Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Blaðsíða 14
14
Fagvæðing Samtakanna ’78 er samofin sögu þeirra allt frá upphafi, þótt
breytingarnar hafi verið mishraðar eftir tíðaranda og áherslum hjá forystu félagsins
hverju sinni. Greina má fyrsta vísinn að henni í metnaðarfullum stefnuskrám
upphafsáranna en í kjölfar alnæmisáranna hafa skipulagsbreytingar einatt miðað
í þá átt að færa viðkvæm, erfið verkefni yfir til fagfólks og umbuna fyrir slík störf
eftir megni. í ljósi þess er athyglisvert að hve miklu leyti grunnstoðir starfseminnar
eru upprunalegar. Ráðgjöf, fræðsla og félagsheimili hefur verið á sínum stað síðan
snemma á níunda áratugnum, ungliðastarfið bættist við undir lok þess áratugar og öll
þessi starfsemi nema ráðgjöfin fer enn að allnokkru leyti fram í sjálfboðavinnu.
Sambúð fjársveltis og fagvæðingar hafði þær afleiðingar að flestir þeir fagaðilar
sem störfuðu fyrir Samtökin voru sjálfir tengdir félaginu. í grein um rekstur
félagsins úr ritinu Stjórnun og rekstur félagasamtaka frá árinu 2008 ritar þáverandi
framkvæmdastjóri, Hrafnkell T. Stefánsson: „Löng hefð er fyrir því að leita til
velviljaðra einstaklinga með sérfræðiþekkingu á tilteknum sviðum sem oft og tíðum
gefa vinnu sína. Oft er þetta fólk félagar eða persónulega tengt félagsfólki og vill
þannig sýna stuðning sinn í verki.“ Kosturinn við þetta var að þessir einstaklingar
þekktu iðulega vel til félagsins og báru hag þess fyrir brjósti.
I dag rekur fólk sem þekkir starfsemi félagsins einungis úr fjarlægð einatt upp stór
augu þegar það heyrir að hjá Samtökunum séu ekki nema þrír til fjórir fastráðnir
starfsmenn. Lengst af hefðu Samtökin þó ekki getað látið sig dreyma um slíkt
starfsmannahald. Fyrsti framkvæmdastjórinn var ráðinn í 50% starf árið 1994
til að sinna almennum skrifstofustörfum og fræðslufulltrúi í sama starfshlutfall
árið 2001. Haustið 2007, fyrir hrun, voru bæði stöðugildin komin upp í 100% en
rekstrarstyrkir félagsins drógust snarplega saman innan tíðar og fór samanlagt
starfsmannahald ekki aftur upp fyrir eitt stöðugildi fyrr en haustið 2016.
Daníel Arnarsson, framkvæmdastjóri félagsins síðan 2017, metur að tæpur
helmingur af starfsemi félagsins fari nú fram í sjálfboðavinnu. „Þegar ég hóf
störf hjá félaginu unnu sjálfboðaliðar að meðaltali um 100 tíma á viku, eða sem
samsvarar 2,5 stöðugildum. Einhver hluti þeirra verkefna hefur flust yfir á launað
starfsfólk síðan, svo í dag er þetta nær hálfu öðru stöðugildi í sjálfboðavinnu á móti
þremur stöðugildum launaðs starfsfólks." Sjálfboðastörfin hafa líka verið „fagvædd“
á sinn hátt - jafningjafræðarar og umsjónaraðilar í félagsmiðstöð ungliða hljóta t.d.
formlega þjálfun fyrir verkefni sín.