Fjölrit RALA - 06.11.1978, Side 67
önnur starfsemi.
62 .
3 .
Unnið var að lagfæringu íbúðarhússins, skipt um glugga og
húsið klætt utan, en það lá undir stórskemmdum, þar sem múrhúð
var mjög illa farin. Þá var unnið að framræslu, bæði hreinsun
eldri skurða og skurðir þéttir í áður gröfnu landi. Þá var á
árinu loks keypt bifreið handa tilraunastöðinni, og mátti kalla
það txmamót.
TILRAUNASTÖÐIN A MÖÐRUVÖLLUM.
Enda þótt uppbyggingu tilraunastöðvarinnar hafi nokkuð
miðað í rétta átt, má segja, að hvorki tilraunastarfseminni né
uppbyggingunni hafi verið gerð fullnægjandi skil á árinu. Aug-
ljóst er, að reisa verður viðunandi húsnæði fyrir starfsfólk
samhliða uppbyggingu tilraunaaðstöðunnar, og er því mjög brýnt
að hefja byggingu íbúðarhúss fyrir starfsfólk við tilraunafjósið.
Björn Pálsson lét af bústjórastarfi 1. júní, en við tók Jósavin
Gunnarsson.
Afkoma búsins varð betri en undanfarin ár. Meðalnyt sam-
kvæmt skýrslu varð 4043 lítrar mjólkur eftir 25 árskýr, og meðal-
þungi dilka 147 áa var 17.1 kg, og voru 66.6% tvílembdar og 5.4%
geldar.
„3 3
Heyfengur varð meiri en aður, 2973 m þurrheys og 75 m vot-
heys, metið af forðagæzlumanni á 167.600 Fe. Heygæði voru heldur
lakari en áður, og þurfti um 2.0-2.1 kg í Fe. BÚstofn í árslok
var 32 kýr, 6 geldneyti, 163 ær, 43 gemlingar, 10 hrútar og 2 hross.
Mikil samvinna var £ tilraunastarfseminni við Bændaskólann
á Hólum og einstök búnaðarsambönd.
Guðmundur H. Gunnarsson, ráðunautur BÚnaðarsambands Eyja-
fjarðar, starfaði um sumarið við tilraunir hjá tilraunastöðinni.