Það er mikilvægt að geta rætt viðkvæma hluti, jafnvel
hluti sem er óþægilegt að horfast í augu við. Öll þau
sem fylgst hafa með starfi Samtakanna ’78 undanfarin
ár vita vel að það er full þörf á umræðu um sjálfsmyndir
í fortíð og nútíð og hvað þær merki, bæði fyrir okkur
persónulega og í stærra samhengi. Enn mikilvægara er
að slík umræða eigi sér breiðari og vandaðri vettvang
en athugasemdahala á samfélagsmiðlum. Þess vegna er
útgáfa sem þessi mikilvæg og það er einlæg von ritstýru
og ritnefndar að blaðið veki áhuga og umræður meðal
lesenda. Blað sem þetta nær því miður aldrei að spanna
allt litróf regnbogans, og það er vel. Hinsegin flóran á
Islandi væri ansi fátæk ef það væri hægt að gera henni skil
í einu tímariti en við leyfum okkur að vona að sem flest
geti fundið eitthvað við sitt hæfi.