Fjölrit RALA - 20.03.1995, Page 18

Fjölrit RALA - 20.03.1995, Page 18
SIGURÐUR H. MAGNÚSSON OG BORGÞÓR MAGNÚSSON 6 r 5 - c 4 - <4-1 1 3 2 1 0 B 1,50 0,31-2,95 1,57 0,36-3,94 4,19 1,37-8,70 3,22 L73-6.09 1 1 1 .. 1 He Lu Sa Óf He Lu Sa Öf lii r~1 He Lu Sa Óf i i rrn He Lu Sa Óf (4) (5) (0) (8) (8) (9) (3) (15) (2) (10) (0) (0) (1) (3) (0) (7) Óáborið Áborið Áborið Óáborið Blásið land Óblásið land 8. mynd. Meðaltöl (±staðalskekkja) fyrir sýrustig (A) og kolefnisinnihald (B) jarðvegs á rannsóknasvæðunum í Helgufelli (He), á Lurk (Lu), við Sandá (Sa) og á Öfuguggavatnshæðum (Öf). Tölur ofan við stöpla em meðaltöl reita á svæðunum ásamt hæstu og lægstu gildum. Tölur innan sviga sýna fjölda mælinga á hverju svæði. meðaltali voru 12,8 tegundir íreit án áburðar en 15,0 þar sem borið hafði verið á. Þekja Heildarþekja gróðurs á óábornu, blásnu landi var svipuð á öllum svæðunum og var að meðaltali 12% (9. mynd). Við áburðargjöf á blásið land eykst gróðurþekjan mikið en heildarþekja á ábornu, blásnu landi var að meðaltali 64% á öllum svæðunum. Verulegur munur var þó milli svæða. Minnst var þekjan í Helgufelli, eða 52% að meðaltali, en mest við Sandá 78%. Gróðurþekja á óábornu landi sem ekki hafði blásið upp var misjöfn eftir svæðum en var að meðaltali 85%. Rétt er að benda á að fáir reitir tilheyrðu þessari landgerð. Áburðargjöf á óblásið land virðist auka heildarþekju lítillega en þar var þekja að meðaltali 89% (9. mynd). Þekja háplantna sýndi svipað mynstur og heildarþekja gróðurs, enda er hlutur háplantna í þekju verulegur (9. mynd). Á ábomu, blásnu landi var þekja háplantna svipuð á Helgufelli, Lurk og Öfuguggavatnshæðum eða 33-40%. Við Sandá var hún aftur á móti mun hærri en þar var þekja þeirra 52%. Á óábomu, blásnu landi var þekja sinu mjög lítil og svipuð á öllum svæðunum (9. mynd). Við áburðargjöf á þessa landgerð eykst sina mikið. Þó er mikill munur á milli svæða. Minnst var sinu- þekjan í Helgufelli, eða 12%, en mest á Lurk 29%. Við áburðargjöf á óblásið land eykst sina nokkuð en hún var að meðaltali 13% þar sem ekki hafði verið borið á en 18% á svæðum sem fengið höfðu áburð. Á óábomu, blásnu landi var heildarþekja mosa mjög lítil og var hún svipuð á öllum svæðunum (9. mynd). Við áburðargjöf á þessa landgerð eykst mosaþekja mikið en hún var þó mjög misjöfn eftir svæðum. Á ábornu, blásnu landi var mosaþekja minnst á Lurk, eða 10%, en mest á Öfuguggavatnshæðum 25%. Heildarþekja mosa á óblásnu landi var svipuð hvort sem borið hafði verið á eða ekki og var að meðaltali á bilinu 24- 31%. 16

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.