Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Blaðsíða 46

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Blaðsíða 46
46 „Það hefur ekki einu sinni uerið rœtt hvað er það sem gerir sýningargrip að hinsegin sýningargrip, hvers konar gripir spegli hinsegin sögu og svo framvegis.“ Ásta Kristín Benediktsdóttir þetta?“ spyr Ásta Kristín út í bláinn. „Við mælum þetta samkvæmt einhverjum vísindalegum stöðlum dagsins í dag. Segir það endilega alla söguna um bæði líkama fólks í gamla daga og líka hvernig fólk upplifði sig?“ Agnes bendir einnig á að kyngreining sé stundum byggð á þeim gripum sem beinagrindurnar finnast nálægt og að það geti varla talist örugg greiningarleið. „Þá er maður strax kominn inn í þessa spurningu um gender identity bara á fyrstu beinagrind, þessa sjálfsmynd sem er náttúrulega heila málið,“ segir Lana. „Það sem okkur langaði eiginlega að gera og er svo mikilvægt á öllum sýningum er að hvetja gesti til að taka ekki bara inn einhverjar staðreyndir heldur hugsa á virkan hátt um það sem er verið að fjalla um og gera sér grein fyrir því að það er ekki verið að segja einhvern einn sannleika. Þannig að þetta er þjálfun í gagnrýnni hugsun,“ segir Ásta Kristín. Lana heldur áfram: „Við erum alltaf í þessari binary hugmynd: karl, kona. Það að opna það svolítið strax á fyrstu beinagrind er gott. Það þjálfar fólk í því að hugsa bara: „Já bíddu, hvað ætli þetta sé í raun og veru fyrir framan mig?““ Markmið Regnbogaþráðarins er þannig öðrum þræði hvatning til safngestsins að horfa gagnrýnum augum á söguna, en ekki síður á það hvernig hún er sögð. Hann er hvattur til þess að velta fyrir sér sínum eigin gildum og skoðunum, hvað honum kann að finnast um einstaka þætti sögunnar bæði siðferðislega og hugmyndafræðilega. Ásta Kristín segir að þessar spurningar skipti sérstaklega máli þegar kemur að hinsegin sögu, kvennasögu og sögu hinna ýmsu jaðarhópa: „Hin ríkjandi saga hefur svo lengi verið sögð með hvíta sís-gagnkynhneigða karlinn í miðjunni og út frá því sem honum finnst merkilegt og svo framvegis. Núna erum við kannski orðin meðvitaðri og farin að hugsa meira um að það segir ekki alla söguna." Regnbogafánar og glimmerskikkjur Allar góðar hugmyndir eiga sér góða upprunasögu og hefst saga Regnbogaþráðarins á félagsfundi Samtakanna '78 árið 2016. „Ynda Eldborg lagði fram bókun á fundi um að það vantaði hinsegin sýnileika á söfnum á Islandi, ekki síst á Þjóðminjasafninu, og í kjölfarið slógumst við íris í lið með henni. Á svipuðum tíma benti Ynda á það sama í blaðagrein," segir Ásta Kristín. „Síðan svaraði Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður þessari gagnrýni í viðtali og lýsti yfir vilja til að gera eitthvað í málunum. í framhaldinu hófst samtal á milli starfsfólks safnsins og okkar, fyrir hönd Samtakanna '78, um hvað væri hægt að gera til að bæta úr þessum ósýnileika og hvernig ætti að gera það. Vinnuhópur var myndaður og boltinn fór að rúlla.“ Þessi ábending var mikilvæg því þótt lítil sýning hafi verið sett upp á Þjóðminjasafninu í samstarfi við Samtökin '78 árið 2013 hefur lítið farið fyrir sögu hinsegin fólks þar. „I upphafi vorum við að velta fyrir okkur hlutum eins og hvort við ættum að setja upp sérstaka hinsegin sýningu," heldur Ásta Kristín áfram. „Það kom í raun og veru vel til greina af hálfu Þjóðminjasafnsins að skoða það. Það hefði í sjálfu sér verið hægt að gera það en við áttuðum okkur á því að það kostaði rosalega mikla vinnu, því sýningar byggja að miklu leyti á hlutum. Það hefur enn ekki farið fram nein söfnun á hinsegin hlutum. Það hefur ekki einu sinni verið rætt hvað er það sem gerir sýningargrip að hinsegin sýningargrip, hvers konar gripir spegli hinsegin sögu og svo framvegis." Lausnina varð því að vinna með öðrum hætti. „Svo fengum við þessa hugmynd að það væri einfaldara að útbúa leiðarvísi í gegnum þá sýningu sem fyrir er og það myndi þá í raun bara kosta texta- og hugmyndavinnu en ekki söfnun gripa,“ segir Ásta Kristín. „Það er meira verið að opna ný sjónarhorn á það sem er á þessari sýningu, sem hefur staðið þarna óbreytt rosalega lengi. Opna glugga en ekki bæta við gripum nema reyndar þessum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1494

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.