Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 40
Þar sem bíllinn kemur á upp-færðr i útgáf u af CMF- C undirvagninum sem einnig er undir sumum Renault og Mitsubishi bílum, verður engin tengiltvinn- útgáfa í boði til að byrja með. Þess í stað verður sett áhersla á raf bílinn Ariya sem er nokkurs konar systur- bíll Qashqai. Myndirnar sýna bílinn nokkuð vel þrátt fyrir felubúninginn og það má sjá svipaðar breytingar og á Nissan Juke, ásamt tilvísana í IMQ tilraunabílinn sem sýndur var í Genf í fyrra. V-laga grill og þunn aðalljós með v-lagi verða áberandi að fram- an. Bíllinn er svipaður að stærð og fyrri kynslóð en hjólhafið er 20 mm lengra til að bæta fótarými. Bíllinn er einnig hærri en áður og farangurs- rými 45 lítrum stærra en áður. Tvær aflútfærslur Meðal breytinga er endurhönnuð fjöðrun ásamt meiri notkun á sterk- ara hágæðastáli sem er 41% stífara en áður. Komnir eru endurhann- aðir MacPherson turnar og á fjór- hjóladrifsútgáfunni verður fjölliða fjöðrun að aftan, ásamt 20 tommu álfelgum. Einnig hefur stýrisgangur bílsins verið endurhannaður með meira viðbragð í huga. Bensínvélin sem verður í bílnum er 1,3 lítra með tveimur aflútfærslum, auk 12 volta tvinnkerfis. Er vélin annað hvort 136 eða 153 hestöfl og hægt verður að velja um beinskiptingu eða CVT sjálfskiptingu. Nýja e- Power útgáfan verður 185 hestöf l en frekari upplýsingar eru ekki um hana enn þá. Aukinn öryggisbúnaður verður í boði, eins og hliðarvörn sem grípur í stýrið ef bíllinn er á leið í veg fyrir bíl á næstu akrein. Einnig verður meiri búnaður eins og umferðar- merkjalesari, sem hægir á bílnum ef skriðstillir bílsins er virkur. Vinsæll frá upphafi Nissan Qashqai hefur verið vinsæll síðan sala á honum hófst árið 2007 og þá einnig á Íslandi. Alls hafa yfir þrjár milljónir eintaka verið seld frá upphafi og þrátt fyrir að önnur kyn- slóðin sé komin á tíma seldist hún samt í 235.000 eintökum í Evrópu í fyrra. Bíllinn verður líkt og áður smíðaður í verksmiðju Nissan í Sun- derland í Bretlandi. Er Nissan nýlega búið að setja 400 milljónir punda í endurbætur á verksmiðjunni. Búast má við nýjum Qashqai til Íslands um mitt næsta ár. BÍLAR Ný Evrópuvottun á bíla-viðgerðum er nú í boði á Íslandi, en hún tryggir fulla árekstravörn, ótakmarkaða verk- smiðjuábyrgð og þriggja ára ábyrgð á tjónaviðgerðum. Áhersla á aukna neytendavernd og áframhaldandi verksmiðjuábyrgð á bílum eftir tjónaviðgerð, eru lykilþættir í evr- ópska gæðastaðlinum Eurogarant, sem vottað hefur fyrsta verkstæðið á Íslandi. Á annan tug verkstæða hérlendis vinnur að því að fá sams konar vottun. Félag réttinga- og málningarverk- stæða (FRM) telur vottunina nauð- syn til að tryggja öryggi í greininni. „Nýleg dæmi sanna að fólk getur keypt vel útlítandi bíl sem er stór- skemmdur, nærri verðlaus og jafn- vel hættulegur. Við eigum f lest börn í umferðinni og þessi staðall snýst um að bílar séu áfram 100% öruggir og í ábyrgð eftir að tjón er lagfært,“ segir Kristmundur Árna- son, framkvæmdastjóri Bílastjörn- unnar, fyrsta fyrirtækis á Íslandi til að fá Eurogarant-vottun. „Ný tækni og efni eru að umbylta bílafram- leiðslu og fækka dauðaslysum. Við- gerðartæknin hefur líka gjörbreyst. Eurogarant endurspeglar þörfina á að uppfæra gæða- og eftirlitskerfi í bílaviðgerðum í átt að því sem tíðk- ast í f lugvélaheiminum, að fara eftir ítrustu kröfum framleiðenda.“ segir Ragnar Geir Gíslason, formaður Félags réttinga- og málningarverk- stæða. Þriggja ára ábyrgð Prófanir í Þýskalandi og Svíþjóð sýna að röng rétting á B-bita, sem veitir vörn fyrir hliðarárekstri, getur helmingað styrk bitans, sem getur valdið banaslysum. Þá er yfir- bygging bíla hönnuð þannig að hún dragi í sig högg og loks þurfa loft- púðar að blásast út á réttum tíma til að veita fulla vörn við árekstur. Röng rétting getur dregið úr högg- þoli yfirbyggingar og virkni loft- púða með lífshættulegum afleiðing- um. Eurogarant-vottun á að tryggja að viðgerð sé í samræmi við ítrustu kröfur bílaframleiðanda. Hæstirétt- ur Þýskalands komst að þeirri nið- urstöðu árið 2010 að réttingavinna á Eurogarant vottuðu verkstæði sé jafngild því sem bílaframleiðendur krefjast af umboðsverkstæðum og tryggi því áframhaldandi verksmið- juábyrgð framleiðanda. Eurogarant verkstæði veitir þriggja ára ábyrgð á tjónaviðgerðum, eða einu ári lengur en neytendalög á Íslandi krefjast. Fyrsta Eurogarant-vottunin hérlendis Fyrsta Eurogarant-vottunin á Íslandi afhent. Torfi Þórðarson, stjórnar- maður FRM, Félags réttinga- og málningarverkstæða, Stefán Magnússon, BSI á Íslandi, og Kristmundur Árnason hjá Bílastjörnunni í Grafarvogi. Honda hefur fengið leyf i japanskra yfirvalda til að framleiða bíl með þriðja stigs sjálfsaksturstækni. Það er í fyrsta skipti sem bifreið með þeirri tækni er leyfð til aksturs í venjulegri umferð. Honda er því fyrsti bíla- framleiðandinn til að fá að fjölda- framleiða bíl búinn þessari tækni. Þriðja stigs sjálfsaksturstæknin verður prófuð í fólksbílnum Honda Legend og stefnir japanski bílafram- leiðandinn að því að bíllinn komi á markað í mars á næsta ári. Honda Legend verður þannig fær um að taka sjálfvirkt fram úr öðrum bílum í þungri umferð. Kerfið hjá Honda ber heitið Traffic Jam Pilot. Tæknistig sjálfsaksturs- bíla eru fimm og er Honda Legend eins og áður með þriðja stigs sjálf- virkni, en stig fimm þýðir að bíll- inn sé alsjálfvirkur. Nokkrir bíla- framleiðendur, meðal annars Tesla og General Motors eru komin með 2 stigs sjálfvirkni í sína bíla, sem þýðir að Honda er komið fremst allra framleiðenda í þessari tækni. Honda fær þriðja stig í sjálfsaksturstækni Honda Legend er fyrsti bíllinn til að vera með þriðja stigs sjálfvirkni, sem gerir hann alveg sjálfvirkan í akstri. Um þessar mundir eru 70 ár frá því Land Cruiser kom til sög-unnar og af því tilefni ætlar Toyota á Íslandi að bjóða veglegan 70 ára afmælispakka með öllum nýjum Land Cruiser 150. Um leið er bíllinn kynntur með nýrri útgáfu af 2,8 lítra dísilvélinni sem fengið hefur aflaukningu um 27 hestöfl. Eins og bílaprófari Fréttablaðs- ins reyndi á dögunum munar um minna í krafti, því að núna kemst bíllinn niður fyrir 10 sekúndna markið í upptaki. Er nýja gerðin einnig með endurforritaðri sjálf- skiptingu og bíllinn miklu betri í akstri fyrir vikið og notar meira gírana, í stað þess að skipta sér of f ljótt upp til að spara eldsneyti. Pakkinn sem Toyota er með í boði fyrir afmælisárið inniheldur 33 tommu breytingu með dekkjum og felgum, hliðarlista, hlífar á stuðara, krómlista á afturhlera og krómstút á púst. Er verðmæti pakkans um 950.000 kr. Afmælispakki með aflmeiri vél Talsverð breyting verður á bílnum í akstri með nýju vélinni sem er 27 hest- öflum aflmeiri og finnst það vel á upptakinu og betri skiptingum. Nýr Nissan Qashqai fær tvinntækni Framendinn er mest breyttur með hvössu ljósunum frá Nissan Juke og V-laga grillinu, sem gefa ákveðnari svip. Farangursrýmið er 45 lítrum stærra, en bíllinn hærri og hjólhafið meira. Nissan hefur sent frá sér opin- berar myndir af næstu kynslóð Qashqai um leið og merkið tilkynnti að hætt yrði við dísil- vélarnar í bílnum. Þess í stað verður bíllinn boðinn með litlum bensínvélum í tvinnút- færslu eða í e-Power útgáfu. Sá bíll er raf bíll sem notar bensín- vél til að hlaða rafhlöðuna. Honda Legend með þriðja stigs sjálfsaksturs- tækni verður að öllum líkindum kominn á markað í mars á næsta ári. Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R30 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.