Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 48
ÉG KEYRÐI Í RAUN OG VERU BARA UM EINS OG ROBERT DE NIRO Í TAXI DRIVER. Hrifningaralda skall á samfélagsmiðl-um á þriðjudaginn þegar myndband Frosta Jóns Run-ólfssonar við Sum- arið sem aldrei kom, nýtt lag með Jónsa kenndum við Sigur Rós, kom fyrir almannasjónir. „Sko. Þetta er drungalegt og til- komumikið lag hjá Jónsa. En vídjó- ið sem Frosti Jón Runólfsson gerir er með eftirminnilegri íslenskum kvikmyndaverkum sem ég hef séð,“ sagði Illugi Jökulsson um mynd- bandið á Facebook, svo dæmi sé tekið. „Ég er rosalega glaður með mót- tökurnar. Ég fer inn í allt með ótta um að klúðra því en það er bara hollt viðmót held ég,“ segir Frosti í samtali við Fréttablaðið. „Þetta var eiginlega alveg ótrúlegt og ótrúlega skemmtilegt við þetta verkefni að hann Jónsi var svo elskulegur að hann treysti mér bara fullkomlega í þetta. Hann sagði mér auðvitað eitthvað smá hvað hann vildi og svo sendi hann mig bara af stað.“ Eins og í Taxi Driver Myndbandið er um sjö mínútur og þar renna saman undir lagi Jónsa atriði með alls konar fólki í sorg og gleði. Í ljósi og skuggum. „Ég reyndi að vera bara sem minnst fyrir fólki og leyfa því að vera það sjálft,“ segir Frosti sem fann persónur og leik- endur einfaldlega á förnum vegi. „Þetta var það opið og skemmti- legt verkefni að ég keyrði í raun og veru bara um eins og Robert De Niro í Taxi Driver. Bara eitthvað að njósna. Sjá hvað ég myndi finna og svo sá ég eitthvað áhugavert og svona, þú veist, vatt mér upp að fólki og spurði hvort ég mætti taka myndir af því. Og oftar en ekki var því bara vel tekið.“ Djúpt snortinn Frosti segir utangarðsfólkið, sem setur sterkan svip á myndbandið, hafa tekið honum sérstaklega vel. „Það kom á óvart og var svolítið fal- legt. Í nokkrum tilvikum var bara sagt: „Að sjálfsögðu. Bara takk fyrir að taka eftir mér.“ Það snerti mann djúpt,“ segir Frosti um ósýnilega fólkið sem margir kjósa að horfa fram hjá eða í gegnum. „Þau eru beint fyrir framan okkur og það er ótrúlega skrýtið að við hlúum ekki betur hvort að öðru í svona litlu samfélagi eins og okkar. Til dæmis bara þetta að ná augnsambandi við fólk og bjóða góðan daginn,“ heldur Frosti áfram og leggur áherslu á hversu þakk- látur hann er. „Mig langar rosalega mikið til að þakka þessu fólki sem leyfði mér að mynda sig. Þessu fal- lega og opna fólki.“ Ólafur Kristjánsson (fæddur 1969, látinn 2020) Ólafur Kristjánsson stjórnar meðal annars veðrinu með tilþrifum í myndbandinu og setur sterkan svip sinn á það. „Ég var við tökur í september og svo lést hann Ólafur í október á meðan ég var að klippa það. Þetta var alveg hrikalega sorg- legt,“ segir Frosti. Þórsteinn Sigurðsson ljósmynd- ari leiddi þá Ólaf og Frosta saman og myndaði þá síðan í tökunum. „Ég hringdi í hann af því að ég vissi að hann þekkti Óla svo rosalega Bara takk fyrir að taka eftir mér Myndband Frosta Jóns Runólfssonar við lagið Sumarið sem aldrei kom eftir Jónsa í Sigur Rós hefur vakið mikla hrifningu og athygli. Leikstjórinn segist hafa reynt að leyfa fólkinu sem þar dansar og öskrar að vera það sjálft. Ólafur stýrir veðrinu með til- þrifum en hann lést á meðan Frosti var að klippa mynd- bandið. MYNDIR/ ÞÓRSTEINN SIGURÐSSON „ … og á meðan ég var að taka upp þá smellti Þórsteinn af nokkrum myndum. Sem betur fer. Þetta eru myndir sem mér þykir rosa- lega vænt um að eiga,“ segir Frosti. „Þórsteinn kom með mér og við vorum þarna saman þrír …,“ segir Frosti um tökurnar með Ólafi en ljósmyndarinn leiddi Frosta á fund veðurmannsins. Frosti segist ákaflega þakklátur öllu því opna og fallega fólki sem leyfði honum að festa sig á filmu. vel. Hann gerði ljósmyndabókina Container Society um gámasam- félagið og hann var svo góður að hleypa mér að sínu fólki. Annars hefði Óli örugglega aldrei tekið í mál að leyfa mér að taka sig upp. Litbrigði lífsins Annars var þetta bara alger djass þessar tökur sem gerir líka klippi- ferlið bæði skemmtilegt og snúið og þegar ég fer út og tek upp þá er ég í raun og veru bara að safna litum í pallettuna. Eins og málari eða eitt- hvað og svo þegar ég byrja að klippa þá er ég bara með alla þessa liti og er að prófa allt. Og svo gerist það oft í klippi- ferlinu að það smellur bara eitt- hvað í hausnum á manni og maður sér þetta allt fyrir sér og þá kemur léttirinn. Það eru alls konar lit- brigði þarna í myndbandinu. Þetta er náttúrlega allt fallegt fyrir mér en það eru börn í fimleikum, fólk að dansa og svona,“ segir Frosti og bendir á að í myndbandinu kallist ljósir og dökkir litir á. toti@frettabladid.is 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.