Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Blaðsíða 17

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Blaðsíða 17
ÓSÝIMILEG ÆVISTÖRF 17 Sigþór Sigþórsson. maðurinn ó bak v/ið tjöldin tíunda áratugnum, þegar verkefnin urðu sérhæfðari, fag- væðingin hófst og hlutverk félagsmanns og sjálfboðaliða tóku að vaxa í sundur. Þegar ekki var lengur sjálfsagt að allir félagar ynnu sjálfboðastörf skapaðist þörf til að víður- kenna sérstaklega framlag þeirra sem lögðu þau á sig. Hvort hægt er að gera það kerfisbundið og af sanngirni, án þess þó að það rýri hlutverk hugsjónarinnar, er svo önnur saga. Að fó að tilhevra: IMýjar raddir og sjálfsmyndir í sögu sjálfboðaliða Samtakanna ’78 er þó líka nauðsynlegt að skoða ósýnileika þeirra sem bjuggu eða búa við skert tækifæri til að taka þátt í störfum félagsins. Húsnæði þess var að mestu óaðgengilegt fólki í hjólastól þar til 2015 og enn er ýmsum atriðum er varða aðgengi fatlaðs fólks að Samtökunum ábótavant. Fólk af erlendum uppruna hefur einnig haft takmörkuð tækifæri til þátttöku í starfinu, sérstaklega þau sem ekki hafa náð fullum tökum á íslensku. Eins og svo oft áður hafa sjálfboðaliðar átt frumkvæðið að mikilvægum úrbótum. Andrés Peláez, hommi frá Gvatemala sem á íslenskan eiginmann, átti stóran þátt í því að árið 2016 fór félagið að bjóða upp á sérstök alþjóðakvöld fyrir fólk af erlendum uppruna. „Mig langaði að skapa vettvang fyrir erlenda íbúa á höfuðborgarsvæðinu til að koma saman og deila reynslu sinni af því að búa á Islandi. I mínum huga var þessum kvöldum ætlað að sporna við einmanaleika og einangrun, vandamálum sem hafa mikil áhrif á hinsegin samfélagið,“ segir Andrés um tilurð kvöldanna. Að ýmsu leyti kallast þessi lýsing á við lýsingar á upphafsárum Samtakanna, þar sem ríkasta þörfin var fyrir félagslegt athvarf og sjálfsstyrkingu. En hinsegin fólk af erlendum uppruna á Islandi er þó og verður miklu sundurleitari hópur heldur en fyrstu kynslóðir félaga í Samtökunum ’78. Lengst af voru Samtökin ’78 félag lesbía og homma. Fólk úr öðrum hinsegin sjálfsmyndarhópum hafði því litla ástæðu til að leita til félagsins og gat fengið slæmar viðtökur ef það hafði samband. Stormasamt samband félagsins við tvíkynhneigða hafði lengi mikil áhrif á tækifæri þeirra og löngun til þátttöku í starfinu. Og jafnvel þegar félagið var byrjað að þreifa fyrir sér með að verða „LGBT-félag“ eins og algengt var orðið í nágrannalöndum örlaði á íhaldssemi gagnvart erindum úr nýjum áttum. Til dæmis hafði núverandi formaður Intersex íslands, Kitty Anderson, samband við skrifstofu félagsins um miðjan fyrsta áratug 21. aldarinnar og fékk þau svör að intersex væri allsendis ótengt málefnum samkynhneigðra og ætti ekki heima
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1494

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.