Fjölrit RALA - 20.03.1995, Síða 17

Fjölrit RALA - 20.03.1995, Síða 17
UPPGRÆÐSLA Á AUÐKÚLU- OG E YVTNDARSTAÐAHEIÐI i---1 I I------1 I ~ I I l I I i i i i i i i i i i i i 0 20 40 60 80 >100 0 20 40 60 80 >100 0 20 40 60 80 >100 0 20 40 60 80 >100 Jarðvegsþykkt cm 7. mynd. Þykkt áfoksjarðvegs á uppgræðslusvæðunum fjórum. Sýnd er hlutfallsleg skipting (%) eftir þykktarflokkum. Reitir sem lagðir voru út utan svæða eru hér ekki meðtaldir. Tölur innan sviga sýna fjölda reita á hverju svæði. sinu í sverði og ákveðnum mosategundum. Við mælingarnar varð ekki vart við áburðarlausar spildur á uppgræðslunum í Helgufelli, við Sandá eða á Öfuguggavatnshæðum. A Lurk fundust aftur á móti óábornar rendur innan áborna landsins austast á svæðinu við Blöndu (6. mynd), en þar hófst uppgræðsla ekki fyrr en sumarið 1991. Jarðvegur Þykkt áfoksjarðvegs var mjög mismunandi bæði innan og milli svæða (7. mynd). Gróðurlítið, örfoka land, eins og melar, grjót og sandar, hafði ekki safnað áfoki á yfirborð svo nokkru næmi. A ábornum melum var gróður aftur á móti farinn að hlaða undir sig áfoksefnum og sums staðar hafði myndast fárra cm lag af áfoki ofan á yfir- borði melsins. Lagið var víðast örþunnt eða mjög slitrótt en þykkara í gróðurhnubbum. Áfoks- hnubbar voru einkum áberandi á Lurk, en þó sérstaklega á uppgræðslunni við Sandá. Einna þynnst var áfokið í Helgufelli. Á Öfugugga- vatnshæðum hafði nánast eingöngu verið borið á blásið land. Áfoksjarðvegur var þar samt algengur og töluvert þykkur (15->l 10 cm) sem helgast af því að uppgræðslusvæðið er að upp- runa geysilangur rofjaðar með víðáttumiklum moldum. Á óblásnu landi var áfoksjarðvegur víða þykkur, einkum á Lurk þar sem hann mældist 60 cm eða þykkari í 38% reita. Verulegur munur var á sýrustigi eftir því hvort um var að ræða blásið land eða óblásið en sýrustig var einnig háð áburðargjöf (8. mynd). Sýrustig á óábomu, blásnu landi var að meðaltali 7,24 en þar sem borið hafði verið á þessa land- gerð var það mun lægra, eða 6,91. Á óblásnu landi hafði áburður lítil sem engin áhrif á sýrustig en þar var sýrastig svipað eða örlitlu lægra en þar sem borið hafði verið á örfoka land. Lítill munur var á sýrastigi milli svæða. Eina undantekningin frá þessu er uppgræðslan við Sandá, en sýrastig var þar lægra en á sams konar landgerð annars staðar (8. mynd). Kolefnisinnihald jarðvegs var mjög breytilegt eftir landgerðum og var það lægra á blásnu landi en óblásnu (8. mynd). Áburður hafði hins vegar lítil áhrif á kolefnismagn. Á blásnu landi var það að meðaltali 1,50% án áburðar en þar sem borið hafði verið á 1,57%. Á óblásnu landi voru samsvarandi tölur 3,22% og 4,19%. Rétt er að benda á að meðaltölin byggja hér á fáum mælingum (8. mynd). Gróður Fjöldi tegunda Alls fundust 79 tegundir háplantna í reitunum. Þær skiptust þannig á einstaka plöntuhópa: grös 16 (20%), starir og sef 8 (10%), tvíkímblaða jurtir 40 (52%), einkímblaða jurt 1 (1%), runnar 9 (11%) og byrkningar 5 (6%). Fjöldi háplöntu- tegunda íreit (0,25m2) var mjög misjafn eða frá 1-23. Mikill munur var á landgerðum, en yfirleitt lítill munur á svæðum (9. mynd). Á svæðinu við Sandá var fjöldi tegunda þó mun minni á ábornu, blásnu landi en á sömu landgerð annars staðar. Fæstar tegundir voru á blásnu, óábomu landi, eða 8,0 tegundir/reit, og á blásnu, ábornu landi þar sem þær voru 8,7 að meðaltali. Á óblásnu landi vora tegundir fleiri og virtist áburðargjöf auka nokkuð fjölda tegunda á þessari landgerð. Að 15

x

Fjölrit RALA

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.