Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Blaðsíða 40
40
sjálft talað fyrir því að besti stuðningurinn felist í
sniðgöngu á ísrael, vörum og þjónustu en ekki síður
menningarviðburðum. Það fór þó svo að RÚV ákvað að
senda lag í keppnina og haldin var hér forkeppni eins og
vanalega. Svo virðist sem mörgum hafi þótt Hatari skásti
kosturinn úr því ísland tæki þátt á annað borð. Enda gaf
hljómsveitin sjálf það út að með þátttöku sinni vildi hún
gagnrýna stefnu Ísraelsríkis gagnvart Palestínu.
Alls óháð því hvað fólki finnst um þátttöku,
mótmæli eða sniðgöngu skapaðist önnur umræða um
Hatara, atriði þeirra og skírskotun í BDSM-menningu.
Spurningar vöknuðu um hvort atriðið og búningarnir
væru menningarleg aðlögun, hvort Hatari væri að eigna
sér menningu BDSM-fólks og hve óviðeigandi það væri
þegar jaðarmenning er notuð sem „krydd“ í því sem
einstaklingar utan hópsins gera. Þáverandi varaformaður
félagsins BDSM á íslandi, Margrét Nilsdóttir, svaraði
þessari gagnrýni á þá leið að þau væru sátt við fram-
setningu Hatara. „Þeir fara vel með táknin okkar, fara
alla leið með þetta (nota flottan, vandaðan, vel hannaðan
búnað), eru ekki að skrumskæla eða hæðast að okkur,
heldur vanda sig og sýna þessu ákveðna fagmannlega
virðingu, sem er eitthvað sem maður sér sjaldan þegar
verið er að „fá lánað“ eitt og annað úr menningu okkar.“
í samtali við Mbl.is sagði Margrét sigur Hatara ákveðinn
sigur fyrir BDSM-samfélagið og að henni þætti viðhorf
fólks til BDSM-menningar vera að breytast, fólk væri
farið að þora að tjá sig um hvað því fyndist fallegt, líka
þegar um væri að ræða vísanir í þessa menningu.
I kjölfar sigurs Hatara í undankeppninni og í
aðdraganda aðalkeppni Evróvision birtist hins vegar
holskefla auglýsinga frá íslenskum fyrirtækjum með
skýrar og áberandi BDSM-vísanir. Bónusgrísinn með
múlgrímu, sælgætisumbúðir með leður- og gaddaólar,
meira að segja strætó birtist í fullum skrúða. Foreldrar
hlupu einnig til og græjuðu „Hatarabúning" handa
börnunum sínum fyrir öskudaginn.
Kannski birtust þarna einfaldlega breytt viðhorf,
eins og Margrét sagði, og aukið samþykki á BDSM og
vísunum til þess. Evróvision er þó verulega vinsæl keppni
meðal Islendinga og algengt er að sjá Evróvisiontilboð
og annað slíkt í kringum keppnina. Mörg komast ekki
hjá því að spyrja sig hvort fyrirtækin hefðu séð sér hag í
slíkum BDSM-vísunum ef tengslin við Evróvision hefðu
ekki verið til staðar. Er þá um raunverulega breytt viðhorf
og aukið samþykki að ræða eða sjáum við þarna annað
afbrigði bleikþvottar, einhvers konar „kink-washing“?
Athvglisuiðskipti eða „sannfœring:i fyrirtœkja
I þessu samhengi er áhugavert að rifja upp pistil Halldórs
Armands Ásgeirssonar, „Hinsegin athyglisviðskipti",
sem birtist á vef RÚV þann 11. september 2019 en tilefni
hans, í það minnsta að nokkrum hluta, var opinber
heimsókn Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, til
Islands nokkrum dögum áður. í pistlinum var rætt um
hvort fyrirtæki hefðu yfirhöfuð siðferði. Að mati Halldórs
var svarið einfalt: „Nei, það hafa þau ekki. Það er hluti
af skilgreiningu þeirra. Eina siðlega krafan sem gerð
er til [fyrirtækja] er að þau starfi án siðgæðisvitundar
að því markmiði að skapa hagnað fyrir eigendur sína.“
Halldór vísaði til lagalegrar umgjarðar fyrirtækja en sagði
jafnframt að áherslur í ímyndarsköpun fyrirtækja síðustu
ár hefðu færst frá lífsgleði til ídealisma. Bleikþvottinn sem
í því felst kallaði hann hann „woke washing", sem er sama
hugmynd og liggur að baki bleikþvotti en hefur breiðari
skírskotun og einskorðar sig ekki við hinsegin málefni,
þ.e.a.s þegar fyrirtæki tengja ímynd sína félagslegum
réttindamálum og breiða um leið yfir það að markmið
þeirra er aðeins að skapa hagnað fyrir eigendur sína.
Um afstöðu Pence til hinsegín fólks þarf ekki að
fjölyrða. Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakanna
’78, skrifaði í pistli á Vísi þann 11. ágúst 2019 að Pence
væri „annálaður andstæðingur og illgjörðamaður hinsegin
fólks". Hún mótmælti komu hans til landsins og tíndi til
dæmi því til stuðnings. I fyrrnefndum pistli segir Halldór
Armand það hafa verið fróðlegt að fylgjast með „fjölmiðla-
Útsendarar Coca-Cola mœttu óboðnir í
Gleðigöngu Hinsegin daga árið 2013. Eftir að
gangan uar lögð af stað renndu þeir sér inn í
halann með göngugestum. Auglýsingar hafa
alla tíð uerið bannaðar í Gleðigöngunni.