Fjölrit RALA - 20.03.1995, Page 32

Fjölrit RALA - 20.03.1995, Page 32
SIGURÐUR H. MAGNÚSSON OG BORGÞÓR MAGNÚSSON græðslusvæðunum sé staðarvingull sem hefur aukist og breiðst út við áburðargjöfina. Uppskera Samkvæmt samningi bænda og virkjunaraðila er megintilgangur uppgræðsluaðgerða að framleiða fóður til beitar. í þessari rannsókn voru ekki gerðar neinar mælingar á fóðurframleiðslu, enda hefur megináhersla í fyrri rannsóknum verið á því sviði (t.d. Ingvi Þorsteinsson o.fl. 1988, Ingvi Þorsteinsson o.fl. 1989). Þær mælingar sem gerðar voru á uppskeru í þessari rannsókn sýna hversu mikið var eftir af gróðri í lok sumars (lok ágúst) og gefa því sæmilega mynd af beitarálagi. A blásnu landi kom fram að langminnst var eftir af gróðri í Helgufelli, 0,12 tonn á ha, en mest á Lurk og við Sandá, 0,52 og 0,70 tonn/ha. Sams konar niður- stöður frá árunum 1987 og 1988 (Ingvi Þor- steinsson 1991) úr beittum, ábornum tilrauna- reitum á heiðunum sýndu að gróðurmagn sem eftir var í lok sumars var yfirleitt frá 0,1 upp í 0,4 tonn/ha, sem er minna en mældist nú. Þessar tölur benda til að ekki hafi verið gengið mjög nærri gróðri sumarið 1994 á uppgræðslusvæðunum nema í Helgufelli. Rétt er þó að taka fram að hér er um meðaltöl að ræða af tiltölulega fáum mælingum. Beit er einnig mjög staðbundin þannig að beitarálag getur verið mjög mikið á ákveðnum blettum þótt það sé lítið annars staðar. Líklegar skýringar á þessu eru tvær. í fyrsta lagi var sumarið 1994 tiltölulega hlýtt (4. mynd) og mjög hagstætt gróðri sem væntanlega hefur aukið uppskeru mikið miðað við kaldari sumur. í öðru lagi hefur sauðfé fækkað verulega á heiðunum hin síðari ár (3. tafla, 3. mynd) sem áreiðanlega hefur mikil áhrif á hversu nærri gróðri er gengið. Áhrif áburðar á beit og plöntuval Niðurstöður þessarar rannsóknar sýndu, líkt og fyrri rannsóknir á heiðunum, að beit var mest þar sem nýlega hafði verið borið á (18. mynd) (t.d. Ingvi Þorsteinsson 1991). Segja má að áburður- inn stjómi beitinni að miklu leyti. Það er athyglisvert að beit var svipuð á óábornu, grónu landi utan uppgræðslusvæða og á svæðum sem borið hafði verið á árið 1993 eða fyrr (18. mynd). Þetta bendir til að án árlegrar áburðar- gjafar verði gróður áboma landsins lítið lystugri til beitar en gróður gamalgróinna svæða. Athuganir á plöntuvali sýndu að grasbítar höfðu í megindráttum valið sömu tegundir hvort sem borið hafði verið á landið eða ekki (19. mynd). Vegna ólíkrar tegundsamsetningar og vægi tegunda í þekju á ábomu og óábornu landi má gera ráð fyrir að fæða fjárins hafi verið mjög mismunandi eftir því hvar bitið var. Á óábornu landi vom eftirsóttustu tegundir lokasjóðsbróðir, grávíðir, stinnastör og loðvíðir og eru þessar niðurstöður svipaðar og fengist hafa við rannsóknir á plöntuvali sauðfjár í beitarhólfum á Auðkúluheiði (Borgþór Magnússon og Sigurður H. Magnússon 1992). Á áborna landinu voru þessar tegundir mjög sjaldgæfar og hafa því ekki verið stór hluti af fæðunni. Grös, einkum íslenskur túnvingull, vom mjög algeng á ábornu landi og hafa þar áreiðanlega verið megin- uppistaða í fæðu sauðfjár. Aðferðir við áburðardreifingu og áhrif þeirra á árangur uppgræðslu Niðurstöðumar bentu eindregið til að áburðar- dreifing sumarið 1994 hafi verið mjög misjöfn (6. mynd) að því leyti að ekki hafði verið borið á nema hluta yfirborðs. í Helgufelli, á Lurk og á Öfuguggavatnshæðum hafði áburði ekki verið dreift nema á um 1/3 af heildarflatarmáli upp- græðslusvæðanna. Við Sandá var áburðardreifing aftur á móti mun jafnari. Á fyrri svæðin var áburði dreift með flugvél að langstærstum hluta en við Sandá hefur verið dreift með dráttarvél í mörg ár (2. tafla). Við dreifingu úr flugvél hefur yfirleitt verið flogið á milli áburðarráka frá fyrra ári (Stefán H. Sigfússon, munnlegar upplýsing- ar). Ef reiknað er með að áburðardreifing í Helgufelli, á Lurk og á Öfuguggavatnshæðum hafi öll árin verið svipuð og sumarið 1994 má gera ráð fyrir að borið hafí verið á hvem blett að meðaltali þriðja hvert ár en við Sandá nokkru oftar. Sumarið 1994 var dreift rúmlega 280 tonnum af áburði á uppgræðslusvæðin í Helgufelli, Lurk og Öfuguggavatnshæðum (Stefán H. Sigfússon, munnlegar upplýsingar) en heildarstærð þessara svæða er tæplega 3.700 ha. Við áburðardreifing- una var miðað við að bera á um 200 kg af áburði á ha (Stefán H. Sigfússon, munnlegar upp- lýsingar). Samkvæmt þessu myndi þetta magn 30

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.