Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 10
Gerðu þína eiginþakkargjörð Afgreiðslutímar á www.kronan.is Sjá allt fyrir þakkargjörðar veisluna á kronan.is/ takk GARÐABÆR Gerðardómur hefur úrskurðað að sveitarfélagið Garða- bær skuli greiða meirihluta af rúm- lega 200 milljóna króna viðbótar- kostnaði vegna byggingar fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri í Garðabæ. Íslenskir aðalverktakar unnu allsherjarútboð um verkið á sínum tíma með tilboði upp á 4,2 milljarða króna. Þegar jarðvegsvinna á verk- stað hófst kom í ljós að fyrri áætl- anir dugðu ekki og því blasti við að ráðast þyrfti í sértækar aðgerðir til styrkingar á mýrarjarðveginum. Verðmiðinn á þeim viðbótar- framkvæmdum var í kringum 350 milljónir króna. Hófust þegar deilur milli sveitarfélagsins og verktakans um hvor bæri ábyrgð á mistökunum og ætti að bera kostnaðinn. Rök Garðabæjar voru á þá leið að um alls- herjarútboð væri að ræða og því ætti kostnaðurinn að rúmast innan skil- mála verksamnings. ÍAV hélt aftur á móti fram að jarðvegsrannsóknir sem fylgdu útboðsgögnunum hefðu verið ófullnægjandi. Fréttablaðið greindi frá deilunum í janúar á þessu ári og að hlé hefði verið gert á framkvæmdunum. Í við- tali á þeim tímapunkti taldi Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, afar ólíklegt að viðbótarkostnaður myndi lenda á bæjarsjóði og að verk- ið myndi aðeins tefjast í 1-2 mánuði. Svo fór að verkið tafðist um tæpa átta mánuði og leystist ekki fyrr en deiluaðilar ákváðu að hvor um sig myndi taka á sig 60 milljónir af við- bótarkostnaðinum og að afganginn, áðurnefndar 200 milljónir, myndi gerðardómur úrskurða um. Niðurstaða gerðardóms var sú að fallast að mestu leyti á rök ÍAV í mál- inu og var úrskurðað að 80 prósent af viðbótarkostnaðinum myndi falla á Garðabæ, eða um 166 milljónir króna. Sá hluti sem fellur á ÍAV er meðal annars vegna tafa og sinnu- leysis, en verkið hófst ekki fyrr en sjö mánuðum eftir að útboði lauk. Sara Dögg Svanhildardóttir, odd- viti Garðabæjarlistans, segir að minnihlutinn hafi frá upphafi haft efasemdir um að Garðabær væri í fullum rétti í málinu og undirbún- ingi verksins hafi verið ábótavant af hálfu bæjarins. „Rannsókn sem hafin var á jarðvegi undir bygg- inguna var hafin fyrir margt löngu, en aldrei kláruð. Það er verulega ámælisvert,“ segir Sara Dögg. Hún segir að framkvæmdin sé enn eitt dæmið um galla á opin- berum innkaupum sveitarfélaga, ekki bara Garðabæjar heldur allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. „Ég kalla eftir endurskoðun á þessu fyrirkomulagi. Það er óásættanlegt að eyða skattfé í ítrekuð málaferli. Næg eru verkefnin sem skortir fjár- magn,“ segir Sara. bjorn@frettabladid.is Viðbótarkostnaður vegna Vetrarmýrar fellur á Garðabæ Verið er að reisa fjölnota íþróttahús sem mun standa í Vetrarmýri í Garðabæ. Eftir að framkvæmdir við húsið hófust komust Íslenskir aðalverktakar að því að kostnaður við jarðvegsvinnu yrði meiri en áætlað var í útboði. Gerðardómur hefur komist að því að Garðabær skuli greiða meirihluta þess kostnaðar. Framkvæmdir standa yfir við íþróttahús sem rís í Vetrarmýri í Garðabænum. Kostnaður við verkið varð meiri en áætlað var. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar SAMFÉLAG Mörg dæmi eru um að einstaklingar hafi fundið fyrir ein- kennum kvíða í aðdraganda Svarts föstudags, eða Black Friday, eins stærsta verslunardags ársins. Fjöl- margar verslanir hafa auglýst tilboð nú í vikunni og á morgun. Nokkrar umræður hafa skapast á samfélags- miðlum þar sem fólk óttast að missa af veglegum tilboðum, fær eins konar tilboðskvíða. Óttar Guð- mundsson geðlæknir segir slíkan kvíða vel þekktan. „Fólki finnst eins og allir aðrir séu að gera góð kaup og óttast að missa af einhverjum tilboðum. Þetta ástand fylgir oft útsölum. Þetta er hluti af áráttu þráhyggjuástandi þar sem ákveðin hugsun verður ráðandi í huga einstaklingsins,“ segir Óttar. „Í þessu tilviki er það hugsunin: Ég er að missa af einhverju. Við- komandi fer þá að eltast við þrá- hyggjuna og leita uppi öll tilboð og jafnvel kaupa einhverja hreina dellu. Aðalmálið er að hann telur sig vera að græða. Eftirleikurinn er síðan venjulega timburmenn þegar það kemur að skuldadögum.“ – ab Kvíði sem fylgir oft útsölum Óttar Guðmundsson, geðlæknir. Fólki finnst eins og allir séu að gera góð kaup og óttast að missa af einhverjum tilboðum. 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.