Fréttablaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 26
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Framhald af forsíðu ➛ XXXXXXXXXXXXXXXXXXXX 2 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RGÓLFEFNI Hjá Parka hefur vöruúrvalið aldrei verið meira. „Við hjá Parka höfum breikkað vöruúrval okkar mikið undan- farin ár. Engu að síður höldum við fast í grunninn og leggjum mikla áherslu á að vera með gott úrval af viðarparketi. Að mínu mati jafnast ekkert gólfefni á við ekta parket hvað útlit, hlýju og mýkt varðar. Við erum sennilega með í kringum 50 mismunandi tegundir af parketi til sýnis hér í sýningarsal okkar á Dalvegi. Langmest af okkar parketi er fullmeðhöndlað og þá yfirleitt lakkað með möttu lakki beint frá framleiðanda og því ekkert viðhald á efninu. Einnig bjóðum við upp á olíuborið parket. Því þarf að halda við og viðhaldsolíubera helst á hverju ári en það fer að sjálfsögðu eftir notkun,“ segir Steingrímur Gústafsson, markaðsstjóri hjá Parka. Harðparket og vínylparket hafa notið mikilla vinsælda en það eru gólfefni sem þola mikið álag, risp- ast ekki svo auðveldlega auk þess að vera vatnsþolin. „Það nýjasta í vínylparketi hjá okkur er efni sem heitir Specta og kemur með áföstu undirlagi. Kosturinn við það er að leggja má vínylparketið yfir flísar og fleiri gólfefni. Misfellur í gólfi mega vera allt að 5 mm og leggja má efnið á 400 m2 flöt samfellt, án þenslu- raufar. Spectra er með 21 dB hljóð- dempun og hentar því einstaklega vel í fjölbýlishúsum og þar sem hljóðkröfur eru miklar. Það hentar á öll gólf, meira að segja baðher- bergi þar sem það þolir vatn og raka einstaklega vel. Vínylparketið er einnig mjög vinsæl lausn fyrir fyrirtæki og stóra sali,“ upplýsir Steingrímur. Hjá Parka er einnig til mikið úrval af hágæða ítölskum flísum á lager, veggfóðri, þýskum yfir- felldum innihurðum og stökum mottum. „Við höfum sérhæft okkur í kerfisloftum ásamt ýmiss konar lausnum hvað hljóðvist varðar. Með þetta breiða vöruúrval að vopni er mikið um að viðskipta- vinir okkar vilji fá tilboð í heildar- pakkann á heimilið sitt. Fólki finnst þægilegt að þurfa ekki að keyra um allan bæ, heldur geta borið allt saman á sama stað og verið í samskiptum við einn sölu- mann,“ segir Steingrímur. Náttúrulegir tónar vinsælir Þegar talið berst að því hvernig parket sé í tísku þessa dagana segir Steingrímur að það sé afar mismun- andi eftir hverju fólk sé að sækjast. „Það fer oftar en ekki eftir stíl húsnæðisins hverju sinni. Við bjóðum upp á parket með mörgum mismunandi áferðum. Sumir leita eftir sléttu viðarparketi sem er nánast eða alveg kvistalaust og aðrir vilja grófara viðarparket með burstaðri áferð, stórum kvistum og meira lífi. Náttúrulegu tónarnir hafa tekið svolítið við aftur af gráu tónunum, sem hafa verið í tísku undanfarin ár. Þessi náttúrulegi eikarlitur ásamt ljósri eik hafa verið mjög vinsælir undanfarið. Vinsæl- ustu tegundirnar af harðparketi hjá okkur eru breiðir og langir plankar en það er útlit sem okkar viðskipta- vinir eru oftast að leita eftir. Þá ertu með færri samskeyti og parketið flýtur betur í rýminu ef við getum orðað það sem svo,“ segir hann. Ýmislegt þarf að hafa í huga þegar parket er keypt, enda stór fjár- festing og eitthvað sem er komið til með að vera á gólfinu á heimilum eða fyrirtækjum. „Ef við tölum um viðarparket þá þarf til að mynda að hafa í huga hversu þykkur viðar- spónninn er og hversu mikil harka er í efninu. Einnig er gott að gera það upp við sig hvort maður vilji lakkað parket og þar með sleppa við viðhald eða þá olíuborið efni sem þarf að viðhalda. Einnig skiptir máli hversu margar umferðir eru farnar af lakki en flest okkar parket er lakkað 5-7 sinnum í verksmiðju. Ábyrgð er líka eitthvað sem skiptir viðskiptavini okkar miklu máli og í flestum tilfellum er að minnsta kosti 25 ára verksmiðju ábyrgð á okkar parketi. Ef fólk er viðkvæmt fyrir því að það sjáist á parketinu þá er sniðugra að kaupa burstað efni en ekki slétt. Þá verða rispurnar bara hluti af útlitinu. Persónulega finnst mér parket fyrst flott þegar farið er að sjást aðeins á því. Þá er kominn karakter í það og ljóst að einhver býr á heimilinu,“ segir Steingrímur. Sléttasta loft sem völ er á „Það nýjasta hjá okkur er loftadúk- ur en hann hefur notið gríðarlegra vinsælda, enda sléttasta loft sem völ er á, á markaðnum í dag. Dúkur- inn er strekktur upp á lista og uppsetning er tiltölulega fljótleg og einföld. Um er að ræða sérstaklega umhverfisvæna lausn sem inni- heldur ekki PVC-efni. Auðvelt er að taka út fyrir lýsingu og samskeyti eru ekki áberandi ef að skeyta þarf dúkunum saman. Dúkurinn dregur ekki í sig ryk og auðvelt er að þrífa hann. Einnig eru miklir möguleikar varðandi hljóðvist en þá eru steinullarplötur festar upp í loft og dúkurinn svo strekktur yfir þær,“ segir Steingrímur og bætir við að ekki sé vafi á að loftadúkurinn eigi eftir að spara mörgum tíma og vinnu við að slétta loft í húsum. Hágæðainnréttingar frá Frakklandi Hjá Parka fást hágæðainnrétt- ingar frá franska vörumerkinu Schmidt. „Við getum útvegað eldhúsinnréttingar, baðinnrétt- ingar og fataskápa. Hver innrétting er sérsmíði fyrir hvern og einn og taka innanhússhönnuðir okkar vel á móti viðskiptavinum í nýjum og glæsilegum sýningarsal okkar. Gríðarlegt úrval er í frontum og ein helsta sérstaða Schmidt er óhemjumikið úrval af litum og spónartegundum. Þetta býður upp á mikinn fjölbreytileika í efnisvali. Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á hönnunarþjónustu eftir þeirra óskum gegn vægu gjaldi sem gengur svo upp í kaupin. Afgreiðslutími hjá Schmidt er almennt um átta vikur og koma innréttingarnar fullsamsettar til landsins,“ segir Steingrímur og bætir við að allur frágangur hjá Schmidt sé til mikillar fyrir- myndar og brautirnar þær bestu í heiminum í dag. En hvað er gott að hafa í huga við kaup á innréttingu? „Þar skiptir máli að heildar- myndin á heimilinu komi vel út. Þetta þarf allt að passa saman og kosturinn við sýningarsal okkar er að hér er allt til staðar til að bera saman. Auðvelt er að bera saman frontinn á innréttingunni við parket, f lísar og innihurðir hjá okkur, svo dæmi sé tekið,“ svarar Steingrímur. En eru teppi að komast í tísku aftur? „Já, teppin hafa notið mikilla vinsælda hjá okkur. Við eigum til á lager marga mismunandi liti og áferðir. Teppi á heimastiga og stigaganga er einföld, slitsterk og góð lausn sem bætir hljóðvist og eykur mýkt. Það heitasta í teppum hjá okkur í dag eru svokölluð kósí teppi, það er að segja teppi með háu flosi og hefur það færst mikið í aukana að fólk er að teppaleggja hjá sér herbergi. Einnig getum við sniðið teppi eftir máli og búið til úr þeim mottur en þá földum við kantana fyrir viðskiptavini. Teppaflísar eru einnig mjög vinsæl lausn fyrir skrifstofur og fyrir- tæki,“ segir Steingrímur að lokum. Gólfefnin skipta öllu máli á fallegu heimili. Hér setur parketið glæsilegan svip á umhverfið. MYNDIR/GUNNAR SVERRISSON Hægt er að velja um margar mismunandi tegundir af veggfóðri hjá Parka. Það nýjasta hjá Parka er loftadúkur sem hefur notið gríðarlegra vinsælda. Steingrímur Gústafsson, markaðsstjóri hjá Parka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.