Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Side 15
FRÉTTIR 15 Sindri Viborg efast um að honum endist ævin til að vinna að fullu úr því grimmi- lega ofbeldi sem hann var beittur sem barn. MYND/ SIGTRYGGUR ARI breytingar á hegðun hans. „Ég fór úr því að vera heiðar- legur og yfir í að verða óheið- arlegur. Ég fór að stofna til slagsmála, ljúga, stela, níðast á minni máttar. Allt þetta var birtingarmynd þeirrar eymd- ar sem í mér bjó. Í dag get ég sagt að þetta hafi verið rangt af mér. Í dag get ég sagt að ég myndi vilja hafa gert þetta öðruvísi. En staðreyndin er sú að þegar búið er að brjóta mann niður svo árum skiptir, þá er þetta réttlætt af manni. Eins rangt og það hljómar.“ „Hættu strax!“ Sindri á engin töfraráð til að laga einelti enda væri slíkum ráðum beitt ef þau væru til. „Eina sem ég get sagt við þolandann er að þetta er tíma- bundið ástand. Það mun líða hjá. Þangað til, þá snýst þetta um að tilkynna allt sem gerist, tilkynna það strax, bæði til foreldra og til kennara.“ Hann er líka með skilaboð til foreldra. „Fræðið börnin ykkar um samfélagsábyrgð. Fræðið þau um siðferði og samkennd. Setjist niður með börnunum ykkar og spyrjið þau beint hvort þeim líði vel og hvort allt sé í lagi. Ef þau segja ykkur að eitthvað sé að, gerið allt sem í ykkar valdi stendur til að hjálpa þeim og bæta ástandið. Bæði þolendur og gerendur þurfa aðstoð og stuðning til að komast úr þessu ástandi. Þetta eru börn og við fullorðnu berum þá ábyrgð að laga þetta ástand.“ Sindri hvetur foreldra ger- enda til að horfast í augu við vandann. „Setningar eins og „sonur minn gerir ekki svona“ eða „dóttir mín segir ekki svona um aðra“, er ekk- ert annað en afneitun á því að barn viðkomandi hafi farið yfir strikið. Börnin okkar eru líkleg til alls, það er í þeirra eðli að testa rammann. Stundum fara þau langt út fyrir hann og þá verðum við að nálgast það af heiðarleika og auðmýkt, frekar en með af- neitun og vörn.“ Stærsta gjöfin Hann segir áhorfendur að ein- elti líka geta haft mikil áhrif. „Við áhorfandann hef ég það að segja að þú ert stór mann- eskja fyrir að standa upp og láta vita af því að verið sé að troða á samnemanda þínum. Þú ert hetja ef þú stoppar þetta af. Þegar þú ert eldri muntu átta þig á því að þetta var hugsanlega stærsta gjöfin sem þú gast gefið nokkrum á þessum tíma, að hjálpa þol- andanum í eineltinu. Hvað gerandann varðar hef ég fá bein ráð, önnur en þau að leita sér hjálpar og hætta tafarlaust ofbeldinu gagnvart öðrum. Sama hver ástæðan er fyrir eineltinu þá er hún aldr- ei réttlætanleg, né heiðarleg. Hættu, og hættu strax.“ n Þarna sat ég, fullorðinn maðurinn, tíu mínútur í af- mælið mitt með kvíðahnút á stærð við körfubolta í mag- anum. DV 30. OKTÓBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.