Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 24
Sjúkraliðar eru burðarstétt í heilbrigðiskerfinu og eftir- sóttir um land allt. 2 FYRIR 1 AF ÖLLUM SOKKUM The European Council of Practical Nurses (EPN) eru Evrópusamtök sjúkraliða og er Sjúkraliðafélag Íslands eitt af aðildarfélögum þess. Markmið samtakanna er meðal annars að efla hagsmuni sjúkraliða í Evrópu. Þann 26. nóvember ár hvert hafa aðildarfélögin haldið upp á daginn með margvíslegum hætti. Í ár er þessi dagur í skugga óvenjulegra og erfiðra tíma. COVID-faraldurinn hefur lagst á heilbrigðiskerfið með tilheyrandi álagi og markað djúp spor hvarvetna um allt samfélagið. Sjúkraliðar standa vaktina Á vormánuðum kom COVID-far- aldurinn, sem lagðist á heilbrigðis- kerfið með slíkum þunga að efnt var til bakvarðasveitar heilbrigðis- starfsmanna. Um 230 sjúkraliðar gáfu kost á sér til starfa. Á haust- mánuðum blossaði COVID-farald- urinn upp aftur af slíku afli að færa þurfti Landspítalann á neyðarstig. Bakvarðasveitin var virkjuð á ný og voru sjúkraliðar ráðnir til starfa. Þessir atburðir hafa, sem aldrei fyrr, dregið fram mikilvægi framlags sjúkraliða og sýnt að þeir eru alger- lega ómissandi hlekkur í keðju heil- brigðisþjónustunnar. Þegar reynir á þanþol heilbrigðiskerfisins má sjá að það gegnir hlutverki sínu. Það virkar þegar allir leggja sig fram. Teymisvinna Heilbrigðisstarfsmenn um land allt takast á við COVID-faraldurinn með samhentu átaki svo að gang- verk heilbrigðiskerf isins virki. Þar hafa sjúkraliðar komið sterkir inn og sýnt með störfum sínum og færni að þeir eru reiðubúnir að takast á við krefjandi aðstæður og axla ábyrgð. Sjúkraliðar mæta við- fangsefnum sínum af fagmennsku og alúð, og sinna því sem kallað er nærhjúkrun með sambærilegum hætti og Florence Nightingale gerði á sínum tíma. Vegna mönn- unarvanda í heilbrigðiskerfinu hafa stjórnendur víðast hvar áttað sig betur á faglegri hæfni sjúkraliða til að takast á við vandasöm verkefni. Það eru sjúkraliðar sem skipa teym- in ásamt hjúkrunarfræðingum, sem í sameiningu sinna þeim veiku. Sérhæft starfsnám Í gegnum árin hefur færni sjúkra- liða til að sinna umönnun og hjúkr- un tekið miklum breytingum sam- hliða gjörbreyttu námi, sem í dag er þriggja ára krefjandi starfsnám sem kennt er við framhaldsskólana. Þar læra nemendur bóklegar og verkleg- ar heilbrigðisgreinar auk sérgreina í hjúkrun. Að námi loknu fá þeir starfsleyfi frá Embætti landlæknis og geta eftir útgáfu þeirra starfað sem sjúkraliðar. Sjúkraliðar sækja fram og nú er unnið markvisst að mótun nýrra námsleiða við Háskól- ann á Akureyri. Diplómanámspróf fyrir sjúkraliða, sem mun í fram- tíðinni veita þeim betri færni til að takast á við sérhæfð hjúkrunarstörf, samhliða aukinni ábyrgð. Eftirsóttir um land allt Sjúkraliðar eru burðarstétt í heil- brigðiskerfinu og eftirsóttir um land allt. Atvinnumöguleikar eru því bæði miklir og óháðir búsetu. Vinnustaðir þeirra eru á sjúkrahús- um, hjúkrunarheimilum, heilsu- gæslunni og öðrum heilbrigðis- stofnunum, auk þess sem þeir eru leiðandi vinnuafl í heimahjúkrun. Á þessum Evrópudegi sjúkra- liða vil ég þakka þeim vinnufram- lagið, ósérhlífni við að sinna þeim veiku, framúrskarandi þátttöku í bak varðasveitinni og faglega sam- vinnu og samskipti við aðrar heil- brigðisstéttir. Ég er bæði hrærð og stolt af því að eiga hlutdeild með sjúkraliðum, þessari öflugu fagstétt, og óska þeim innilega til hamingju með EPN daginn. EPN – Evrópudagur sjúkraliða Sandra B. Franks formaður Sjúkraliðafélags Íslands Uppvakningur Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar Samtök atvinnulífsins hafa sett fram tillögur sínar um ýmsar breytingar á íslensku samfélagi undir heitinu „Höldum áfram“. Þar er meðal annars reynt að vekja upp draug Salek-samkomulagsins. Salek-samkomulaginu hefur verið hafnað að athuguðu máli og er það ekki grunnur til framtíðarskip- unar íslenskra vinnumarkaðsmála. Hvers vegna er það? Ein ástæða þess að Salek-sam- komulagið gengur ekki upp á Íslandi er að það felur í sér inn- leiðingu á vinnumarkaðsmódeli að fyrirmynd Norðurlandanna án þess að taka tillit til þeirra sterku félagslegu réttinda og velferðarúr- ræða sem tryggð hafa verið þar. Væri SA alvara með því að vilja fara leið Norðurlandanna í vinnu- markaðsmálum ættu þau fyrst að beita sér fyrir því að á Íslandi verði tekið upp öf lugt barnabótakerfi, húsnæðisstuðningur (meðal ann- ars með stóraukinni þátttöku hins opinbera í uppbyggingu félagslegs leiguhúsnæðis), tekjuskattur og fjármagnstekjuskattur líkt og tíðk- ast í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Fróðlegt verður að sjá hvort slíkar tillögur berast úr ranni SA. Önnur ástæða þess að Salek hefur verið hafnað er að samkomulagið gengur út á að afnema í reynd sjálf- stæðan samningsrétt almennings á Íslandi um kjör. Þess í stað yrði launasetning sett í hendur sérfræð- inganefnda og valdheimildir Ríkis- sáttasemjara til að skikka launafólk undir úrskurði þeirra stórauknar. SA kalla þannig eftir eins konar afturhvarfi til haftatímans, þegar nefndir á vegum hins opinbera stýrðu verðlagi með tilskipunum. Sú spurning vaknar hvort SA vilji einnig að slík miðstýring verði tekin upp til að stjórna annarri verðmyndun, til dæmis á fast- eignamarkaði og á varningi í stór- mörkuðum. Að minnsta kosti blasir við að launafólk mun ekki undir- gangast slíka stýringu nema sams konar bönd verði sett á aðra geira hagkerfisins. Þriðja ástæðan til að gjalda var- hug við hugmyndum SA um aukna miðstýringu í kjarasamningagerð er að SA hafa sjálf ekki virt þá mið- lægu kjarasamninga sem hafa verið gerðir á Íslandi nýlega. Dæmi um það er Lífskjarasamningurinn sem undirritaður var vorið 2019 þar sem kveðið er á um krónutölu- hækkanir og sérstakar hækkanir lægstu launa. Aðildarfélög ASÍ og f lest önnur stéttarfélög hafa undir- gengist að fylgja hugmyndafræði Lífskjarasamningsins um þessi atriði. Hins vegar hefur framfylgd á grunnhugmyndafræði Lífskjara- samningsins verið mjög ábóta- vant hjá Samtökum atvinnulífsins. Þar má nefna andstöðu SA við að krónutöluhækkanir samningsins skili sér í heilu lagi til starfsstétta á borð við f lugfreyjur og starfsfólk í álverum. Með þessari afstöðu sinni hafa SA skert mjög eigin trú- verðugleika, sem rödd samkvæmni og aukinnar miðstýringar í kjara- samningagerð. Fjórða ástæðan til að hafna Salek er að samkomulagið veitir enga tryggingu fyrir sanngirni. Fullur skilningur er á því innan verkalýðshreyfingarinnar að nafn- launahækkanir einar og sér eru berskjaldaðar fyrir áhrifum verð- lagsþróunar, og því getur verið skynsamlegt að stilla nafnlauna- hækkunum í hóf, sé aukning kaup- máttar og ráðstöfunartekna betur tryggð með öðrum leiðum. Slíkri nálgun þarf þó augljóslega að fylgja raunveruleg trygging gegn því að hálauna- og stóreignastéttir sem eru óbundnar af kjarasamningum noti tækifærið til að skammta sér óeðlilegan viðbótarskerf af verð- mætasköpun samfélagsins. Engin slík trygging fylgir Salek-samkomu- laginu. Áherslan á hófsamari nafnlauna- hækkanir og aukinn aga í kjara- samningsgerð sem innleidd var með Þjóðarsáttinni um 1990, leiddi til stóraukins ójöfnuðar meðal Íslendinga, bæði mælt í tekjum og eignum áratugina á eftir. Auk þess stórhækkaði skattbyrði láglauna- fólks í samanburði við tekjuhærri hópa. Slík ójafnaðaraukning er ekki aðeins ósanngjörn heldur skapar hættu á efnahagslegum stórslysum á borð við fjármálahrunið 2008, en það var bein afleiðing af taumlausri uppsöfnun auðs á fárra hendur. Tekið skal undir yfirlýsingu SA um vilja til að „deila því sem er til skiptanna með sanngjörnum hætti“. Hins vegar er ekki hægt að horfa fram hjá því að í framkvæmd hefur aukin miðstýring og hömlun nafnlaunahækkana í kjarasamn- ingagerð ekki náð þessu markmiði. SA þurfa því að leggja fram betur ígrundaðar hugmyndir ætli þau að ná samstöðu milli aðila vinnu- markaðarins um leiðir að þessu markmiði. Á heildina litið eiga hugmyndir SA um framtíðarskipun vinnu- markaðsmála í anda Salek-sam- komulagsins hvorki erindi við raunveruleikann né framtíðina. Á heildina litið eiga hug- myndir SA um framtíðar- skipun vinnumarkaðsmála í anda Salek-samkomulagsins hvorki erindi við raunveru- leikann né framtíðina. Upp úr seinni heimsstyrjöld-inni beitti stjórnmálafólk í Evrópu sér fyrir öf lugra alþjóðasamstarfi og á sama tíma var mikið rætt um aukið Norðurlanda- samstarf. Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar árið 1945 og Evrópuráðið fylgdi í kjölfarið, en fyrstu skref voru þar með tekin að stofnun Evrópu- sambandsins. Norðurlandaráð var stofnað árið 1952 en það gerðist ekki þrautalaust. Nor r æ n a þi ng m a n n a s a m - bandið var forveri Norðurlanda- ráðs, stofnað árið 1906. Það var eins konar svæðisbundin undirsamtök Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU). Ísland átti aðild að Norræna þingmannasambandinu frá 1926. Í tengslum við Alþingishátíðina 1930 var þingið í fyrsta sinn haldið á Íslandi. Síðan stóð til að halda þingið aftur á Íslandið árið 1940 en því var auðvitað aflýst. Það eru því 80 ár liðin síðan aflýsa varð norrænu þingi á Íslandi. Finnar bætast í hópinn Allt fram til ársins 1949 hafði stjórn- málafólk reynt að skapa skandina- vískt varnarbandalag en það tókst ekki þar sem Danmörk, Ísland og Noregur kusu aðild að varnar- bandalagi vestrænna ríkja, Norður- Atlantshafsbandalaginu NATO. Í lok fimmta áratugar síðustu aldar gerðu Danmörk, Noregur og Svíþjóð til- raun til að stofna samþætt tolla- og efnahagsbandalag en þær tilraunir tókust ekki. Eftir þessar misheppn- uðu tilraunir dró þó til tíðinda árið 1951 þegar Hans Hedtoft, forsætis- ráðherra Danmerkur, lagði fram á fulltrúafundi Norræna þingmanna- sambandsins að stofnaður yrði vett- vangur þar sem norrænir þingmenn hittust reglulega til samráðs með norrænum stjórnvöldum. Úr varð að Danmörk, Ísland, Noregur og Sví- þjóð samþykktu tillöguna árið 1952. Fyrsta þing ráðsins var haldið þann 13. febrúar árið 1953 í Krist- jánsborgarhöll í Danmörku og var Hans Hedtoft kosinn fyrsti forseti ráðsins. Finnland slóst í hópinn þremur árum eftir stofnun ráðsins og þó að Finnar hafi ekki tekið form- lega þátt fyrstu árin voru ákvæði í reglum ráðsins þess efnis að fulltrú- ar finnskra stjórnvalda og finnska þjóðþingsins gætu tekið þátt ef þeir óskuðu þess. Þar með var norræni hópurinn fullskipaður. Samstillt átak skilar árangri Formennskuár Íslands í Norður- landaráði hefur verið óvenjulegt, en lausnamiðuð nálgun og tæknin hefur gert ráðinu kleift að halda úti öflugu samstarfi. Mæting ráðherra á fundi Norðurlandaráðs í þing- vikunni var mjög góð, umræðurnar líflegar og gagnlegar að okkar mati. Einnig var afar ánægjulegt og ákveðin viðurkenning á mikilvægi Norðurlandaráðs í alþjóðlegu sam- hengi, að Antonio Guterres, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kom á fund Norðurlandaráðs og for- sætisráðherra Norðurlanda. Við getum alltaf gert betur Á fundum Norðurlandaráðs og ráð- herra kom í ljós að ráðið taldi að norrænt samstarf hefði brugðist í kórónu veirufaraldrinum en ráðherr- ar voru á öndverðum meiði. Norður- landaráð hefur samþykkt stefnu um samfélagslegt öryggi og telur að þörf sé á umbótum um aukinn, sam- eiginlegan viðbúnað. Heimurinn er síbreytilegur og því hlýtur það að vera hlutverk norræns samstarfs að endurskoða sig í sífellu og leita leiða til að styrkja samstarfið enn frekar og ekki síst að vera til fyrirmyndar á heimsvísu á þeim sviðum sem Norðurlönd standa sterk. Saman erum við alltaf sterkari. Saman erum við sterkari Silja Dögg Gunnarsdóttir forseti Norður- landaráðs Oddný Harðardóttir varaforseti Norðurlanda- ráðs 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R22 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.