Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 4
FERÐALÖG „Þar sem við fararstjórar erum orðin langleið á þessu ástandi og f lest komin með útþrá á hættu- legu stigi, þá datt okkur í hug að það væru kannski f leiri í sama pakka,“ segir Ágústa Sigrún Ágústsdóttir, sem stýrir sýndarferðalagi um slóv- ensku borgina Ljubljana í kvöld. Viðburðurinn, sem haldinn er á vegum ferðaskrifstofu Heimsferða, felur í sér að þátttakendur skrá sig á fjarskiptaforritinu Zoom og fylgj- ast þar með myndskeiði þar sem Ágústa útskýrir hvað hin ljúfa Lju- bljana hefur upp á að bjóða. Sýndarferðalagið er annað sinnar tegundar, en fyrir tveimur vikum leiddi Ágústa áhorfendur um Ver- ónaborg á Ítalíu. „Síðast komst ég yfir skemmtilegt myndskeið af göngutúr í Veróna, en ég lýsti honum eins og ég væri leið- sögumaður í ferðinni,“ segir Ágústa. „Við reynum að gera þetta eins og alvöru ferðalag – við bjóðum fólk velkomið og sýnum því hvert það á að fara.“ Viðtökurnar á síðasta sýndar- ferðalagi voru ansi góðar og þrátt fyrir afföll, sem urðu vegna lands- leiks Íslands gegn Ungverjalandi, hlupu áhorfendur á hundruðum. „Skráningin fór fram úr okkar villt- ustu vonum,“ segir Ágústa. „Sýndarferðalagið til Veróna átti bara að vera stakur viðburður, en eftir að við sáum áhugann ákváðum við að halda þessu áfram á tveggja vikna fresti til þess að sinna þeirri eftirspurn sem við fundum fyrir.“ Þá fær einn heppinn áhorfandi í hverju sýndarferðalagi f lugmiða til útlanda næsta sumar, en Ágústa segir að ekki sé hægt að vera með neina bölsýni um utanlandsferðir á næsta ári. Líta verði jákvætt á fram- haldið þrátt fyrir erfiða tíma. „Við reynum að taka þetta bara á Pollýönnunni og göngum að því gefnu að hlutirnir verði á sínum stað þegar maður kemur næst,“ segir hún. „Auðvitað er nú þegar búið að loka einhverjum af þeim stöðum sem við tölum um í sýndar- ferðalaginu, en það er aldrei að vita hvað gerist næsta sumar.“ Næst verður ferðinni haldið aftur til Ítalíu þar sem bæirnir við Garda- vatn verða skoðaðir, en Heimsferðir hafa einnig sett upp könnun til að sjá hvert ferðasoltnir strandaglópar vilja næst fara í sýndarveruleik- anum. Hægt er að nálgast upplýsingar um sýndarferðalagið til Slóveníu og þá viðburði sem fram undan eru hjá Heimsferðum inni á Facebook-síðu ferðaskrifstofunnar. arnartomas@frettabladid.is Við reynum að gera þetta eins og alvöru ferðalag – við bjóðum fólk velkomið og sýnum því hvert það á að fara. Ágústa Sigrún Ágústsdóttir, fararstjóri Mikilvægt að gæta að eldvörnum Rýmingaræfing var haldin í Höfðaborg í Borgartúni í gær í tilefni af Eldvarnadeginum. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, fékk að spreyta sig á að slökkva eld sem kveiktur var í potti á æfingunni. Þá fengu starfsmenn í húsinu sömuleiðis að prófa. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Bjóða sýndarferðalög fyrir strandaglópa Ágústa Sigrún Ágústsdóttir stýrir sýndarferðalögum um borgir í Evrópu þar sem hún útskýrir umhverfi og staðhætti fyrir áhorfendum í gegnum Zoom. Ljubljana er falleg borg og ein af leyndu perlum Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY STJÓRNSÝSLA Fram kemur í þings- ályktunartillögu um aðgerðir í þágu sveitarfélaga vegna kóróna- veirufaraldursins að fjármálasvið borgarinnar telji fjárhagslegt högg borgarsjóðs vegna faraldursins vera meira en áður hafði verið áætlað. Fjármálasvið borgarinnar telur að Reykjavíkurborg þurfi 15 millj- arða fjárframlag frá ríkinu á þessu ári og 12 milljarða á því næsta. Tekjufall hjá borgarsjóði vegna far- aldursins er 12,5 milljarðar króna það sem af er ári og útgjöld hafa aukist um 2,6 milljarða. Fram kom í umsögn um fjárlaga- frumvarpið að fjárþörfin væri 11,1 milljarður. Samkvæmt greiningu fjármála- sviðs borgarinnar þurfa sveitar- félögin í landinu að fá að minnsta kosti 50 milljarða króna framlag frá ríkinu á þessu ári og því næsta vegna þeirra áhrifa sem faraldurinn hefur haft. – hó Sveitarfélögin þurfa að fá 50 milljarða SAMGÖNGUR Umferð um Hval- fjarðargöng hrundi í fyrstu og þriðju bylgju COVID-19 farald- ursins. Þetta kemur fram í tölum Vegagerðarinnar í svari við fyrir- spurn Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins. Umferðin í janúar og febrúar var eilítið minni í ár en í fyrra, en í samræmi við umferðina á árunum 2015 til 2018. Í mars fór umferðin úr tæpum 7 þúsund bílum á dag árin á undan niður í tæpa 5 þúsund bíla. Í apríl fór umferðin niður í 4.300 bíla á dag að meðaltali. Í sumar var umferðin á pari við fyrri ár og fór upp í rúma 10 þúsund bíla á dag í júlí. Í september fór umferðin svo aftur minnkandi og var komin niður í 5 þúsund bíla á dag í október, sem er fækkun úr rúmum 7 þúsund bílum á dag í sama mánuði árin á undan. – ab Minni umferð í gegnum göngin Gjaldfrjálst varð í göngin 2018, hefur umferð um þau aukist eilítið síðan. COVID-19 Alls greindust sjö manns með kórónaveiruna innanlands í fyrradag en af þeim voru aðeins tveir í sóttkví við greiningu. Í gær voru 176 í einangrun hér á landi. 45 lágu á spítala, þar af tveir á gjör- gæslu með COVID-19. Víðir Reynis son, yfir lög reglu- þjónn almannavarna, greindist í gær með COVID-19. Hann kveðst vera einkennalaus. Ekki megi gleyma hversu lævís veiran geti verið. „Þetta er eins og hvert annað verk efni. Það getur hver sem er fengið þetta og hún spyr ekki að neinu. Hún er læ vís og lúmsk þessi veira, eins og við höfum alltaf sagt. Þannig að maður var undir búinn, eins og hver annar, að geta fengið þetta,“ segir Víðir. – la Ekki má gleyma lævísi veirunnar Víðir er nú í einangrun. 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.