Fjölrit RALA - 06.11.1978, Qupperneq 69
64 .
Nautgriparæktartilraunir voru þær á árinu, að um vorið var
borin saraan fóðrun með kjarnfóðri og fóðrun með graskögglum,
en um sumarið var borin saman beit tveggja kúahópa á grænfóður.
Var öðrum hópnum beitt á grænfóður af krossblómaætt (sumarrepju,
vetrarrepju, fóðurnæpu), en hinum á grænfóður af grasaætt (bygg,
sumarhafra, vetrarhafra, vetrarrýgresi). Grænfóðurstegundirnar
voru allfjarri hvor annarri, og undu kýrnar hópskiptingunni illa.
Verður þetta því reynt aftur og grænfóðurstegundirnar þá ræktaðar
hvor við annarrar hlið. í samvinnu við ólaf R. Dýrmundsson var
gerð tilraun með samstillingu gangmáls hjá kúm með Lutalyse-
(prostaglandín-) sprautun. Rúmlega 60% kúnna festu fang við sæð-
ingu eftir sprautun.
Sauðfjártilraunir voru á þá lund, að um vorið var lokið tilraun
með samanburð á að gefa hey eingöngu og að gefa hey og kjarnfóður,
svo sem venja er. Um haustið var lömbum beitt á grænfóður og
gerður samanburður á grænfóðurbeitinni og innifóðrun sláturlamba
á graskögglum og heyi. Innifóðrunarlömbin þyngdust um 5.3 kg,
en samanburðarlömb á káli þyngdust um 7.6 kg á um 5 vikum. Um
fengitímann var í samvinnu við BÚnaðarsamband Eyjafjarðar gerð
tilraun með mismunandi blöndunarhlutföll sæðis og vökva, og virð-
ast niðurstöður benda til þess, að haga verði blöndunni eftir því,
hve langur tími líður frá sæðistöku að sæðingu. Ásetningslömb
eru notuð í tilraun, sem gerð er í samvinnu við Ræktunarfélag
Norðurlands. Lömbunum er gefinn selenköggull í vömb, og verður
fylgzt með selenmagni og virkni glútathionperoxýdasa í blóði.
TILRAUNASTÖÐIN SKRIÐUKLAUSTUR.
Jarðræktartilraunirnar, sem unnið var við, skiptast þannig
milli tilraunaverkefna:
Grasræktartilraunir voru 19 og með 243 liðum og 782 reitum.
Þær skiptast jafnt á milli áburðartilrauna og grasastofnatilrauna
og ein, sem fellur undir báða flokka. Með henni er könnuð svörun
þriggja grastegunda við mismunandi áburðarskömmtun og mismunandi